Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 46
 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. HAROLD PINTER (1930-2008) LÉST ÞENNAN DAG. „Stundum óskaði ég mér að ég gæti skrifað eins og einhver annar, verið einhver annar. Enginn sér- stakur. Bara að ég byrjaði að skrifa og skyndilega kæmi allt öðruvísi texti.“ Harold Pinter var breskt leikrita- skáld, leikstjóri og Nóbelsverðlauna- hafi. Pinter vakti athygli þegar hann gagnrýndi utanríkisstefnu Bandaríkj- anna þegar honum voru veitt Nóbels- verðlaunin. timamot@frettabladid.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, Guðmundur Cesar Magnússon Blikaási 21, Hafnarfirði, lést af slysförum miðvikudaginn 16. desember sl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði mið- vikudaginn 30. desember kl. 13.00. Við afþökkum blóm og kransa, en biðjum þá sem vilja minnast hans að styrkja björgunarsveitirnar. Fyrir hönd aðstandenda, Oddrún Kristófersdóttir Elísabet Sigríður Guðmundsdóttir Jóhanna Þórisdóttir Atli Már Guðmundsson Hrafn Leó Guðjónsson Arna Rún Cesarsdóttir Ívar Smári Guðmundsson Guðbjörg Krista Cesarsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar, bróður og mágs, Hans Alberts Knudsen flugumsjónarmanns, Lúxemborg. Þökkum af alhug öllum vinum okkar hér á Íslandi og í Lúxemborg fyrir ómetanlega hjálp og stuðning í veik- indum hans. Guð gefi ykkur gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Laufey Ármannsdóttir Henrik Knudsen Helen Sif Knudsen Guðmunda Elíasdóttir Guðbjörg Eyvindsdóttir Sif Knudsen Stefán Ásgrímsson Hjartanlegar þakkir sendum við öllum þeim sem með hlýhug og vináttu vott- uðu minningu Péturs H. Ólafssonar virðingu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar L-5 á Landakoti fyrir elsku þess við umönnun hans. Sendum ykkur öllum óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári. Hrefna Pétursdóttir Hugrún Pétursdóttir Marteinn Geirsson Pétur Pétursson Anna S. Einarsdóttir Ólína Björk Pétursdóttir afabörnin öll og systkini hin látna. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, Vigfúsar Sigurðssonar húsasmíðameistara, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Inga Sigrún Vigfúsdóttir Óli Rafn Sumarliðason Guðfinna Vigfúsdóttir Aðalsteinn Valdimarsson og afabörnin. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ingeborg Grimm Jónsson Þorsteinsgötu 11, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 14.00. Guðmundur Jónsson Úlfar Guðmundsson Joan Andersen Sverrir og Guðmundur Úlfarssynir Kristófer Þór, Michael Van Eric, Timothy Manfred, Melinda og Christie. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, Einars Magnússonar Suðurhólum 14, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 1. desember sl. Sérstakar þakk- ir til starfsfólks V3, hjúkrunarheimilinu Grund. Við óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar. Petrína Einarsdóttir Hörður Kolbeinsson Elísabet Einarsdóttir Skarphéðinn Scheving Einarsson Pálína Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Anna Sigrún Snorradóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 22. desember. Birgir Þórhallsson Snorri Sigfús Birgisson Guðrún Sigríður Birgisdóttir Martial Nardeau Þórhallur Birgisson Kathleen Bearden og barnabörn. Hjónin Ingibjörg Jónasdóttir og Guðmundur A. Elíasson frá Suðureyri við Súgandafjörð eiga 60 ára brúðkaupsafmæli þann 26. desember nk. Þau fá innilegar haming juósk ir frá börnum, tengdasyni og barna- börnum í tilefni dagsins. Demantsbrúðkaup Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, Haraldar Torfasonar fyrrum bónda í Haga í Nesjum, sem lést fimmtudaginn 10. desember. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir hlýja og góða umönnun. Elín Dögg Haraldsdóttir Gunnar Björn Haraldsson Guðrún Kristjánsdóttir Halldór Sölvi Haraldsson Anna Halldórsdóttir Sigrún Brynja Haraldsdóttir Þorvaldur Helgason Þorleifur Haraldsson Harpa Cilia Ingólfsdóttir Ivon Stefán Cilia börn, barnabörn, barnabarnabarn og systkini. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, dóttur og systur, Elvu Daggar Pedersen Mosarima 12, Reykjavík. Við þökkum sérstaklega góðum vinum okkar fyrir ein- stakan stuðning og vináttu á erfiðum tímum. Einnig þökkum við sérstaklega því heilbrigðisstarfsfólki sem annaðist Elvu Dögg í veikindum hennar. Haukur Sigurðsson Alexander Hauksson Palle Skals Pedersen Sæunn Elfa Pedersen Daníel Thor Skals Pedersen Arnór Ingi Ingvarsson Sigmundur G. Sigurðsson, fyrrverandi útgerðarmaður á Akranesi, söðlaði um fyrir nokkrum árum og skráði sig í húsasmíði. Hann er nú nýútskrifaður frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og þrátt fyrir breytt landslag á vinnumarkaði sér hann ekki eftir ákvörðuninni og er bjartsýnn á að hús- næðismarkaðurinn glæðist. Sigmundur rak útgerðarfélagið Keili ehf. á Akranesi um 23 ára skeið ásamt eiginkonu sinni, Guðríði Guð- mundsdóttur, Friðriki Þ. Magnússyni og eiginkonu hans, Aðalheiði Skarphéðinsdóttur. Hann og Friðrik höfðu áður unnið saman í járnblendinu á Grundartanga og áttu því um aldarfjórðungs sameiginlegan starfsferil að baki. En hvað varð til þess að Sigmundur skipti um gír? „Það var bara kominn tími til að breyta til. Húsasmíðin, og sú sköp- un sem henni fylgir, hefur alltaf blundað í mér og ég hef tvisvar áður reynt að skrá mig til náms. Þegar Friðrik keypti mig út fyrir tæpum þremur árum gafst loks tæki- færi og ég lét slag standa,“ segir Sigmundur sem hefur að eigin sögn verið í helgarnámi síðan þá. Á þeim tíma sem Sigmundur rak útgerðina var upp- gangurinn mikill en það sama á ekki við um húsasmíð- ina í dag. „Mig grunaði auðvitað ekki hvernig staðan yrði í dag þegar ég ákvað að rífa mig upp á gamals aldri en menn verða líka að fylgja hjartanu. Ég trúi ekki öðru en að kreppan taki enda og að fólk fari að byggja á ný.“ Talsvert er um nýbyggingar á Akranesi og festi Sig- mundur nýverið kaup á hálfkláruðu parhúsi sem hann stefnir á að vinna að á komandi ári. „Vonandi verður eitt- hvað farið að glæðast þegar því verkefni lýkur.“ vera@frettabladid.is SIGMUNDUR G. SIGURÐSSON: ÚR ÚTGERÐ Í HÚSASMÍÐI Fylgdi hjartanu Hér er Sigmundur á toppi Kerlingarinnar, sem er hæsta fjall Eyjafjarð- arsýslu, en hann hefur ferðast töluvert með Toppförum og átti tuttugu metra í að komast á Hvannadalshnúk í vor. Þá gerði aftakaveður en hann er staðráðinn í að fara aftur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.