Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 18
18 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2009
en meðalfyrirtæki á heimsvísu.
Þrjú hundruð þúsund sálir sem
sitja á gullkistu; er svo lítill hópur
að væri hann smábær í Ameríku
kæmist hann varla á vegakort. Er
til of mikils mælst af hálfu þjóðar-
innar að „forystumenn“ svonefndra
stjórnmálaflokka setjist saman í
tvo daga í lokuðu fundaherbergi og
fari yfir eitt lítið excel-skal saman?
Kostirnir í stöðunni rúmast nefni-
lega á einu skjali fyrir einn fund.
Þetta eru ekki góðir kostir, þeir eru
ekki margir og tiltölulega einfaldir
ef menn týna sér ekki í smáatrið-
um. Ég hefði viljað þjóðstjórn fyrir
ári og allar götur síðan. Stjórn-
málaflokkarnir sem komu okkur í
þessa hörmung skulda okkur sam-
stöðu en ekki örlagaþras. Er hægt
að semja um vopnahlé í íslenskum
stjórnmálum meðan við hreinsum
út? Út kjörtímabilið? Nei, því brýn-
ir hagsmunir standa til þess að búa
til heimabakað öngþveiti sem eign-
ast sitt sjálfstæða líf og nærist á
sjálfu sér. Eins og deilurnar í Mið-
Austurlöndum: „Deilurnar á Mið-
Austurvelli.“ Fólk spyr: Hvernig er
hægt að efna til svo mikils sundur-
lyndis að auðævum okkar og fram-
tíðarmöguleikum er teflt í hættu
með rifrildi? Svarið er: Vegna
þess að græðgin í völd, fé og met-
orð gefst aldrei upp. Auður okkar
er svo mikill að einskis er svifist.
Hrunið var klúður. Að klúðra end-
urreisninni, vitandi það sem við nú
vitum, er ófyrirgefanlegt um allan
aldur.
Kostirnir í stöðunni
„Eins og lífið sé einhver keppni
sem hægt er að vinna. Þetta er allt
svo leiðinlegt og andlaust og glat-
að eitthvað. Maður fer að halda að
hrunið hafi ekki verið nógu skelfi-
legt til að breyta einhverju. Gamla
settið sem reifst eins og riðuveikar
rollur alla leið inn í hrunið heldur
gjamminu áfram upp úr hruninu.
Ekkert hefur breyst. Enginn lærði
neitt. Enginn lítur í eigin barm.
Enginn tekur til í garðinum sínum.
Allt er við það sama. Valdarúnk á
Rúnklandi.“ Dr. Gunni.
Ástæðan fyrir því að ekki er
hægt að skapa friðarferli um end-
urreisn Íslands er sú að rifist er
um dánarbúið. Það eru beinir pól-
itískir og efnahagslegir hagsmunir
á bak við sundrungar- og óttaöfl-
in, þá sem vilja drepa fólk í dróma
og svipta trú á Ísland. Afkomend-
ur Gamla Íslands hegða sér eins og
vogunarsjóðir og spákaupmenn:
taka stöðu gegn gengi ríkisstjórn-
arinnar og á yfirborðinu eru deil-
urnar látnar snúast um þrennt:
Við þurfum ekki að borga
ICESAVE. Við þurfum ekki aðstoð
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS)
og við þurfum ekki að hefja við-
ræður við Evrópusambandið (og
við þurfum ekki nýjan gjaldmiðil).
Allt eru þetta heiðarleg og eðlileg
álitamál og nægilegt efni í lýðræð-
islega umræðu. Með mismunandi
hætti hefur núverandi ríkisstjórn
tekið þessi mál og gert að sínum.
Vandinn er að í þeirri þrálátu
umræðu sem geisar örlar hvergi,
hvergi nokkurs staðar, á því að
andstæðingar bendi á aðra kosti.
Ekki semja um ICESAVE? Hvað
þá? Málaferli allra innistæðueig-
enda þar sem um er að tefla miklu
hærri upphæðir en Íslending-
ar hafa samið um að borga. Hver
vill ábyrgjast niðurstöðu í þeim?
Ef við svíkjum loforð allra máls-
metandi ráðamanna Íslands, bæði
fyrir og eftir Hrun, um að semja
um ICESAVE, fellur niður efna-
hagsaðstoð frá AGS og öll önnur
fyrirgreiðsla. Hvað þá? Hvar erum
við þá stödd með stóra skuldadaga
ríkisins framundan, hvar fáum við
gjaldeyri til að kaupa bensín á bíl-
ana og olíu á togaraflotann? Hver
hefur bent á aðra leið, sem er þess
virði að íhuga? Að láta Davíð Odds-
son rífa kjaft við útlendinga? Við
höfum séð hverju það skilar. „Að
standa á eigin fótum“ og „taka
skellinn núna“ er ekki leið, heldur
ræðumennska. Ég bý í landi sem
stríðir við gjaldeyrisskort: Mal-
aví á ekki fyrir bensíni á bílana og
langar raðir við dælur, fyrirtæki
fá ekki hráefni til framleiðslu því
erlendir viðskiptamenn heimta
staðgreiðslu, ferðamenn fá ekki
farareyri því bankar eru tómir,
fólk kemst ekki í vinnu og for-
setinn biður almenning að kaupa
ekki „óþarfa“ – allt sem innflutt er.
Þetta örsmáa fátæka hagkerfi tap-
aði 100 milljörðum króna á einum
mánuði vegna gjaldeyrisskorts. Og
bændur óttast að fá ekki áburð eða
fræ þegar sáningartími hefst.
Ef menn vilja ekki skera jafn
brjálæðislega niður hjá ríkinu og
AGS vill meina að þurfi, hvar ætla
menn að fá peninga fyrir fjárlaga-
hallanum? Á hvaða kjörum? Hvað
ESB varðar er skiljanlegt að þjóð-
in sé mjög efins. En nú á ekki að
ákveða inngöngu og hún verð-
ur aldrei nema þjóðin samþykki.
Hér er efnt til viðræðu um hvaða
kostir bjóðast innan ESB. „Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að sjálf-
stæðismenn hafi komist að þeirri
niðurstöðu að ekki sé um neitt að
semja sem ásættanlegt er við Evr-
ópusambandið. Af því leiðir að nið-
urstaða aðildarviðræðna við ESB
verði óásættanleg“ (Pressan.is nóv
2009)
Hvers vegna óttast menn þær
upplýsingar sem viðræður leiða til
og vilja forða þjóðinni frá þeim?
Nei, umræðan snýst ekki um
kjarna málsins: Góssið. Halda
menn í alvöru að allar þjóðir Evr-
ópu hafi gert samsæri gegn Íslandi
upp úr þurru með „umsátri“ og
Jóhanna og Steingrímur geng-
ið þeim á hönd í aumingjaskap?
Meðan fólkið í stjórnarandstöðu
innan ríkisstjórnar og utan getur
ekki borið fram aðra raunhæfa
kosti um það hvað gera skuli hefur
Steingrímur Joð rétt fyrir sér. Með
alla storma heimsins í fangið og
spjótalög samherja í bakið hefur
hann rétt fyrir sér, rétt fyrir sér,
aftur og aftur.
Mistökin
Þjóðin mat stöðuna rétt í vor. Það
var bara tveimur stjórnmála-
mönnum til að dreifa að ganga í
uppvaskið: Jóhönnu og Steingrími
Joð. Þeim er vorkunn sú glíma,
hafa gert sumt vel, en þeim hefur
líka orðið á. Mistökin með ICESA-
VE voru að taka ekki alla flokka á
Alþingi með inn í viðræðurnar (til
upplýsingar og aðhalds baka til á
hverju stigi málsins) uns það var
tækt að fara til Alþingis. Alþjóðleg-
ir milligöngumenn hefðu aftengt
hina íslensku þrætuhefð. Það var
bráðnauðsynlegt að koma málinu
upp úr skotgröfum og búa til nýja
samræðulausn eins og vænta má
í draumum um Nýja Ísland. Þess
í stað lenti málið í sandkassanum
miðjum og afhjúpaði Alþingi sem
óburðuga skrílstofnun með fram-
míköllum, dónaskap og málþófi
til að tefja tímann rétt eins og af
honum sé nóg fyrir þá sem þurfa
að borga húsnæðislán og finna
atvinnu.
Einnig þessi tortryggni öll í
kringum bankana. Hver er Finnur
Sveinbjörnsson og hvers vegna er
það hans mál hvort gamli fáveldis-
hringurinn fái að selja okkur brauð
og mjólk? Einhverjir baktjalda-
menn í „skilanefndum“ reisa lifend-
ur frá dauðum með nýjum kenni-
tölum, reka samkeppni við þau fáu
fyrirtæki sem ekki eru í öndunar-
vél og „selja upp út um bakdyrnar“
eins og Megas hefði orðað það án
þess að við vitum nokkuð um nýja
eigendur.
Og kreppan á stjórnarheimilinu.
Fólk treystir ekki þeim sem treysta
sér ekki sjálfir. Við nefnum engin
nöfn en svona aðstæður kalla á
stjórn sem talar skýrum rómi frá
J til Ö. Og svakalegur niðurskurð-
ur framundan.
Skrefin fram á við
Loks
loguðu eldar
við Alþingi
Loks
fékk fólkið
rödd
Hása, reiða
Rödd hins svikna
vanmáttuga
Rödd vantrúar
hins nývaknaða
af værð og doða
(Sindri Freysson, Ljóðveldið
Ísland)
Hvernig stendur á því að í hvert
skipti sem maður lætur sig dreyma
um Nýja Ísland lendir maður í að
hugsa um gamla flokkakerfið?
Vegna þess að það er enginn
annar farvegur. Íslenskt samfélag
er kassi með fjórum veggjum sem
við hlaupum á til skiptis. Við lifum
í rústum þess gamla og reynum að
láta okkur dreyma um það nýja.
Hver er leið Alþingis til móts við
„hinn nývaknaða“ sem er svikinn,
vanmáttugur og með þokukennd-
ar hugmyndir um nýjan himin og
nýja jörð? Alþingi verður að skilja
að á því hvílir sú bölvun sem best
er lýst með hinu fornkveðna: „Þið
eruð ekki þjóðin.“ Traustið brann
með jólatrénu á Austurvelli. Hinn
svikni, reiði og vanmáttugi verð-
ur að fá hlutverk í sköpun Nýja
Íslands. Tvennt gnæfir þar yfir
við sjónarrönd á nýju ári: Hreins-
unareldurinn og Sköpunin. Skýrsla
rannsóknarnefndarinnar og gerð
nýrrar stjórnarskrár.
Hreinsunareldurinn
Verstu fréttir sem nokkur nefnd
getur fært þjóð sinni.
(Páll Hreinsson, formaður rann-
sókarnefndar um Hrunið).
Hver verða viðbrögð við verstu
fréttum sem nefnd getur fært
þjóð sinni? Erum við þjóð í álögum
Gamla Íslands, þöggunar og lokun-
ar? Eða tökum við Konung þagna-
samsæranna á orðinu þegar hann
segir í umsátri reynslu sinnar: Það
verður að galopna kerfið? Þá dugar
ekki bara að galopna í rafrænum
kosningum um hvar eigi að leggja
bílum í Grafarvogi, heldur hvern-
ig við tökum á Grafarþögninni sem
alltaf umlykur allt sem úrskeiðis
fer. Þótt skýrslan sé að formi til
Alþingis, er Alþingi hluti af sak-
bendingunni. Færið umræðuvaldið
til fólksins. Ef ekki, verður migið á
hreinsunareldinn úr skúmaskotum
Gamla Íslands þar til reykurinn og
fnykurinn fæla alþýðu fólks end-
anlega frá því að taka þátt í þessu
„helvítis fokking fokki“.
Sköpunin
There is a crack in everything
that’s how the light gets in.
L. Cohen
Orðfærið og samskiptin bera
þess vitni að samfélagið er fullt
streitu og þreytu. Alþingi og rík-
isstjórn hafa ekki undan að moka,
það er ekkert grín að standa í þessu
og álagið gífurlegt. Á alla. Skiljan-
legt að stjórnmálamönnum nægi
hverjum degi sín þjáning. Afrek
að koma þó Evrópusambands-
viðræðunum á rekspöl við þess-
ar aðstæður. En við verðum líka
að búa í haginn heima. Ástandið
hefur versnað á rúmu ár frá Hruni
í valdatíð þriggja ríkisstjórna. Ef
stöðugt sígur á ógæfuhlið lend-
um við í stærri og meiri ógæfu en
peningaskuldum. Samfélagshruni.
Þarf ástandið að versna enn meira
áður en það getur batnað?
Í ár voru 20 ár frá hruni, annars
konar hruni, hruni Berlínarmúrs-
ins og ógnarstjórna. Flauelsbylt-
ingar fólksins gerðu það sem eng-
inn hélt að væri hægt. Við vitum
að allt er hægt og við þurfum ekki
að láta vont versna. Ég skrifaði
2005 að markaðsvæðingunni væri
lokið, hið sögulega hlutverk jafn-
aðarmanna væri lýðræðisvæðing.
Nú má það ekki dragast. Verkefn-
ið er ný stjórnarskrá. Með nýrri
stjórnarskrá felst bylting sem
vekur óhug hjá kjörnum fulltrú-
um. Nefnilega, að þeim sé veitt
aðhald. Horfum á þrjú dæmi: Fjöl-
miðlafrumvarp Davíðs, ruglið í
borgarstjórn með Ólaf F. Magnús-
son sem borgarstjóra Sjálfstæðis-
flokksins, og síðan Búsáhaldabylt-
inguna. Einhver myndi vilja bæta
ICESAVE við. Fulltrúalýðræðið
hefur sýnt takmörk sín. Samtök
borgara verða að eiga möguleika
á því að hrinda fráleitum hrossa-
kaupum, geðþótta einstaklinga
og þrásestu vanhæfra. Aðalverk-
efni stjórnlagaþings verður að
setja forstokkuðu flokkafulltrúa-
ræði skorður og opna alþýðu leið
að ákvörðunum. Það þýðir að
Alþingi og ríkisstjórn verða að
gefa eftir. Væri betur að löggjaf-
inn tæki sig til og einbeitti sér að
sínum vanda: Að setja ráðherr-
aræði og flokksformannaveldi
fjötra. Nú þarf að hugsa alveg
upp á nýtt hvernig við eignumst
nýja stjórnarskrá. Ráðgefandi 30
manna stjórnlagaþing í samtals
þrjá mánuði með handlöngurum
flokkseigenda og uppgjafaþing-
manna í bland við ungliða? Þetta
er flóknara en svo. Í þessu efni er
leiðin að markinu jafn mikilvæg
og markmiðið sjálft, því við þurf-
um stjórnarskrá sem þjóðin á frá
upphafi til enda. Þetta er vanda-
samt ferli sem kallar á mikið pól-
itískt úthald.
Hlutverk stjórnmálamanna er
ekki nú að útfæra Nýja Ísland í
þaula heldur greiða götur þeirra
afla sem með þjóðinni búa. Þjóð-
fundurinn var gott frumkvæði,
notum skýrslu rannsóknarnefnd-
arinnar til að opna allt upp og
lofta út, höldum fram á veg til
að þjóðin geti loks fengið eigin
stjórnarskrá sem færir henni
aukin og beinni völd. Þetta er
ferð án fyrirheits en hana verður
að fara. Við vitum ekki öll svör-
in, en hægt er að greiða leiðir að
þeim. Nýja Ísland er ekki þekkt
stærð. Nýja Ísland er niðurstaða
úr erfiðu ferli sem nú verður að
hefjast. Nú verðum við að þora að
ímynda okkur annað og meira en
það lík sem bíður þess að verða
vakið frá dauðum. Það þarf gríð-
arlegt pólitískt hugrekki til að
ryðja þessa braut. Verði sú ekki
raunin rís líkið af börum sínum
og þá verða upphafsorð þessa
máls að áhrínisorðum: Við stund-
um því upp að við hefðum barist
fyrir nýjum himni og nýrri jörð og
þeir þökkuðu okkur góðfúslega og
sömdu sinn frið.
SAMSTAÐA „Stjórnmálaflokkarnir sem komu okkur í þessa hörmung skulda okkur samstöðu en ekki örlagaþras. Er hægt að semja um vopnahlé í íslenskum stjórnmálum
meðan við hreinsum út?“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON