Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 31

Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 31
MÁNUDAGUR 28. desember 2009 Gamlárskvöld er mörgum eftirminnilegt. Flugeldar, fjölskyldan, vinir, kampa- vín, söngur og góður matur. Hættan er þó sú að minningum hinna fjölda- mörgu ára verði ruglað saman. Hverjir voru í hvaða partíi og hvenær, hvaða matur var á boðstólum og þar fram eftir götunum. Góð leið til að halda utan um áramótaminningar er að búa til sérstakt áramótamyndaalbúm. Þar er hægt að geyma myndir sem teknar eru á gamlárskvöld og nýársdag. Jafnvel mætti bæta þar inn í jólamyndunum. Þar með væri þar komin stór bók með heimildum um jóla- og áramóta- hald fjölskyldunn- ar sem börnin og barna- börnin hefðu gaman af. Nýársminningar geymdar í bók ÁRIN FLJÚGA ÁFRAM OG STUNDUM ER ERFITT AÐ MUNA HVAÐ GERÐIST UM HVER ÁRAMÓT. ÞÁ ER GOTT AÐ FINNA LEIÐ TIL AÐ HALDA UTAN UM MINNING- ARNAR. Ýmislegt er hægt að gera til að gera dýrum lífið bærilegra á gamlárskvöld þegar sprengingarnar duna. Gæludýr verða oft yfir sig hrædd þegar árið er sprengt út með hávaða og látum en róleg tónlist í kringum þau getur dregið úr angistinni. Sama gildir um hross. Gott ráð að hafa þau inni við og kveikja á útvarpi eða hljómflutningstækjum hjá þeim. Hundar verða almennt hræddari við sprenging- arnar en kettir og til að minnka stressið hjá þeim er gott að fara með þá í góðan göngutúr utan þéttbýlis fyrri part gamlársdags. Þegar mestu ósköpin ganga á um kvöldið er ráðlegt að draga fyrir glugga því dýrin óttast bæði hvellina og ljósin sem af flugeld- unum stafa. Ekki er gott að sýna dýrunum of mikla vorkunnsemi heldur tala til þeirra og veita þeim þannig öryggi. Tónlist og tal róar dýrin Huga þarf að ferfætlingunum þegar flugeldar og bombur springa. Kínverjarnir sem springa án af- láts á þessum tíma árs eiga ekki langt að sækja nafnið. Óljóst er hvenær púður var fundið upp en víst er að þar voru Kínverj- ar að verki. Flugelda er fyrst getið í heimildum í Kína frá 7. öld eftir Krist en þá voru háværir hvellirnir notaðir til að fæla burtu illa anda. Á 3. öld eftir Krist uppgötvuðu Kínverjar að ef grænum bambus- sprotum var hent á bál þá sprungu þeir með miklum látum. Þetta gerist vegna loftfylltra poka sem myndast í bambusnum vegna þess að hann vex svo hratt. Á sjöundu öld segja heimildir frá kínversk- um alkemistum sem höfðu fundið upp púður sem brann með miklum loga. Það innihélt saltpéturssýru, brennistein og kol. Fljótlega var farið að fylla bambushólka með púðrinu og sprungu þeir með hvelli og blossa. Á þrettándu öld hófu Kínverj- ar að búa til hylki úr stífum pappa sem þeir höfðu opið í annan end- ann. Stýrisuggar voru settir á hylk- ið og fyrsti flugeldurinn tók sig á loft. Ítalir og Bretar tóku síðar við keflinu og þróuðu flugelda eins og við þekkjum þá í dag. - ve Fundnir upp á 7. öld Á sjöundu öld var farið að fylla bambus- hólka með púðri og sprungu þeir með hvelli og blossa. Söluaðilar.: Járn og gler - Garðheimar - Húsasmiðjan www.weber.is Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan www.weber.is Staðurinn - Ræktin telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n TT átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri TT tímar í boði: 6:15 – mán, mið, fös 7:20 – mán, mið, fös 10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun 12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun 14:20 – mán, mið, fös 16:40 – mán, mið, fös - Barnapössun 17:40 – mán, mið, fös - Barnapössun 18:25 – TT3 mán, mið - (16-25 ára) 18:40 – TT3 mán, þri - (16-25 ára) 19:25 – mán, mið, fim (18:25) Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 10. janúar kl. 15:00 og 16:00 Velkomin í okkar hóp! NÁMSKEIÐUM FYLGIR FRJÁLS MÆTING Í TÆKJASAL Námskeið hefjast 11. janúar Innritun hafin í alla TT flokka, sími 581 3730

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.