Samtíðin - 01.12.1956, Síða 14
SAMTÍÐIN
VeMu
6
IUÍ
aanaópcirnm^ar
SamtíL
armaar
SAMTÍÐIN veitir þrenn verðlaun fyrir
rétt svör við þrem eftirfarandi spurninga-
flokkum, 1. verðl. 100 kr., 2. verðl. tvo eklri
árganga af Samtíðinni og 3. verðl. einn
eldri árgang. Skilyrði fyrir verðlaunum
eru þau, að rétt svör við öllum spurning-
unum hafi borizt okkur fyrir 20. des. á-
samt orðinu VERÐLAUN, sem prentað er
uppi i vinstra horni liér á síðunni og á að
fylgja úrlausnunum. Sendi fleiri en einn
réttar ráðningar, verður dregið um, hver
lilýtur 1., 2. og 3. verðlaun.
I. Munar einum staf
Það munar aðeins einum staf á
a og b. Hér eru merkingar orðanna.
Reynið að finna Itau.
1. a) árstíð, b) þráður
2. a) veggur, b) eldsneyti
3. a) járnstöng, b) réttur (lo.)
4. a) renni, b) op
5. a) hrós, b) meðal.
II. Punktar og orð
í stað punktanna á að setja orð,
sem i eru jafnmargir stafir og þeir.
Til þess að fá lengri orðin þarf ekki
annað en bæta .einum staf aftan við
og öðrum framan við styttri orðin.
1. Prestur bauð . . . að..messu.
2. Ég . . undir . . . . á éngjunum.
3. Þið.....ekki, live allt var á . ..
og strúi í húsinu.
4. Þú ert mér... ef þú Ijærð mér
5. Þetta . . varð .... litli sex ára
gamall,
III. Stafavíxl
Setjið stafina ARI saman við
breyttu stafina hér á eftir, þannig
að út komi orð samkvæmt eftirfar-
andi merkingum.
1. TIR
2. ÐR
3. GR
4. FN
5. ERYF
Merkingar:
skrifari
titrar
liuglausir
raufin
frásögn.
Ráðningarnar verða birtar á bls.
29 í næsta befti.
VERÐLAUIM
SAMTÍÐIN þakkar lesendum sín-
um fyrir mikla þátttöku í að svara
verðlaunaspurningunum í næstsið-
asta hefti (8. heftinu). Svo margar
réttar úrlausnir bárust, að draga
varð um, hverjir hljóta skvldu verð-
launin.
1. verðlaun lilaut Friðrik Friðriks-
son, Bárustíg 7, Sauðárkróki. 2. verð-
laun Ingólfur Arnarson, Austurvegi
7, Vestmannaeyjum og 3. verðlaun
Bergljót Benediktsdóttir, Hjarðar-
bóli, Aðaldal, S.-Þingeyjarsýslu.
Langflestir höfðu svarað spurn-
ingunum hárrétt, enda þótt sumir
svöruðu einni spurningu með öðr-
um orðum ,en við liöfðum hugsað
okkur.
SAMTÍÐIN er tímarit allra íslendinga.