Samtíðin - 01.12.1956, Blaðsíða 11

Samtíðin - 01.12.1956, Blaðsíða 11
10. hefti 23. árg, Nr. 228 Desember 1956 TIMARIT TIL SKEMMTUNAR OG FRÖÐLEIKS SAMTIÐIN kemur út mönaíSarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð- ur Skúlason, Reykjavík, sími 2526, pósthólf 472. Árgjaldið, 45 kr. (erl. 55 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við siðustu áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka i Bœk- ur og ritföng hf., Austurstræti 1. — Félagsprentsmiðjan hf. /Iur)i‘i7«r) fer ohkur frant 1 MJÖG HÆPIÐ orðtak segir: „Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.“ Trúið þið þessu? Nei, fyrir alla muni. Segið heldur, að það hafi hrokkið út úr einhverjum orðheppnum rudda, þegar illa stóð í bælið hans. Við skulurn athuga þetta svokallaða spakmæli örlítið nánara. Það hefur auðvitað lifað á þeirri bjarg- föstu trú fólks, að það hlyti að vera heil- agur sannleikur. Menn trúðu því líka frá því í fornöld og allt fram á miðaldir, að konur hefðu færri tennur en karlar, og átti það að vera ein af röksemdunum fyr- ir því, að þær skyldu vera mönnum sínum undirgefnar. Það liðu sem sagt margar aldir, áður en menn leyfðu sér að skyggn- ast upp i konu og telja í henni tennurn- ar. En nú skulum við athuga þann vís- dóm, að örðugra sé að læra, eftir því sem við eldumst og að erfitt sé að kenna göml- um „hundi“ að sitja. Frægur sálfræðingur við Columbia-há- skólann í New York, Edward L. Thorn- dike að nafni, hefur árum saman unnið að því að afsanna þessa fásinnu. Rann- sóknir hans hafa leitt í ljós, að roskið fólk á oft miklu auðveldara með að læra en ungt fólk. Gerðar voru tilraunir á skólastjórum og kennurum, og sýndu þær, að fólk á aldrinum 40—49 ára átti miklu hægara með að læra en fólk á aldrinum 30—39' og 20—29 ára. Af tveim stórum hópum, sem tilraunir voru gerðar á, mátti sjá, að unglingar á aldrinum 10—14 ára áttu miklu örðugra með að læra en fólk á aldrinum 15—45 ára. Erlend niál lærði tvítugt fólk á helmingi skemmri tíma en 18 ára gamalt fólk, og 65 ára gamlir menn voru talsvert næmari en 14 ára unglingar. Yngstu börnin voru tornæm- ust. Sextugur ma'ður reyndist ekki lak- ari námsmaður en hann hafði verið hálf- þrítugur. Næmi og greind er sitt hvort, enda þótt skylt sé og saman slungið á marga vegu. Þær rannsóknir, sem hér hefur verið drepið á, hafa orðið til þess að veikja stórum þá steinrunnu bábilju, að menn gerist ógreindari með aldrinum. Thorn- dike hefur rannsakað ævistörf 400 svo- nefndra mikilmenna og komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir hafi verið orðnir að meðaltali 47/2 árs gamlir, er þeir inntu af hendi mestu afrek sín. Tónsnillingarn- ir voru einu ofurmennin, sem unnu stór- virkin á unga aldri. Auðvitað fer okkur fram, og hver veit, nema við verðum elnhvern tima það skynsöm, að við afnemum lögin, sem banna embættismönnum okkar að sinna öðrum opinberum störfum en alþing- issetu og ráðherradómi, eftir að þeir eru orðnir sjötugir, sem vissulega er enginn aldur nú á dögum.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.