Samtíðin - 01.02.1953, Qupperneq 21
SAMTÍÐIN
17
KRISTIN SNÆHÖLM A£) STARFI I EULLFAXA
hvað 50 öðrum stúlkum og var svo
heppin að verða fyrir valinu. Þá
átti félagið enn enga millilandaflug-
vél, en við flugum í skozkri fjögra
hreyfla leiguflugvél milli Kaup-
mannahafnar, Prestwick og Reykja-
víkur. Þegar ég réðst til F. 1., var
aðeins ein flugfreyja í þjónustu fé-
lagsins, Sigríður heitin Gunnlaugs-
dóttir. Hún var fyrsta íslenzka stúlk-
an, sem gegndi hér flugfreyjustarfi.
Ég skal geta þess, að áður en ég
byrjaði starf mitt hjá F. I., var ég
nokkurn tíma á vegum félagsins hjá
Scottish Airlines í Prestwick og
hlaut þar mjög hagkvæma þjálfun í
ýmsum greinum. Hún hefur seinna
komið mér að miklum notum, og ég
vona, að aðrar flugfreyjur, yngri i
starfinu, sem ég hef veitt undirbún-
ingstilsögn, hafi einnig orðið hennar
aðnjótandi“.
„Ég þykist vita, að starf yðar sé
stundum vandasamt“.
„Þar er margs að gæta. Yður að
segja getur komið fyrir, að maður
sé eins og milli tveggja elda. Fyrst
og fremst verður að framfylgja öll-
um öi-yggiskröfum af flugfélagsins
hálfu, en það ber við, að þessar