Samtíðin - 01.06.1955, Qupperneq 29
SAMTÍÐIN
25
Wýjar eríeh<(ar kœkur
BONNIERS FORLAG í Stokk-
hólmi hefur sent okkur þessar bæk-
ur:
Holger Ahleniiis: Fem ár med
Thalia. Frán Stockholms teatrar
1948—1953. Það er fengur að fá í
stærðar bók leikdóma þá, er dr.
Ahlenius hefur birt í tímaritinu Ord
och Bild. Lesandinn öðlast yfirlit um
nálega allt, sem Stokkhólmsleikhúsin
hafa sýnt á 5 árum, og bókin er ekki
veigalítil „dramatúrgía“, þeim mun
meira virði sem höf. er ekki einungis
margvís leiklistarunnandi heldur og
snjall bókmenntagagnrýnandi. 284
hls., ób. s. kr. 16.50.
Ella Heckscher: Sláktforskning.
Kort handledning för amatörer. —
Þessi ágæta handbók fyrir hvern
þann, er stunda vill ættfræðirann-
sóknir, minnir Islendinga á, að enn
skortir þá viðlíka leiðarvísi í þeim
fræðum. Bókin leiðbeinir á ýmsa
vegu, margvíslegar heimildir eru
metnar og not þeirra skýrð og skil-
greind. Þetta er 2. útgáfa. 81. bls., ób.
s. kr. 5.75.
Einar Modig: Diplomattjánst med
mellanspel. En memoarbok. Þetta er
sjálfsævisaga kunns sænsks sendi-
herra og kaupsýslumanns, sem
einnig hefur auga fyrir náttúrufeg-
urð og öðrum dásemdum veraldar-
innar. Við kynnumst viðhorfum
sendiherrans, gagnólíku umhverfi
hans meðal Þjóðverja, Suður-Amer-
íkumanna og Tyrkja, og er á því
nokkuð að græða. En af því að Sir
R. H. Brucc Lockhart o. fl. hafa veitt
Höfum ávallt
fyrirliggjandi
fyrsta flokks
barna- og
kvenfatnað
Verðið
mjög
hagkvœmt.
VERZLUNIN
EROS
Hafnarstræti 4.
Sími 3350.
SAMTÍÐIN krefst
SAMVINNU
Gœtið hagsmuna yðar og
takið þátt í neytenda-
samtökunum.
Með því TRYGGIÐ þér
yður RÉTT verð
vörunnar.
Versliö viö