Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 4
4 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
PALESTÍNA Sérlegur talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) um málefni
hernámssvæða Ísraela í Palestínu
kallar eftir því að Ísraelar láti af
aðgerðum til að einangra Gasa-
svæðið. Í tilkynningu fréttaveitu
SÞ á Þorláksmessu er einnig kall-
að eftir því að lönd í Evrópu og
Norður-Ameríku, sem stutt hafi
Ísrael, beiti landið efnahagsþving-
unum til að þrýsta á um umbætur
varðandi Gasa og að unnið verði úr
ábendingum Goldstone-skýrslunn-
ar svonefndu, en þar er fjallað um
mannréttindabrot Ísraela og Palest-
ínumanna í átökum þjóðanna.
„Hver maður
með samvisku,
sem og stjórn-
völd um heim
allan og Sam-
einuðu þjóðirn-
ar ættu að horfa
t i l a lvarlegs
ástands á Gasa,“
segir í tilkynn-
ingu Richards
Falk, talsmanns
SÞ um hernámssvæði Palestínu,
á Þorláksmessukvöld. „Áþján 1,5
milljóna íbúa Gasa sem líða fyrir
vöruflutningabann Ísraela, en yfir
helmingur þeirra er börn, hefur
verið látin viðgangast án formlegra
mótmæla stjórnvalda eða Samein-
uðu þjóðanna.“
Ákall Falks var sent út rétt áður
en ár var liðið frá árásarhrinu Ísra-
ela á Gasa. Íbúar á svæðinu tóku
í gær þátt í skipulegum mótmæl-
um Hamas vegna þeirra, en fleiri
hundruð manns dóu og margmillj-
óna tjón varð í árásum sem stóðu
yfir í 22 daga. Uppbyggingarstarf
hefur svo setið á hakanum vegna
vöruflutningabanns og einangrun-
ar Ísraela á svæðinu. Fréttaveit-
an AP greinir frá því að um 3.000
stuðningsmenn Hamas hafi komið
saman á torgi bæjarins Jebaliya í
norðurhluta Gasa. Þar hafi verið
veifað grænum fánum samtakanna
og haldið uppi myndum af fjöl-
skyldumeðlimum sem drepnir hafi
verið í árásum Ísraela. Þær hófust
27. desember í fyrra, en talið er að
um 1.400 Palestínumenn hafi verið
drepnir í þeim. Þar af eru um 900
sagðir hafa verið óbreyttir borg-
arar og 400 börn. Þrettán Ísraelar
voru drepnir.
Benyamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra Ísrael, vék ekki orði
að innrásinni fyrir ári, sem gerð
var undir stjórn fyrri ríkisstjórn-
ar, í yfirlýsingu sem hann las fyrir
vikulegan ríkisstjórnarfund sem
fram fór í gær. Hann áréttaði þó
að landið myndi bregðast við öllum
árásum af fullri hörku.
Ísrael réðst inn á Gasa-svæð-
ið fyrir ári að eigin sögn í við-
leitni til að binda endi á árásir með
skotflaugum á landamærabyggðir
Ísraela og til að grafa undan stjórn
Hamas á svæðinu.
Báðar fylkingar fagna sigri eftir
átökin. Syðri byggðir Ísraela eru
sagðar blómstra þar sem eldflauga-
árásir hafi að mestu hætt og Hamas
hampar stjórn sinni á Gasa. Svæðið
er hins vegar í rúst. Mörg hundr-
uð fjölskyldur syrgja fallna ástvini
og mörg hundruð til viðbótar eru
örkumla eða alvarlega særð. Þús-
undir heimila voru eyðilagðar eða
mikið skemmd, en stíft vöruflutn-
ingabann Ísraela og Egypta hefur
hamlað uppbyggingu. Bannað er að
flytja inn á Gasa gler, steypu eða
annað byggingarefni.
olikr@frettabladid.is
lyf?
Kynntu þér þinn rétt á lfi.is
Þarft þú að nota lyf að staðaldri?
Frumtök • Hjartaheill • Beinvernd • Lyfjafræðingafélag Íslands
v
EFNAHAGSMÁL Matsfyrirtækið
Fitch Ratings hefur staðfest lang-
tímalánshæfiseinkunnir Íslands í
erlendum og innlendum gjaldmiðli.
Einkunnirnar eru BBB- í erlendri
mynt og A- í innlendri mynt. Þá
hefur ríkissjóður verið tekinn af
gátlista. Seðlabankinn greindi frá
þessu á Þorláksmessu.
Horfur eru sagðar neikvæð-
ar, en einkunn fyrir skammtíma-
skuldbindingar í erlendri mynt
var staðfest F3 og landseinkunn-
in er BBB-.
Haft er eftir Paul Rawkins,
framkvæmdastjóra hjá Fitch í
Lundúnum, að hvarf ríkissjóðs af
gátlista endurspegli meðal annars
framvindu í endurskipulagningu
fjármálageirans og viðunandi
framkvæmd á efnahagsáætlun
stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins.
Enn er þó sögð hætta á að láns-
hæfismatið lækki, en það end-
urspegli fyrst og fremst það
mat Fitch að hægt hafi gengið
hjá stjórnvöldum að koma fjár-
málasamskiptum við umheim-
inn í eðlilegt horf. „Mikilvægur
þáttur í þessu samhengi er lausn
„Icesave“-málsins, það er tví-
hliða samninga við bresk og hol-
lensk stjórnvöld um fjármögnun á
endurgreiðslu til innstæðueigenda
Icesave-reikninga,“ segir í þýð-
ingu Seðlabankans á áliti Fitch.
- óká
Matsfyrirtækið Fitch Ratings segir hægt hafa gengið að ljúka Icesave-málinu:
Lánshæfismat ríkisins staðfest
FYRRVERANDI BANKASTJÓRAR Sigurjón
Árnason og Halldór J. Kristjánsson kynna
fyrsta fjórðungsuppgjör Landsbankans
í fyrra. Fitch segir hægt ganga að ljúka
málum tengdum Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mótmælt á Gasa þegar ár
er liðið frá innrás Ísraela
Sameinuðu þjóðirnar biðja bandamenn Ísraela að beita efnahagsþvingunum til að knýja á um að hætt verði
aðgerðum á Gasa og að unnið verði úr niðurstöðum Goldstone-skýrslunnar. Árásirnar fyrir ári stóðu í 22 daga.
Ísraelskir hermenn drápu sex Palest-
ínumenn á annan í jólum. Þrír voru
drepnir á Gasa og þrír á Vesturbakk-
anum.
Breska ríkisútvarpið BBC hefur
eftir talsmanni Ísraelshers að
mennirnir þrír á Gasa hefðu verið að
reyna að lauma sér yfir á landsvæði
Ísraela og verið drepnir í loftárás
nærri landamærastöðinni við Erez.
Þá er einnig haft eftir Ísraelsher
að þrír menn hafi verið drepnir í
Nablus-borg á Vesturbakkanum, en
þeir hafi verið grunaðir um dráp á
landtökumanni af gyðingaættum,
tveimur dögum fyrr.
Heimildarmenn BBC í Nablus
segja tvo af þeim sem þar voru
drepnir hafa verið liðsmenn dráps-
sveita al-Aqsa, herskás hóps sem
tengdur er Fatah-flokki Mahmouds
Abbas forseta Palestínu. Sveitirnar
höfðu lýst yfir ábyrgð á drápinu á
landtökumanninum.
Drápin áttu sér stað daginn fyrir
ársafmæli innrásar og viðvarandi
stríðsátaka Ísraela á Gasa-svæðinu,
en í þeim eru um 1.400 Palestínu-
menn sagðir hafa látið lífið og 13
Ísraelar.
SEX VORU DREPNIR Á ANNAN Í JÓLUM
MÓTMÆLT Á GASA Palestínumenn halda á myndum af ættingjum sem drepnir
voru í hernaði Ísraela fyrir ári. Myndin er tekin í flóttamannabúðunum í Jebaliya á
norðurhluta Gasa-svæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/APBENYAMIN
NETANYAHU
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
7°
3°
4°
6°
3°
1°
4°
4°
22°
6°
16°
5°
19°
-1°
5°
12°
3°
Á MORGUN
Víða fremur hægur
vindur.
MIÐVIKUDAGUR
Víða fremur hægur
vindur.
-7
-6 -9
-10
-8-5 -7
-5 -6
-8
-2
-3
-4
-8
-6
-3
-8
-2
-7
-12
03
5
4
6
4
4
5
4
4
2
5
KULDATÍÐ Það
verður kalt á land-
inu næstu daga og
má búast við að
bæti í frost þegar
líður á daginn í
dag. Það verða él
með köfl um víða
um land í dag en
á morgun og mið-
vikudag bjart veður
suðvestanlands en
éljagangur norðan-
og austan til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Sjö manns gistu
fangageymslur lögreglunnar
aðfaranótt sunnudags. Mikið var
um ölvunarútköll.
Þá voru margir pústrar til-
kynntir til lögreglunnar, en eng-
inn þeirra var alvarlegur. Fimm
manns voru teknir grunaðir um
ölvun við akstur, og einn fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Einn gisti fangageymslur á
Selfossi vegna líkamsárásar, en
hann réðist á dyravörð. Á Akra-
nesi gisti einn maður fanga-
geymslur sökum ölvunar. Á
báðum stöðum var mikill erill
eins og í borginni. - þeb
Margir gistu fangageymslur:
Mikið að gera
hjá lögreglunni
BRETLAND Búningum breskra her-
manna verður breytt á næstunni,
í fyrsta sinn í fjörutíu ár.
Um er að ræða felulitabúning
sem verður með nýju munstri.
Munstrið á að henta vel í ýmsu
umhverfi, meðal annars á erfið-
um svæðum í Afganistan. Hing-
að til hafa hermenn notað marga
búninga til skiptis. Það hefur
reynst erfitt í Helmand-héraði,
þar sem eyðimerkur og græn
svæði skiptast á.
Herdeildir í Afganistan munu
fá nýja búninginn í mars á næsta
ári, en stefnt er að því að allur
herinn hafi fengið nýjan búning í
lok næsta árs. - þeb
Breytingar í breska hernum:
Fá nýjan felu-
litabúning
LÖGREGLUMÁL Mikill viðbúnaður
var á Keflavíkurflugvelli á laug-
ardag vegna gruns um sprengju í
flugvél.
Flugvélin var á leið frá Þýska-
landi til Bandaríkjanna þegar
í ljós kom að farangur var um
borð í henni án þess að eigandi
hans væri þar. Þá var henni lent
hér á landi. Vélin var frá Luft-
hansa-flugfélaginu og var á leið til
Detroit, líkt og vél sem sprengju-
tilræði var gert í á föstudag.
Sprengjusveit Landhelgisgæsl-
unnar leitaði í farangri vélarinnar
eftir að allir farþegar höfðu yfir-
gefið hana, en ekkert fannst. - þeb
Grunur um sprengju í flugvél:
Engin sprengja
fannst í vélinni
Flugfreyjur sömdu
Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) er búið
að semja við Icelandair en allt stefndi
í verkfall sem átti að hefjast 2.
janúar. Samið var á Þorláksmessu en
samningurinn verður undirritaður 30.
desember. Sama dag á Flugfreyjufé-
lagið 55 ára afmæli.
KJARAMÁL
GENGIÐ 23.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
236,2781
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,78 128,38
203,99 204,99
181,94 182,96
24,441 24,585
21,713 21,841
17,407 17,509
1,3905 1,3987
199,28 200,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR