Fréttablaðið - 28.12.2009, Page 50
42 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
3. janúar – Ódýrt spaug
Í byrjun janúar bárust þær
fréttir að áramótaskaupið hefði
kostað 26 milljónir. Silja Hauks-
dóttir, leikstjóri Skaupsins, fékk
því fjórum milljónum minna
til ráðstöfunar en Ragnar
Bragason árið áður.
4. janúar – Björk á heilsuhæli í
Litháen
Björk Guðmundsdóttir glímdi við
erfiðleika með rödd sína. Hún fór
til Englands daginn eftir Náttúru-
tónleikana þar sem hún dvaldi
næstu tvær vikurnar og hitti
sérfræðinga. Eftir það var hún á
heilsuhæli í Litháen.
15. janúar – Sveppi gerir bíó-
mynd
Í byrjun árs bárust fréttir af því
að sjónvarpsmaðurinn Sverrir
Þór Sverrisson ætlaði að ráðast í
gerð bíómyndar. Algjör Sveppi og
leitin að Villa var svo frumsýnd
seinna á árinu og naut gríðarlegra
vinsælda.
24. janúar – Danir hjálpa til
Stærsta rokksveit Dana, Disney-
land after Dark eða D-A-D, kom
til Íslands og hélt styrktartónleika
fyrir Íslendinga í Danmörku á
Nasa 24. janúar. D-A-D var til
langs tíma sú hljómsveit sem sló
lokapunktinn á Hróars-
kelduhátíðina
og þekkja
hana marg-
ir Íslend-
ingar.
28. janúar – Íslendingar safna
lopapeysum handa Bretum
Arnarfellið hélt til Hull í janúar
með tuttugu tonn af hvers kyns
lopavörum, rúma fimmtíu rúm-
metra af lopapeysum, síðbrókum,
húfum og vettlingum. Heimir
Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir
í útvarpsþættinum Ísland í bítið
hófu söfnunina fyrir breska eldri
borgara.
12. febrúar – Jóhanna vinnur undankeppni Eurovision
Jóhanna Guðrún vann íslensku undankeppni Eurovision með lagið Is It True. Ingó
Veðurguð var í öðru sæti með lagið Undir regnbogann.
18. febrúar – Sigur Rós með tvenn verðlaun
Hljómsveitin Sigur Rós hlaut tvenn verðlaun þegar Íslensku tónlist-
arverðlaunin voru afhent í fimmtánda sinn í febrúar.
Meðlimir sveitarinnar voru verðlaunaðir sem höf-
undur ársins auk þess sem plata Sigur Rósar,
Með suð í eyrum við spilum endalaust, var
valin besta platan.
19. febrúar – Björn Jörundur: Ég er ekki
góð fyrirmynd
„Þegar ég var ungur var Bubbi Morthens mín
fyrirmynd. Þetta er kannski afleiðing af því,“
sagði Björn Jörundur eftir að nafn hans kom
upp í tengslum við fíkniefnamál.
Miðvikudagur 4. mars – Skrifar ævisögu Villa Vill
Jón Ólafsson tók að sér það verkefni að rita ævisögu Vil-
hjálms Vilhjálmssonar heitins. Sena gaf út bókina og
var þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið gaf út bók.
Laugardagur 7. mars – Tísku-
drottningar í harðvítugum
deilum
Frönsk verksmiðja tilkynnti
Ástu Kristjánsdóttur
að fyrirtækið væri
hætt við að framleiða
fatnað E–label. Ástæða
riftunarinnar var sögð
sú að Svava Johansen,
eigandi tískukeðjunnar
NTC, hefði hótað að draga
viðskipti sín til baka ef ekki
yrði hætt að framleiða E–label í
verksmiðjunni.
Laugardagur 14. mars
– Vaktmenn verða kvik-
mynd
Kvikmynd byggð á Nætur-
vaktinni, Dagvaktinni og
Fangavaktinni fær vilyrði
fyrir styrk úr Kvikmynda-
sjóði. Hún varð síðar að
Bjarnfreðarsyni sem var
frumsýnd um jólin.
15. apríl – Fimm þúsund
sáu Draumalandið
Tæplega fimm þúsund
manns sáu Drauma-
landið, heimildar-
mynd Andra Snæs
Magnasonar og
Þorfinns Guðnasonar,
um páskahelgina.
13. maí – Fékk sjö millj-
óna styrk.
Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son, nemi við leiklistardeild
Juilliard–listaháskólans í
New York, fékk óvæntan
glaðning í síðustu viku
þegar hann fékk styrk frá
The Robin Williams Schol-
arship en hann hljóðar
upp á sjö og hálfa milljón
íslenskra króna.
17. maí – Silfurstelpan
Jóhanna
Jóhanna Guðrún Jónsdótt-
ir lendir í öðru sæti í Eurovision í
Moskvu. Þjóðin fer á hvolf og tekur á
móti henni sem þjóðhetju.
30. maí – Lisbeth Salander
kemur til Íslands
Tekist hafa samningar
milli dreifingarfyrirtækisins
Senu og Nordisk film um
að kvikmyndin Karlar sem
hata konur verði sýnd
hér á landi. Myndin var
frumsýnd 22. júlí og aðal-
leikkona myndarinnar, hin sænska
Noomi Rapace, var viðstödd frum-
sýninguna.
3. júlí – Vesturport og Cave
vinna saman
Leikhópurinn Vesturport og Nick
Cave ákveða að vinna saman að
nýrri leikgerð af Faust. Nick Cave
og félagi hans Warren Ellis semja
tónlistina.
8. júlí – Jóhanna semur við
Warner
Jóhanna Guðrún semur við
útgáfurisann Warner um útgáfu á
plötu hennar Butterflies and Elvis
í Evrópu.
14. júlí – Borgin stofnuð
Hljómplötuútgáfan Borgin er
stofnuð af Steinþóri Helga
Arnsteinssyni, Guðmundi Kristni
Jónssyni og Baldvin Esra Einars-
syni.
18. júlí – Rússnesk stórmynd á
Íslandi
Saga Film tilkynnir að rússneski
leikstjórinn Aleksandr Sokurov
mun taka upp stórmynd á Íslandi.
Sigurður Skúlason fer með hlut-
verk í myndinni.
23. júlí – Stofnar útvarpsstöð
Einar Bárðarson stofnar útvarps-
stöðina Kaninn sem er staðsett
á Keflavíkurflugvelli. Tvíhöfði og
Gulli Helga snúa aftur á öldur
ljósvakans.
12. ágúst – Forman heiðursgestur
Leikstjórinn Milos Forman verður
heiðursgestur Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, RIFF.
19. ágúst – Kokkar mótmæla
Matreiðslumennirnir Úlfar Eysteins-
son og Tómas Tómasson mótmæla
háum stýrivöxtum með skeggvexti.
25. ágúst – Dorrit reddaði Winslet
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff fékk
leikkonuna Kate Winslet til að tala
inn á heimildarmyndina Sólskins-
drengurinn.
2. sept – Íslensk hönnun í Top
Shop
Vörur frá E-label, fatamerki Ástu
Kristjánsdóttur og Hebu Hallgríms-
dóttur, eru farnar í sölu í verslun
Topshop við Oxford Circus í London.
8. sept – Tískuvikan var hryllileg,
algjör hörmung
Blaðamaðurinn Cator Sparks var
ekki hrifinn af Iceland Fashion Week:
sýningarpallurinn samanstóð af
stöflum af íslenskum vatnsflösk-
um á vörubrettum og sýningin var
haldin í miðri bæjarhátíð! Þetta var
hræðilegt!“
7. október – Reykjavík-Rotterdam í
Hollywood
Bandarískir kvikmyndavefmiðlar greina
frá því að Mark Wahlberg muni leika
aðalhlutverkið í endurgerð á íslensku
kvikmyndinni Reykjavík-Rotterdam sem
Óskar Jónasson leikstýrði.
14. okt. – Westlife til Íslands
„Þeir ætla að hafa svona snjó-áherslur
í myndbandinu, jökla og ísjaka,“ segir
Leifur B. Dagfinnsson hjá framleiðslufyr-
irtækinu True North.
31. okt. – Á toppnum í Færeyjum og
á Íslandi
Félagarnir Friðrik og hinn færeyski
Jógvan eru í efsta sæti vinsældalista,
bæði á Íslandi og í Færeyjum.
3. nóvember – Samdi dans fyrir Shakiru
Katrín Hall kemst í kastljósið þegar Fréttablað-
ið greinir frá því að hún hafi samið dans fyrir
kólumbísku þokkadísina Shakiru.
7. nóvember – Nylon til Hollywood
Söngflokkurinn Nylon lætur á sér kræla á ný
þegar stúlkurnar þrjár semja við Hollywood Rec-
ords. Þær breyta um nafn; heita nú The Charlies.
20. nóvember – Ragnar á Sundance
Myndbandsverk Ragnars Kjartanssonar er valið
til sýningar á Sundance-kvikmyndahátíðinni sem
er hugarfóstur Roberts Redford.
27. nóvember – Beyoncé kaupir íslenska
hönnun
Bandaríska söngkonan Beyoncé mætir í Top
Shop í London og líst svona ljómandi vel á
heavy metal-sokkabuxurnar frá íslenska fyrirtæk-
inu E-label að hún fjárfestir í þeim.
28. nóvember – Kylie bætist í hópinn
Ástralski söngfuglinn Kylie Minogue tilkynnir að
hún muni klæðast skóm frá íslenska fyrirtækinu
Gyðju á tónleikaferð sinni.
Árið 2009 var gott ár í íslenskri dægurmenningu. Íslenskir hönnuðir sigruðu
heiminn og seldu stórstjörnum vöru sína, Ragnar Kjartansson sló í gegn í
Feneyjum og Baltasar Kormákur seldi kvikmyndaréttinn að Reykjavík-
Rotterdam sem Mark Wahlberg mun leika í. Stefán Karl Stefánsson vann hug
og hjörtu íbúa Hollywood með frammistöðu sinni í The Grinch og Fangavakt-
in tröllreið öllu í íslensku sjónvarpi. Tveir kokkar söfnuðu skeggi í mótmæla-
skyni við háa stýrivexti Seðlabankans og svona mætti lengi telja. Fréttablaðið
rifjar upp helstu atburði ársins 2009.
Árið sem Ísland lifði af
28. apríl – Anna
frumsýnd í Cannes
Stuttmyndin Anna
eftir Rúnar Rúnarsson
hefur verið valin á
Cannes–hátíðina í
maí. Þetta er í annað
sinn sem Rúnar hlýtur
þennan heiður.
31. apríl – Innhverf
íhugun Lynch til
bjargar Íslandi í
kreppu
David Lynch kom
til landsins og
flutti fyrirlestur um
innhverfa íhugun,
eða transcendental
meditation eins
og hún kallast á
ensku.
1. júní – The Silver
kemur á markað
Logi Geirsson og Björgvin
Páll Gústafsson setja á
markað gel sem heitir
höfuðið á fræknum
silfurverðlaunum
kappanna, The Silver.
4. júní – Laxness á
arabísku
Samningar nást við Arab
Scientific Publisher um að gefa
Halldór Laxness út á arabísku.
Brekkukotsannáll verður fyrsta
bókin.
10. júní – Bubbi í Good
Morning America
Þáttastjórnendur Good Morn-
ing America vinna innslag
með Bubba undir yfirskrift-
inni The Icelandic Phen-
omenon – eða íslenska
undrið
19. júní – Ósáttir við
borgarlistamann
Áheyrnarfulltrúar Banda-
lags íslenskra listamanna,
BÍL, í menningar– og ferða-
málaráði lögðu fram bókun
við þá ákvörðun að Steinunn
Sigurðardóttir fatahönnuður
var útnefnd borgarlistamaður.
Reykjavíkurborgar.
30. júní – Kalli Bjarni snýr
aftur
Kalli Bjarni í æfingabúðum
með glænýrri hljómsveit.
Karl Bjarni Guðmunds-
son, betur þekktur sem
Kalli Bjarni, söngvarinn,
sem heillaði þjóðina upp úr
skónum í Idol–stjörnuleit Stöðvar
2, sat bak við lás og slá nánast
samfleytt síðan í júní 2007 en var
látinn laus 2. ágúst á þessu ári.