Samtíðin - 01.12.1956, Side 20

Samtíðin - 01.12.1956, Side 20
12 SAMTlÐTN ið milli linanna hjá þeim, að þeir ráðlögðu henni eindregið að fara nú að draga sig í hlé. Hún fer í hvítar skíðabuxurnar. Hún er þreytt. Hún var of lengi á fótum í gærkveldi. Það er orðið var- hugavert fvrir hana að vera of lengi á fótum á kvöldin. Það sést strax á augunum. Þreytumerkin sjást þar enn, þrátt fvrir fegrunaraðgerðirn- ar. Hún gengur að glugganum og opnar hann, skyggnist yfir fjalllend- ið, lyftir handleggjunum upp vfir höfuðið og sogar að sér frískt loftið. Skrítinn lieimur, hugsar hún, kaldur og miskunnarlaus — alveg eins og fólkið hér norður frá. Hún þenur út hrjóstið, svo að hrjóstin sjást undiy stormjakkanum. Hún sér mann þjóta framhjá á skíðurn þarna niður frá. Andardrátturinn stendur eins og reykjarstroka út úr vitum lians. Þetta er ungur, hraust- legur og þjálfaður máður. Hún lok- ar augunm. Henni verður hugsað til allra sinna mörgu hjónahanda, allra elskhug- anna, allra aðdáendanna. Hvað er nú orðið af þeim? Þeir eru langt burtu úti i víðri veröld með ungar konur sér við hlið, ungar fagrar konur, eins og hún hefur sjálf verið. Hún fer niður, spennir á sig skíð- in og þýtur af stað. Frískt loftið liressii' hana. Það hleypir roða í kinnar henni, fyllir lungun. Hún rennir sér lengra og lengra. Snjór- inn sindrar kringum hana eins og ótölulegar þúsundir demanta. Þegar liún er komin upp á liáa hæð, nemur hún staðar og horfir yf- ir landið. Blóðið streymir hraðar i æðum hennar. Henni ,er funheitt. Svo kippir hún af sér skíðunum og fleygir sér endilangri i snjóinn. Hún liggur á hakið, teygir úr handleggj- unum og starir upp í heiðbláan him- ininn. Svo fer hún að gráta, grúfir sig niður og grætur, meðan fingurn- ir kreista snjóinn krampakenndum tökum. Allt í einu heyrir hún rödd við hlið sér. Hún opnar augun. Þar stendur maður á gráum skíðaföt- um. Andlit hans er sólhrúnt. Mjall- hvítar tennur lians ljóma eins og perlur milli varanna. Hann horfir á hana bláum augum og segir eitt- livað á máli, sem hún skilur alls ekki. ,,Parlez-vous francais?“ spyr hún. Hann hlær. „Oui,“ segir liann og fer að tala móðurmál hennar með skemmti- legum hreim, sem gerir það enn þá meira hrífandi. „Er frúin veik?“ spyr liann. Hún kinkar kolli. Hún er veik, ekki líkamlega, hugsar hún, en á sálinni. Hann lýtur niður að henni til að lijálpa henni á fætur. Hún finnur tóhaksþef og ferskt loft streyma til sín. Það er snjóilmur kringum liann, hugsar hún, enda þótt liún viti ekki, hvort nokkur lykt sé af snjó. Hann tekur hana í faðm sér. Hún finnur, að armar lians eru ungir og þróttmiklir. Andlit þeirra nálgast mjög. Andardrættir þeirra verða að einni gufu, sem hverfur út í tært loftið. Hún dregur andann djúpt. Svo vefur hún handleggjunum fast um

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.