Samtíðin - 01.02.1953, Síða 17
SAMTÍÐIN
13
mannanna. Þó að margt sé spillt og
rangt í athöfnum þeirra og hugsun-
um, þá eiga þeir mörg heillandi við-
horf til lifsins. Sannleikurinn segir:
Eins og maðurinn sáir, mun hann
uppskera. Og maðurinn er á leið til
sannrar menningar. Þú ert i fram-
vindu þróunarinnar, mótar þann
efnivið. Ég veit allt. Lífið er fjölþætt.
Upphaf og eðli þess er kærleikurinn.
Og kærleikurinn sigrar“
EVA HVARF aftur til jarðarinnar,
djörf og vonglöð, hvatti til dáða og
drengskapar.
Hún er í tíma og rúmi, hvislar
fegurðinni í sálir mannanna, hjalar
í vindhlænum, í lækjarniðri, i skini
sólarinnar, i ym bárunnar, í vor-
þeynum, í angan blómanna, í fossa-
hljómi og gróðrardögg.
Og gegnum hávaðann frá vopna-
gný og dægurþrasi heyrast stundum
lágværar raddir leitandans, sem eyg-
ir veginn til þroskans og sannleik-
ans. Þær raddir eru skærar og hreim-
þýðar, eins og hringt sé silfurbjöll-
um:
„Þökk sé þér, Eva, misskilda, göf-
uga kona, móðirin, sem svo margir
bannfæra, en drottinn alfaðir bless-
ar“.
„Samtíðin“ greiðir yður 5 kr. fyrir
útvegun hvers nýs áskrifanda, ef þér
sendið árgjald hans með pöntun.
Haldið ómakslaununum eftir.
ALLAR BÍLAVÖRUR
verður hagkvœmast að kaupa hjá
KRISTNI GUÐNASYNI
Klapparstíg 27. — Sími 2314.
♦ Spurt og svarað >
T ÞESSUM þætti er leitazt við að
svara spurningum frá lesendum
„Samtíðarinnar.“
Spilamaður spyr:
„Getur „Samtíðin“ frætt mig um,
hver er merking orðsins L’hombre
eða lomber eins og spilið er kallað í
daglegu tali?“
Svar:
L’hombre merkir: maður, sem
keppir eða á í höggi við tvo. Fjórði
og blindi mótspilarinn kom til, er
spilið tók að öðlast vinsældir i
klaustrum. Munkarnir urðu þá að
hafa fjórða manninn til að vera á
verði, til þess að ekki yrði komið að
þeim óvörum. L’hombre er 600 ára
gamalt spil og hefur litlum breyt-
ingum tekið allan þennan óratíma.
Ferðalangur spyr:
„Geturðu, Samtíð góð, sagt mér,
hvar stærsti flugvöllur heimsins er?“
Svar:
Hann heitir Idlewild og er í New
York eða nánara til tekið við Jamaica
Bay á Long Island. Völlurinn var
gerður á votlendi. Hann nær yfir nál.
1800 ha svæði og 68 millj. rúmmetra
af sandi var dælt upp úr sjónum til
að fylla hann með. Flugvallargerðin
hófst í apríl 1942 og var henni lokið
á jólaföstu 1948. Rennibrautir vallar-
ins eru 6 að tölu, frá 2600 til 2900 m
á lengd og nál. 65 m breiðar.