Samtíðin - 01.06.1955, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.06.1955, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN 11 strandarinnar. Á yulum sandinum flatmagar fjöldi karla og kvenna. 1 blátærum sjúnum synda hópar af fúlki. Hann horfir á leik fólksins um stund. En--------hvað er þetta? Ung stúlka, sem synt hefur langt frá landi, hrúpar á hjálp, berst um í sjúnum og hrúpar á hjálp í hinni sárustu angist. Enginn sundmann- anna virðist hafa kjark eða snar- ræði til þess að bjarga liinni drukkn- andi konu. Magnús smeygir sér úr jakkanum og skónum, hleypur fram í sjúinn og leggst til sunds. Austanáttin hefur feykt snjónum saman í hengjur framan í Höfða- hrúninni. Magnús gengur í leiðslu á valdi huglirifa sögunnar. Hann skynjar naumast, þegar skaflinn brestur undir fótum hans og byltist niður í djúpið. Nú er skipt um svið. Gul sand- fjara Afríkustrandarinnar og hlýjar, dimmhláar öldur Miðjarðarhafsins, þar sem íslenzkur nútímavikingur syndir með knáum tökum til að hjarga dökkbrýnni mey frá drukkn- un, eru horfnar. Upp úr krapaköld- um sjó við norðurströnd Islands skýtur sem snöggvast ósyndum manni, sem herst um með krampa- kenndum lireyfingum i sjávaryfir- horðinu, en hverfur síðan i djúpið. Nokkrar lofthólur bresta í sjávar- fletinum. Það eru sögulok. Leitið upplýsinga um vátryggingu hjá Nordisk Brandforsikring A/S. Aðalumboð á fslandi, Vesturgötu 7. Reykjavík. Sími 3569. Pósthólf 1013. 196. SAGA SAMTÍOARINNAR ' ’ ijl 3 ie. jd ennann: A Olejsta gátan Þetta mun vera stytzta smásaga, sem skrifuS hefur verið um afleiðingar kjarn- orkustyrjaldar. TVÍHÖFÐI sat og velti fyrir sér ráðgátunni fornu. „Haldið þér,“ sagði hann undar- lega smámæltur, af því að tungan í honum var klofin, „að maðurinn liafi gert umskiptinginn sem lifandi eftirmynd sina?“ Kunningi hans í ljósaskiptunum varðist allra frétta í þeim efnum. Vlnstra höfuð umskiptingsins tevgði fram álkuna frá hellisveggn- um, sem það hafði hvílt við. „En ef mannssonurinn, Adam, skapaði okkur öll með kjarnorku- sprengj unni ....?“ „Ég trúi ekki þessari sprengju- sköpunarsögu,“ hahlaði hægra höf- uðið. Hvað segið þér um það, gest- ur.“ Enn þá þagði gesturinn eins og steinn. Ekki er vitað, af hverju hann gerði það, því að koldimmt var í hellinum. Vinstra höfuðið gaf þessa skýr- ingu: „En ef maðurinn hefur skapað umskiptinginn í sinni eigin mynd, hlýtur hann að hafa verið ófreskja. Hann hlýtur þá að hafa verið tví- höfðaður eins og við; hann hlýtur að hafa haft tvo líkami eins og Sí- ams-systur okkar og tíu handleggi eins og tíu liandleggja verurnar, sem við hittum í vikunni, sem leið, og

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.