Samtíðin - 01.12.1956, Blaðsíða 13
SAMTÍÐIN
5
*ljt)œcýurlacýó textinn
Tehús Ágústmánans
Heill saumaklúbbur reykvískra yngis-
meyja, sem segjast Iesa Samtíðina upp-
liátt á saumafundum sínum, sendir okkur
kærar kveðjur og biður okkur að birta:
Vísuna um Jóa
Hún er eftir L. Guðmundsson, sungin
af Hauki Morthens á H. M. V. plötu nr.
JOR228. Gjörið þið svo vel:
Tökum lagið, lyftum skál, meira fjör,
meira fjör,
meira fjör, — ekkert rjál, sagði Jói.
Þegar vermir veigabál,
verður létt um söng og mál.
Nú er röddin þýð og þjál, — sagði Jói.
Þegar gengið var í dans, — meira fjör,
meira fjör,
meira fjör, ekkert stanz, — sagði Jói.
Síðuhnykk af völdurn hans
margur hlaut í Óla skans ...
Hart á stjór, — Far vel Franz, sagði Jói.
Þætti fæstum fært — á sjó, meira fjör,
meira fjör.
meira fjör, — við róum þó, sagði Jói.
Tæki að svarra’ í segli’ og kló,
Jói sat við stýri’ og hló.
Á sjó er svigrúm einum nóg, sagði Jói.
Þótt hann ætti aldrei neitt nema aðeins
eitt — meira fjör,
meira fjör, — ei annað neitt, bað hann Jói.
Gæti’ ei fjörið manni fleytt
gegnum lífið yfirleitt,
kemur stríðið út á eitt, sagði Jói.
Tökum lagið, lyftum skál, meira mjör,
meira fjör,
meira fjör, — drekkum skál þína, Jói.
Þegar vermir veigabál,
verður létt urn söng og mál.
Nú er röddin þýð og þjál, sagði Jói.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hóf í október sýn-
ingar á þessum góðlátlega, ameríska gam-
anleik. sem Bandarikjamenn liófu til
skýjanna með verðlaunum og geysiað-
sókn 1953—54. íslendingum hefur einnig
geðjazt að fyndinni ádeilu hins irskkynj-
aða höfundar, Jolins Patricks, á amerískt
hernám á Okina'wa og mannlegan breysk-
leika i því sambandi. Leikendum okkar
tókst eftir hætti furðuvel undir stjórn
Einars Pálssonar að túlka austurlenzkt
málfar og æði, en leiktjöld Lárusar Ing-
ólfssonar áttu sinn þátt i hinni austrænu
heildarmynd. Mest mæddi á Val Gíslasyni,
Rúrik Haraldssyni (í hlutverkum amer-
ískra herforingja) og Lárusi Pálssyni,
sem lék austurlenzkan túlk, Sakini, af
næmri innlífun, en fáguðu hlutleysi.
Myndin er af Lárusi í þessu aðalhlut-
verki leiksins.
IVl U M I Ð
Nora Magasín
ORLOF VÍSAR VEGINN
FERÐASKRIFSTOFAN O R L O F H.F.
Hafnarstræti 21. Reykjavík. Sími 82265.