Samtíðin - 01.06.1955, Blaðsíða 25
SAMTÍÐIN
21
og baráttu óperusöngvarans í Kiel,
Darmstadt, Berlín og Bremen og
mjög stuðzt við þýzka blaðagagn-
rýni. Af greinargefð á bls. 232—4
sést, að Pétur hefur farið með
hvorki meira né minna en 60 óperu-
hlutverk í Þýzkalandi, langflest að-
alhlutverk. Oftast fór hann með
hlutverlc Walters Stolzings í Meist-
arasöngvurunuin (57 sinnum), þar
næst Badamesar í Aida (56 sinnum)
og Lohengrins (52 sinnum). Björg-
úlfur Ólafsson lýsir aðstöðu Péturs
óperusöngvara þannig á bls. 81, að
örðugt mun að gera það betur í jafn-
stuttu máli. Hann segir: „Pétnr var
hvorki konunglegur né keisaraleg-
ur. Hann var eiginlega útlendur ein-
stæðingur, sem aldrei hafði nokkurn
mann til þess að halda sér fram og
ekkert fram að færa annað en at-
gjörvi sjálfs sín, og getur verið, að
bann hafi bæði notið þess og gold-
ið, eins og þá var ástatt í Þýzka-
landi. Hann átti framtíð sína að
sækja innan um fjölda ágætra söng-
manna á sama sviði hjá hinni vand-
fýsnustu þjóð á alla tónlist, og þó
tókst honum eingöngu af eigin ram-
leik að halda velli í meir en tuttugu
ár meðal hinna heldri höfðingja
þýzkra óperusöngvara.“
Traust og látlaus bólc um baráttu
og sigra svo merks íslenzks lista-
manns, að saga hans skiptir íslend-
inga máli. S. Sk.
Radartæki, Asdictæki, Dýptarmælar, Dýpt-
armælapappír, Segulbandstæki, Segul-
bönd, Kvikmyndavélar, Útvarpsviðgerðir.
FRIÐRIK A. JÖNSSON
Sími 4135. Garðastræti 11. Reykjavík.
Þvottaduftið góða9
sem fer sigurför um landið
llit TBORG
Niðursuðiivöriir
Fiskur
Síld
Græuniefi
Framleitt undir opinberu eftirliti.