Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 44

Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 44
BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur 36 28. desember 2009 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman 13. nóvember 2007 Heimsmeist- arinn í feluleik árið 1975 finnst loksins. Ertu búinn að kíkja á nýja vakta- planið, Pondus? Þú ert á nokkr- um dimmum næturvöktum á leið 43! Það efa ég! Ég var rétt í þessu að segja upp. Segja upp?! Hvað með leið 43? Já. Ég mun taka yfir barinn. You‘re on your own, kids! Ekki að keyra strætó? Rétt! Hver á þá að keyra leið 43? Það mun einhver annar gera, Ívar. Eigum við eftir að sjá þig ein- hvern tímann aftur? Húgó! Við vitum hvar barinn er. Við erum þar næstum daglega. Það er satt. Þar getum við fært þér fréttir af leið 43. Takk og guði sé lof. Get ég feng- ið álit hjá þér varðandi eitt? Auðvitað. Mér finnst öfugt við það sem þér finnst. Ertu viss? Alveg viss. Nú, jæja. Mundu það í næsta sinn þegar þú kaupir föt á mig. Allt í lagi, ég er búin að gera bökurnar en ég á enn eftir að kaupa í fyllinguna. Af hverju gerir þú svona mikið mál úr þakkar- gjörðarmáltíðinni? Skelltu bara kalkúninum inn í ofninn og þar með er það búið! Mig vantar þá í fyll- inguna, kál, ber … Lof mér að útskýra... GÓÐAR FRÉTTIR Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur- horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg. Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði. Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði vinsamlegast hafi samband við Pósthúsið í síma 585 8300. Patreksfjörður Bakkafjörður Raufarhöfn Sauðárkrókur Víðigerði Stöðvarfjörður Skagaströnd Hrísey Grundarfjörður Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði: Nú er Fréttablaðið aðgengilegt hringinn í kringum landið. Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi Bakkafjörður Mónakó Baula Verslun Blönduós N1 Potturinn og pannan Dalvík N1 – Olís Egilsstaðir N1 Eskifjörður Shell skáli Kría veitingastaður Fellabær Olís Hella Olís Hellissandur Hraðbúð N1 Shell Húsavík N1 – Olís – Shell skáli Hvolsvöllur N1 – Söluskálinn Björk Höfn N1 – Olís Ísafjörður N1 Kópasker Búðin Kópasker Hrísey Eyjaljósið Neskaupstaður Olís Ólafsfjörður Olís Ólafsvík N1 – Olís Patreksfjörður Grillskálinn Patreksfirði N1 Raufarhöfn Verslunin Urð Reyðarfjörður N1 – Olís – N1 Rif Umboð Shell / Tandur Sauðárkrókur N1 – Shell skáli Hlíðarkaup Siglufjörður Olís Skagaströnd Olís Staðarskáli N1 Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður Víðigerði Verslunin Víðigerði Vík N1 Vopnafjörður N1 Þórshöfn N1 Allt sem þú þarft... Hægt er að fá Fréttablaðið sent frítt í tölvupósti á morgnana eða nálgast það á Visir.is. Grundarfjörður Hrannarbúð Aðventustreitan kom eins og himnasend-ing inn í kalið hjarta samfélagsins. Að minnsta kosti frá síðustu jólum höfðum við mest verið fjúkandi reið, bitur, sár, dofin og brjáluð; það eitt og sér er sligandi til lengd- ar. Svo jólaannirnar voru þrátt fyrir allt kærkomið tækifæri fyrir væmnu tilfinn- ingarnar sem höfðu legið næstum ónotaðar í brjóstkassanum of lengi. Enda voru þær dálítið stirðar í gang svo um tíma vakn- aði uggur um að allar sykursætar kenndir hefðu hrunið með genginu en sá ótti reynd- ist sem betur fer ástæðulaus. ÞVÍ einmitt í desember er upp- lagt að klökkna svolítið. Eftir allt saman reyndist mitt eigið hjartnæma tilfinningaróf mjög vel nothæft, það uppgötvaðist á sérstakri jólafimleikasýningu Gróttu. Þar táraðist ég auðvit- að yfir minni eigin dóttur sem er sjálfsagður réttur hverrar móður, hvað hún var hugrökk, sterk og fim, svona lítil! Og fyrst ég var nú einu sinni komin í gang þá grét ég líka hástöfum yfir öllum hinum fimleikabörnunum sem eru tvö hundruð talsins. Það var agga smá vandræðalegt að grenja svona yfir að ókunnugir unglingar gætu farið í splitt og brú, en útrás- in var á við marga fokdýra sál- fræðitíma. Undir hjartahlýju og umburð- arlyndi desembermánaðar kyntu svo jólalögin alla daga, skreytt með röndóttum brjóstsykurstöfum, glimmeri og piparkök- um. Og yfir nógu var að klökkna til viðbót- ar við börnin, til dæmis hjálparstofnunum, eldgömlum jólaföndurskreytingum, ástrík- um kveðjum í Ríkisútvarpinu, friðargöngu á Þorláksmessu og sígildri endursýningu heima í stofu á Love Actually. EFTIR markvissan upptakt að jólum allan mánuðinn er endir bundinn á dásemdirnar einmitt í dag. Í fréttatímum dagsins verður skautað hratt yfir sætu fréttirnar og krútt- legu stemminguna sem er líka kannski að verða dáldið þreytt, því öll áherslan verður á æsispennandi hátíðarútgáfu af umræð- um um Icesave. Tíðindi dagsins verða þannig álíka jólaleg og hressileg gubbu- pest. Óþarfa ást á mannkyni öllu ætti því ekki að há okkur mikið lengur. Sjálfri mér til hróss vil ég taka fram að þetta er í eina og síðasta skiptið í bakþönkum mínum sem ég skrifa orðið Icesave. KÆRAR þakkir fyrir að umbera pistlana mína svona lengi en eftir næstum fjögurra ára regluleg skrif í þennan dálk hef ég nú ákveðið að segja þetta gott. Takk fyrir ótal kveðjur, takk fyrir mörg bréfin, takk fyrir öll fallegu orðin. Og nú klökkna ég smá að lokum. Klökkar kærleikskveðjur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.