Samtíðin - 01.12.1956, Page 22
14
SAMTÍÐIN
anddyrið. Dyravörðurinn ungi bros-
ir til hennar.
„í kvöld,“ hvíslar hann.
Hún kinkar kolli.
„í kvöld,“ segir hún og hraðar sér
burt.
♦ ÞAÐ ER SAGT ♦
að friðleikur, seni gerir stúlku ekki
stæriláta, geri hana yndislega.
♦ ,
að sumt fólk missi samtalsgáfuna
án þess að það missi málið.
♦
að munurinn á konungi og forseta
sé sá, að konungurinn sé sonur
föður síns, en forsetinn ekki.
♦
að margur maðurinn sé bölsýnn
vegna skattanna, sem þeir bjart-
sýnu leggja á hann.
♦
að ef konur þekktu sjálfar sig eins
v.el og þær þekkja karlmennina
og karlmennirnir þekktu kon-
urnar eins vel og sjálfa sig,
mundi heimurinn vera næsta
svipaður því og liann er.
„Þessi vegur er lífshættulegur.
Það ætti að setja hér upp viðvörun-
arskilti.“
„Við gerðum það íuí, en af þvi
enginn tók tillit til þess, tókum við
það niður.“
Freyju-vörur mæla með sér sjálfar.
Veljið það bezta.
FREYJA H.F., sælgætis- og efnagerð
Lindargötu 12. Símar 4014 og 2710.
Výjar erleHttar bœkut
GYLDENDAL í Ivhöfn hefur sent
okkur þessar bækur:
Kristoffer Nyrop: Fransk verslære
i omrids. Þessi handhæga, franska
bragfræði kom fyrst út 1910, 2. útg.
1929 og hér er, löngu eftir lát höf-
undar, komin 3. útg. í umsjá Hans
Sþrensens, sem hefur aukið bókina
með tilliti til þeirrar þróunar, er
orðið hefur í frönskum kveðskap
síðustu 25 árin. Þetta er mjög að-
gengileg handbók þeim, er vilja
kynnast byggingu franskra kvæða.
117 bls., ób. d. kr. 9.50.
Patrick Dennis: Tante Mamie.
Indiskrete erindringer om en virke-
lig dame. Þessi bráðskemmtilega
bók, sem 12 bandarískir útgefendur
fengust ekki til að gefa út, hefur
orðið metsölubók fyrir v,estan.
„Mamie frænka“ á vinsældir sínar
því að þakka, að hún er voldugur
samnefnari fvrir allt hið barnslega,
einlæga og góðlátlega hugarfar
Bandaríkjafólksins, mótað af hraða
og háreysti tækniþróunarinnar.
Fólk hefur fundið sjálft sig í lýs-
ingum Patricks Dennis, (dulnefni),
sem Englendingar jafna við Wode-
house. Og nú á auðvitað að kvik-
mynda frásögn hans. J. A. Hansen
hefur þýtt bókina á dönsku. 261
bls., ób. d. kr. 16.75, íb. 21.75.
Segið öðrum frá SAMTlÐINNI.
Radartæki, Asdictæki, Dýptarmælar, Dýpt-
armælapappír, Segulbandstæki, Segul-
bönd, Kvikmyndavélar, Útvarpsviðgerðir.
FRIÐRIIÍ A. JÓNSSON
Sími 4135. Garðastræti 11. Reykjavík.