Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 42
6 FERÐALÖG
E
f fólk hefur gaman af því
að skoða maísakra ætti
það endilega að skella sér
til Vestur-Ohio!“ segir
Colin Scott McKinstry, nítján ára
bandarískur skiptinemi, spurður
að því hvað sé helst að sjá í hans
heimahögum og hvort hann myndi
mæla með því að ferðast þangað.
Við nánari umhugsun mælir hann
reyndar með Októberfest í Cinc-
innati, sem er ekki fjarri hans
heimabæ. Það mun vera önnur
stærsta Októberfest heims, sem
margir leggja á sig langt ferðalag
til að komast að.
Colin hefur dvalið á Íslandi í
fjóra mánuði sem skiptinemi í
Menntaskólanum í Kópavogi. Hann
lætur vel af dvöl sinni á landinu og
hefur dýft sér á bólakaf í íslenska
menningu. Hann bragðaði meðal
annars skötu á Þorláksmessu, þrátt
fyrir viðvaranir fólks í kringum
hann, og hlakkar mikið til þess
að smakka heima lagað rauðkál
hinnar íslensku móður sinnar í
kvöld. Aðdragandi íslenskra jóla
er ekki ósvipaður þeirra banda-
rísku, segir Colin. Helsta breyt-
ingin felist í því að Íslendingar
fagni jólunum 24. desember en
ekki á jóladag eins og Bandaríkja-
menn. Eitt hefur hann þó upplif-
að í aðdraganda jólanna sem hann
myndi seint gera heima. Hann er
mikill áhugamaður um sögu Norð-
urlandanna og norræn goðafræði
hefur alltaf heillað hann. Þessi
áhugi hans leiddi hann á jóla-
blót Ásatrúarfélagsins, sem hann
segir með eftirminnilegri stund-
um hans hér. Colin er ekki þjakað-
ur af heimþrá og segir sitt fólk á
Íslandi hafa lagt sitt af mörkum til
þess að hann sakni ekki foreldra
sinna, systkina og allra gæludýr-
anna allt of mikið yfir hátíðirnar.
„Ég hef varla fundið fyrir heim-
þrá frá því ég kom hingað, enda
var mér strax látið líða eins og ég
væri einn af fjölskyldunni og hef
verið svo heppinn að eignast mikið
af vinum hérna.“
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR-
INN? Ég held mikið upp á veit-
ingastaðinn Jules Verne sem er á
efstu hæð Eiffel-turnsins. Þar er
ljúffengur franskur matur og útsýni
yfir alla borgina.
BESTA BÚÐIN TIL AÐ KAUPA SÉR
TÍSKUFÖT? Verslunin H&M stend-
ur alltaf fyrir sínu, sérstaklega eftir
að þeir fóru að selja hönnun Soniu
Rykiel á góðu verði!
SKEMMTILEGASTI STAÐURINN
TIL AÐ FARA MEÐ BÖRN? Disney-
land er óneitanlega ómissandi fyrir
smáfólkið en ég er sjálf mjög hrifin
af skóginum rétt utan Parísar þar
sem ég bý sem nefnist La forêt de
Compiègne. Þar er skemmtilegur
garður fyrir börn þar sem þau geta
klifrað og leikið sér í trjánum.
ÁTTU ÞÉR LEYNISTAÐ Í PARÍS?
Já, lítið torg efst á Montmartre-
hæðinni sem er afar rómantískt og
sjarmerandi.
HVERJU MÁ MAÐUR ALLS EKKI
MISSA AF Í DESEMBER? Jóla-
skrautinu í miðborginni sem er
ótrúlega fallegt.
HVAR ER SKEMMTILEGAST AÐ
FÁ SÉR DRYKK? Á L‘hotel Kube
sem er í 18. hverfi.
HVER ER UPPÁHALDS FRANSKI
RÉTTURINN ÞINN Á VEITINGA-
HÚSUM? Hörpudiskur, flamberað-
ur í koníaki.
OG HVERJU MÁ ALLS EKKI
GLEYMA EF MAÐUR SKREPPUR
TIL PARÍSAR? Soulages-sýning-
unni sem er í Centre Pompidou.
HEIMAMAÐURINN
París
FLORENCE HELGA THIBAULT MYNDSKREYTTI NÝVERIÐ
ÞJÓÐSÖGUR JÓNS ÁRNASONAR Í NÝRRI ÚTGÁFU.
BLÓT Á JÓLAFÖSTU
Bandaríski skiptineminn Colin Scott McKinstry hefur lengi haft áhuga á nor-
rænni goðafræði. Sá áhugi leiddi hann á jólablót Ásatrúarfélagsins, sem hann
segir með eftirminnilegustu stundum hans hér.
Þingblót ásatrúarmanna Colin hefur ætíð verið heillaður af norrænni goðafræði.
Colin Scott McKinstry Mælir ekki
sérstaklega með því að fólk ferðist til
heimahaga hans í vesturhluta Ohio í
Bandaríkjunum, nema það hafi sérstak-
an áhuga á maísökrum.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki