Fréttablaðið - 28.12.2009, Qupperneq 10
28. desember 2009 MÁNUDAGUR
Gott
í gogginn
fyrir Ringjara.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gott 1
Gott 2
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
50% afsláttur af lítilli pizzu
með 2 áleggstegundum.
50% afsláttur af matseðli.
Gos er ekki innifalið í tilboði.
Gildir í dag mánudag
Gildir í dag mánudag
Domino's
Serrano
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
3
4
8
50%
afsláttur
Lítil pizza m.
2 áleggsteg.
50%
afsláttur
af máltíð
fyrir einn
Ringjarar fara inn á ring.is
og óska eftir að fá MMS með
tilboðum send í símann.
ATVINNULEYSI Persónuvernd hefur sam-
þykkt að Vinnumálastofnun fylgist með
IP-tölum þeirra sem staðfesta atvinnu-
leysisskráningu í gegnum heimasíðu
stofnunarinnar. Þannig fylgist stofn-
unin með því hvort tilkynningar ber-
ast frá erlendum IP-tölum.
Konu, sem heimsótti ættingja sína
erlendis meðan hún naut atvinnuleys-
isbóta og var í Svíþjóð þegar hún sendi
staðfestingu til Vinnumálastofnunar,
var neitað um atvinnuleysisbætur. Hún
gæti ekki verið í virkri atvinnuleit á
Íslandi meðan hún væri erlendis. Sam-
kvæmt vinnureglum Vinnumálastofn-
unar er atvinnulausum ekki heimilt að
dvelja erlendis um lengri eða skemmri
tíma án þess að missa rétt til bóta.
Konan kærði til Persónuverndar
og í úrskurði um málið er fallist á
að þetta sé lögmæt meðferð per-
sónuupplýsinga og eðlilegur þátt-
ur í eftirliti Vinnumálastofnun-
ar. Hins vegar þurfi stofnunin að
gera atvinnulausu fólki grein fyrir
því að þetta sé gert. Það megi til
dæmis gera með því að birta um
það auglýsingu á heimasíðu stofn-
unarinnar. -pg
Heimsótti ættingja erlendis og var neitað um atvinnuleysisbætur:
Vinnumálastofnun fylgist
með IP-tölum atvinnulausra
RAFRÆNT EFTIRLIT Vinnumála-
stofnun vaktar rafrænt allar
IP-tölur þeirra sem eru á
atvinnuleysisbótum og
senda rafræna staðfest-
ingu á atvinnuleit.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ
BYR Rúmlega þrjátíu yfirheyrslur hafa farið fram hjá
embætti sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á
viðskiptum eignarhaldsfélagsins Exeter Holding með
stofnfé í Byr.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir
að rannsóknin sé vel á veg komin. Hann vill ekki
upplýsa hve margir einstaklingar komi við sögu og
hverjir hafi réttarstöðu sakborninga og hve margir
hafi verið yfirheyrðir sem vitni.
Málið snýst um viðskipti með stofnfjárhluti í Byr
eftir bankahrunið í fyrra. Einkahlutafélagið Arkea
fékk þá um milljarð króna að láni frá Byr.
Það fé rann til Exeter Holding, dótturfélags Arkea,
og var notað til að kaupa stofnfé í Byr, meðal annars
af MP Banka, og einnig af Jóni Þorsteini Jónssyni,
þáverandi stjórnarformanni Byrs, og Birgi Ómari
Halldórssyni stjórnarmanni.
Rannsóknin teygir einnig anga sína til félags í eigu
Ragnars Z. Guðjónssonar, fyrrverandi sparisjóðs-
stjóra Byrs. Jón Kr. Sólnes, sem einnig hefur réttar-
stöðu sakbornings við yfirheyrslur, sagði af sér stöðu
stjórnarmanns í Byr vegna rannsóknarinnar.
Farbann, sem sett var á Jón Þorstein Jónsson
vegna málsins, rann út í síðustu og var ekki fram-
lengt. - pg
Rannsókn sérstaks saksóknara á viðskiptum með stofnfé í Byr vel á veg komin:
Meira en þrjátíu yfirheyrslur
BYR Sparisjóður Kópavogs, Hafnarfjarðar, Norðlendinga og
Sparisjóður vélstjóra runnu saman í Byr. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTAMÁL Fræðslunefnd Fjalla-
byggðar hefur sett fram ítarleg-
ur tillögur um framtíðarskipan
fræðslumála í sveitarfélaginu.
Grunnskólarnir á Siglufirði og í
Ólafsfirði verða sameinaðir í eina
stofnun, sem og leik- og tónskól-
ar ef tillagan nær fram að ganga.
Sparnaður sameiningar er metinn
um sjötíu milljónir króna á ári.
Þórir Kristinn Þórisson, bæj-
arstjóri Fjallabyggðar, segir hug-
myndina hafa verið til skoðun-
ar í töluverðan tíma og sé hluti
af sameiningu sveitarfélaganna
sem gekk í gegn árið 2006. „Þess-
ar hugmyndir tengjast þeirri bylt-
ingu sem er að verða í samgöngum
hér á svæðinu með opnun Héðins-
fjarðarganganna. Við erum eins
og stendur með fjórar grunnskóla-
byggingar, tvo tónskóla og tvo leik-
skóla. Þeir halda sér en við getum
fækkað grunnskólabyggingum um
eina á hvorum stað.“
Gert er ráð fyrir að unglinga-
stig verði sameinað fljótlega eftir
að Héðinsfjarðargöng verða tekin
í notkun, og að kennslan fari fram
á Siglufirði. Yngra stiginu yrði
áfram kennt á báðum stöðum í tvö
til þrjú ár en þá yrði það sameinað
í Ólafsfirði.
Tillögurnar hafa verið kynnt-
ar bæjarstjórn og á fundi henn-
ar í gær var samþykkt að kynna
þær fyrir almenningi. Stefnt er að
kynningarfundum í fyrstu vikum
janúarmánaðar á komandi ári.
Bæði er talið nauðsynlegt af fag-
legum og fjárhagslegum ástæðum
að laga skipulag fræðslustofnan-
anna að breyttum aðstæðum, en
fjárhagsvandi sveitarfélaganna
hefur ver ið
m i k i ð t i l
um ræðu að und-
anförnu. Eins
hugmyndir Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga
um sparnað í
grunnskólanum
sem kennarar
hafa tekið illa í.
Þórir Krist-
inn segir að staða Fjallabyggðar
sé ásættanleg en sveitarfélagið
sé ekki undanskilið þeirri kvöð að
spara á næstu misserum, frekar
en önnur sveitarfélög.
Fjárhagslegur ávinningur af
breytingum þeim sem fræðslu-
nefnd leggur til væri annars vegar
sparnaður í launakostnaði og hins
vegar lægri rekstrarkostnaður
fasteigna. Í skýrslu fræðslunefnd-
ar er gert ráð fyrir að launakostn-
aður sveitarfélagsins myndi lækka
um allt að fimmtíu milljónir á ári.
Að auki myndi sparast rekstrar-
kostnaður tveggja skólahúsa sem
samanlagður er um tuttugu millj-
ónir á ári.
Fræðslunefnd sér jafnframt
faglegan og félagslegan ávinning
með breytingunum.
svavar@frettabladid.is
Fjallabyggð undirbýr
samruna grunnskóla
Tilkoma Héðinsfjarðarganga gerir Fjallabyggð kleift að endurskipuleggja skóla-
starf sveitarfélagsins. Fræðslunefnd hefur lagt fram ítarlegar tillögur sem gera
ráð fyrir fækkun skólabygginga og sjötíu milljóna króna sparnaði á ári.
ÞÓRIR K.
ÞÓRISSON
LOKAFRÁGANGUR Tilkoma Héðinsfjarðarganga mun bylta bæjarbrag á Siglufirði og í
Ólafsfirði. Göngin verða tekin í notkun haustið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR