Samtíðin - 01.06.1955, Síða 28
24
SAMTÍÐIN
pathétíque, sem hann hefur sainið?“
„Jú, það er svo sem ljómandi falleg
sónata, en hvað annað hefur hann
líka samið, sem orð er á gex-andi?“
„Þekkið þér ekki Kvartettana
hans?“
„Jú, og ég viðurkenni, að þeir eru
góðir. En gömul hárkolla! Það finnst
mér nú bvsna hart. Og fyrir utan
þessa kvartetta veit ég ekki til, að
hann hafi samið neitt að gagni.“
„En Septúcrinn?“
„Jú, hann er náttúrlega alveg stór-
kostlegur.“
„Og sónatan, sem hann tileinkaði
Bónaparte.“
„Jú, göfug, stórkostleg!“
„En Symphcnie pastorale?“
„Alveg guðdómleg! En mér er al-
veg sama. Gönml hárkolla! Jæja,
ætli ég verði ekki annars að fá mér
nýja?“
------•-------
Það er sac/t, cið þau sannindi séu
eilif, sem enginn veit sönnur á, en
ómögulegt er að afsanna.
Heilbrigðismálaráðherra var að
skoða geðveikrahæli uppi i sveit og
þurfti nauðsynlega að síma. Honum
gekk bölvanlega að fá sambatid við
bæinn. Loks missti liann þolinmæð-
ina og hrópaði: „Því í fjandanum
fæ ég ekki númerið, sem ég er að
biðja um? Vitið þér ekki, hver ég
er?“
„Nei,“ var svarað, „en ég veit,
hvar þér eruð.“
Allar ferðir hefjast í O R L O F
Ferðaskrifstofan 0 R L 0 F h.f.
Hafnarstræti 21. Reykjavík. Sími 82265.
Tjöld
Sólskýli!
ávallt fyrirliggjandi
í öllum stærðum.
Saumum einnig eftir
pöntunum allar tegundir
GEYSIR H.F.
Veiðarfæradeildin