Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 22
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR ferðalög kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd Frá Soneva Kiri á Tailandi Pennar Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Ljósmyndir Fréttablaðið, Getty Images Auglýsingar Benedikt Freyr Jónssn [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög DESEMBER 2009 TÍU HEITUSTU ÁFANGASTAÐIRNIR ÁRIÐ 201O Sælkeraveisla í frönsku Ölpunum Kokkurinn Oliver James í Val d‘Isere SÍÐA 2 Taktu á móti nýju ári í stuttbuxum Bestu strandirnar til að halda áramót SÍÐA 8 2 FERÐALÖG S ælkerar streyma til frönsku Alpanna í vetur þar sem breski stjörnukokkurinn Oli- ver James töfrar fram dýr- indis rétti. James, sem lærði hjá Gordon Ramsay, er farinn að vinna á lúxushót- elinu Le Chardon Mountain Lodges á skíðasvæðinu Val d‘Isére. Hann hefur skapað spennandi matseðil sem er róm- aður hjá matarskríbentum um heim allan. Á honum eru til dæmis grillaður aborri með trufflum og spenagrís með reyktum hvítlauk og tarragon-hlaupi. Gestir á hótelinu, sem reyndar er skipt í fimm mismunandi lúxuskofa, geta einn- ig lært ýmislegt um matargerð meðan á fríinu stendur og pantað sér matreiðslu- kennslu í hæsta klassa. Fullorðnir geta kynnt sér sælkerauppskriftir á meðan smáfólkið lærir að búa til jólakonfekt og kökur. Þess má geta að Le Chardon er í friðsælu þorpi sem kallast La Legettaz og stærsti alpakofinn rúmar 20 manns. Innifalið í vikuverði er matur, vín og þjónusta. www.lechardonvaldisere.com - amb SÆLKERAVEISLA Á SKÍÐUM Í VAL D’ISÈRE Kokkurinn Oliver James eldar lúxusmat á hótelinu Le Chardon í frönsku Ölpunum þar sem einnig er hægt að fara á námskeið í jólakökugerð Skíðahótelið Le Chardon Skipt niður í fimm mismunandi alpakofa þar sem lúxus er í fyrirrúmi. Hótelið Soneva Kiri opnaði í byrjun árs á eyjunni Koh Kood í Taílandi og er nú talið vera eitt besta hótel lands- ins. Það samanstendur af 42 mismun- andi einkavillum með eigin sundlaug á sannkallaðri eyjaparadís með eyði- ströndum og villtum frumskógum. Það er einungis hægt að fara þangað með einkaflugvél, svo hraðbáti og að lokum jeppa og setur þetta mikinn James Bond-svip á ferðalagið. Meðal þess sem er í boði á hótelinu er risavaxið útibíó, einstök heilsulind, veitinga- staður uppi í trjánum sem er aðeins upplýstur af kertaljósi og jógatímar. Þess má geta að hótelið er byggt alfar- ið með vistvænum efnum og umhverf- isvænt hugarfar er haft að leiðarljósi. - amb VISTVÆNN LÚXUS Hótelið Soneva Kiri er paradís í frumskóginum. Einkavillur úr umhverfisvænum efnum Sérhverri villu fylgir einkasundlaug. Lærðu að elda í Ölpunum Oliver James býður upp á margvíslega kennslu. Þ að eru ekki jól alls staðar, það eru engin jól úti í geimnum,“ tilkynnti sonur minn mér að morgni Þorláksmessu með spekingsleg- um svip. Vangavelturnar um tilveru jóla- sveinsins, jólahefðirnar og jólastressið á fullorðna fólkinu höfðu verið miklar síðustu vikurnar. Engin jól úti í geimnum? spurði ég og hváði. Jólin hljóta að vera alls staðar þó að ekki sé haldið upp á þau sagði ég. Ef mannfólkið hefði náð að setja upp Tunglstöð er ég fullviss um að við hefðum troðið þangað gervijóla- trjám, vakúmpökkuðum kalkúnabitum og jólasveina- húfum á geimbúningana. Þannig erum við vestrænu menn bara gerðir, alveg sama hvort jólahefðirnar eru algerlega út úr kú við umhverfið þá ríghöldum við í þær af öllum mætti. Þess vegna fá jólasveinar að rog- ast um með hnausþykkan rauðan búning með hvít- um loðbryddingum á suðurhveli jarðar í desember og svitna rækilega undan hvítu skegginu. Undarlegasta jólamáltíð sem ég hef snætt er í Norður-Ástralíu, þar sem íbúarnir höfðu aldeilis ekki sagt skilið við bresk- ar hefðir. Þrátt fyrir að hitastigið úti væri hátt í 50 stig á selsíus og að rakinn læki í stríðum straumum niður gluggarúðurnar sátu konur við eldheita ofna og bökuðu „mince pie“, litlar breskar jólakökur fylltar af sætmeti. Jólamaturinn var að sjálfsögðu kalkúnn með fyllingu, brúnuðum kartöflum og heitri sósu, þrátt fyrir að fólk væri gegnvott af hræðilegum hita og raka og það lægi við að falla í ómegin. Hvers vegna engum datt í hug að staðfæra jólamatinn og framreiða grillaðan fisk, salat og ískaldan kokkteil í stað kalk- úns og rauðvíns hef ég ekki hugmynd um, en veit þó að slíkt á sér stað víðs vegar um heim: í Suður-Amer- íku, Suður-Afríku og Ástralíu sem dæmi. En af þess- ari vitleysu má auðvitað hafa gaman af því að hún færir ólíkar þjóðir aðeins nær hver annarri, jólin eiga sér stað víðs vegar um heim en eiga sér þó afskap- lega rótgrónar hefðir. Fram undan er tími til þess að leiða hugann að spennandi ferðalögum og fjarlægum stöðum sem maður á eftir að sjá. Á síðum Ferðalaga í þetta sinn eru taldir upp heitustu áfangastaðir heims fyrir árið 2010 sem vonandi veita einhverjum lesend- um innblástur á nýju ári. Anna Margrét Björnsson skrifar NÝTT ÁR OG NÝIR ÁFANGASTAÐIR Kokkaveisla í Frakklandi Oliver James töfrar fram dásamlega rétti. flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.