Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 48
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
24 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég ætla að fá
„fylgstu með
þyngdinni“
-máltíðirnar númer
4, 7 og 11.
Nei, ekki
vitund.
Af hverju ekki?
Ég er orðinn
leiður á því að
keyra strætó,
barinn er nýr
möguleiki fyrir
okkur.
Alveg
svakalega,
svakalega,
svakalega
vont svar
Hatarðu ekki
allt þetta
stress og álag
sem fylgir
jólunum?
Hvaða stress?
Fyrirgefðu, er ég
að trufla þig?
japl
japl
japl
japl
japl
japl
japl
japl
japl
japl
japl
Já, en hvað
með vinnu-
tímann, löng
kvöld og
svona?
Beta, ég er B-
maður, ég vinn
gjarnan á kvöld-
in og þá sleppur
þú við að vekja
mig með látum.
Já, en hvað með
launin,
nægir
þetta til að
framfleyta
okkur?
Á ég að ná
í launaseðlinn
frá Strætó?
En þú þarft að
vinna öll
kvöld?
Nei, ég
ræð mér
aðstoðar-
manneskju
Jámm Ég er
þarna mestan hluta
vikunnar og nú fæ
ég borgað fyrir það
Ja...
Sko,
þá erum
við sam-
mála
María sagði við Jósef: Ég held ég sé ólétt. Ha, hváði Jósef, sem var smið-
ur og sakleysingi. Við erum ekki einu
sinni búin að kyssast! bætti hann við, eitt
spurningarmerki í framan. Já, ég veit,
sagði María og horfði á tær sér, en sko,
þú veist. Það kom engill í heimsókn.
RÚMLEGA TVÖ ÞÚSUND ÁRUM síðar
er ég í Toys „R“ Us að redda því síð-
asta. Ég er alls ekki í neinu jólastressi.
Þegar ég hugsa um það fór ég aldrei í
jólastress fyrir þessi jól. Var aldrei
á síðustu stundu með neitt. Redd-
aði öllu löngu fyrir tímann. Það er
samt eins og það sé búið að vera
samstillt átak í þjóðfélaginu að
búa til stress. Í desember er bog-
inn spenntur til fulls með auglýs-
ingaholskeflu, umferðaröngþveiti
og troðfullum bílastæðum, gólandi
og uppáþrengjandi jólasvein-
um, glysi hér og glingri þar.
Yfir öllu hljóma jólalög-
in eins og bumbusláttur í
þrælaskipi. Þau ganga flest
út á að æsa upp í hlust-
endum þrá eftir JÓL.
UN.UM. Jólin koma og
ég hlakka svo til. End-
urtekið út í hið óendan-
lega.
VIÐ HÖFUM því öll markvisst verið æst
upp í að hlakka óskaplega til dagsins í
dag. Og það stórmerkilega er að þegar
aðfangadagur rennur loksins upp reyn-
ist tilhlökkunin vera þess virði. Kannski
það sé aðallega vegna þess að nú er sam-
stillta stressátakinu lokið og allt fellur í
ljúfa löð. Gott ef það er ekki bara byrjað
að snjóa úti og lögin um kærleika og frið
loksins byrjuð að meika sens.
MÉR FINNST AÐ JÓLIN eigi að vera
gamaldags og hallærisleg. Svört jóla-
tré með snarhönnuðu jólaskrauti í stíl
eru mér ekki að skapi. Jólaskrautið á að
vera gamalt og úr öllum áttum. Það á að
hafa safnast saman á löngum tíma og
búa til tímalínu fjölskyldunnar. Amma
og afi koma og segja frá gömlu jólunum.
Frá eplalyktinni sem bjó til jólin. Það er
alltaf jafn gaman að heyra það. Gott er
að hafa krakka nálægt til að koma sér í
ærlegt jólaskap. Ég man hvað mér fannst
jólin rosalega spennandi og get endur-
nýjað þessa tilfinningu í gegnum börnin.
Í ár ætla ég auðvitað að passa mig á að
éta ekki á mig algjört gat. Miðað við það
sem er búið að kaupa inn er þetta auðvit-
að vita vonlaust markmið. Æ, það eru nú
einu sinni jólin og maður þarf að fagna
því að daginn er farið að lengja. Gleði-
leg jól!
Samstillta stressátakinu lokið
Óskum viðskiptavinum okkar nær
og fjær og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Yfi rvélstjóri
Erlent útgerðarfyrirtæki leitar að yfi rvélstjóra á frystitogara
sem stundar veiðar í Barentshafi . Viðkomandi þarf að hafa
full réttindi (4. stig) og reynslu af frystitogara vélstjórn.
Enskukunnátta nauðsynleg. Um er að ræða langtímastarf.
Yfi rvélstjóri er á afl ahlut og er kauptrygging 10.000 evrur
per mánuð. Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir,
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupósti til: barentstrawl@live.com.
Villa Bergshyddan
Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa
Bergshyddan, sem staðsettur er í miðborg Stokkhólms.
Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Fólk sem
starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur
fengið bústaðinn að láni, án endurgjalds, í eina eða tvær vikur á tímabilinu 1. apríl
til 30. september 2010.
Umsóknareyðublöð fást á www.reykjavik.is, www.kultur.stockholm.se og í
upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2010 til:
Stockholms Kulturförvaltning,
Nordiskt kultursamarbete,
Yvonne Boulogner,
Box 16113
SE 103 22 Stockholm
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1520,
netf. nanna@reykjavik.is og yvonne.boulogner@kultur.stockholm.se
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki