Samtíðin - 01.06.1955, Síða 20

Samtíðin - 01.06.1955, Síða 20
16 SAMTÍÐIN ^4á w ■Lóverd yrem a wululU a. Afbrotamennirnir óttast þöglu vitnin mest TÆIvNIDEILDIR rannsóknarlög- reglunnar í nútímaþjóðfélögum vinna um þessar mundir mikið og athyglivert starf í baráttunni við afbrotafólkið. Ekkert óttast þetta ógæfusama fólk meira en afrek tæknisérfræðinganna, sem láta hin þöglu vitni tala. Skyldu menn hafa gert sér grein fyrir því, að á rithönd sérhvers manns eru einkenni, sem ekki fyrirfinnast nema hjá einum manni af hverjum 100.000? Og ætli menn viti, að ritvélin þeirra getur verið þeim enn hættulegri en rit- höndin? Afbrotamenn óttast fingra- för sín mest af öllu. Þeir vita af miklu umtali og síendurteltnum hlaðaskrifum, að. fingraför á af- brotastöðum jafngilda oft og einatt því, að glæpamaðurinn hafi skilið þar .eftir nafn sitt og heimilisfang. En það eru lil margs konar nafn- spjöld, ef við viljum viðhafa það orð í þessu sambandi. Enda þótt menn- irnir virðist næsta líkir fljótt á litið, eru þeir ótrúlega ólikir. Þetta vita sakamálasérfræðingarnir manna bezt. Vísindagrein þeirra hefur á síðustu tímum farið svo mikið fram, að telja má, að dagar hinna „óskeik- ulu afbrotamanna“ séu nú alveg taldir, sem betur fer. ★ Óafmáanleg- spor LEYNILÖGREGLUMENN nútím- ans segja: Ef þú ætlar að fremja af- brot og heldui’, að þú getir dulizt okkur, skaltu hafa þetta hugfast: Þú ert í blóðflokki, sem ekki verð- ur breytt. Sú staðreynd getur komið upp um þig. Við mundum verða að rannsaka fingraför fi'i-OOO miltj. manna, áður en við rækjumst á för, sem væru al- veg eins og þín. Tennur fólks eru svo ólikar, að skoða verður upp í milljónir manna til að fiiuia tennur tveggja manna af nákvæmlega sömu gerð. Hár þitt er sérkennilegra en þú heldur. Sú staðreynd getur jafnazt á við nafn þitt og heimilisfang í höndum tæknilögreglunnar. Hrákar og líkamsvessar geta einn- ig komið upp um afbrotamenn. Visindamenn geta gert sér grein fyrir stærð manns, ef þeir hafa eitt bein úr líkama hans fyrir sér. Af þvi er hægt að reikna út hæð manns- ins með vísindalegri nákvæmni, sjá, lwort karl eða kona á hlut að máli o. s. frv. Þá er rykið eitt hinnu þöglu vitna, og ryk sezt alls staðar, eins og menn vita. Það má rekja feril byssukúlunnar til byssuhlaupsins og hnífsstungunn- ar til hnífsins. Eitur er einnig hægt að þekkja. Næstum þvi hver maður hefur sér- kennilegt göngulag. Þess vegna get- ur sérhvert fótspor komið upp um afbrotamanninh.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.