Samtíðin - 01.06.1957, Blaðsíða 7
5. hefti 24. árg.
Mr. 233
Júní 1957
TÍMARIT TIL SKEMMTUMAR OG FRÓÐLEIKS
SAMTÍÐIN kemur út mánafSarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð-
ur Skúlason, Reykjavík, síini 2526, póstliólf 472. Afgreiðslusimi 81985. Árgjaldið, 45
kr. (erl. 55 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við síðustu áramót. Áskriftargjöld-
um veití móttaka i Bækur og ritföng hf., Austurstræti 1. — Félagsprentsmiðjan hf.
SIGURÐUR SKÚLASDN:
Flugiélatf lslands tí itmanaótutn
ÞEGAR ÞESSAR LÍNUR birtast, á eitt af
rismestu fyrirtækjum Islendinga, Flugfé-
lag íslands hf., tvítugsafmæli. Saga félags-
ins hefur áður verið rakin í höfuðdráttum
i ferða- og flugmálaþáttum okkar. Því er
síður ástæða til að líta um öxl á þessurn
tímamótum, enda stendur félagið nú í
stórræðum, sem beina huganum í fram-
tíðarátt.
Flugfélag íslands á mikil ítök í íslend-
ingum. Ber ýmislegt til þess. Fámenn
þjóð í stóru, strjálbyggðu landi, þar sem
landsamgöngur geta stöðvazt fyrirvara-
laust að kalla og teppzt tímunum saman,
fagnar flugsamgöngum af heilum hug og
telur þær auk heldur lífsnauðsyn. Fólk,
sem ætlar sér héðan til útlanda og þarf að
hafa, hraðan á, hugsar gott til þess að
geta skotizt til London á 4 klst. og Kaup-
niannahafnar á 4(4 klst., svo að tveir vin-
sælir áfangastaðir F. í. séu nefndir. Enn
ber það til, að þjónusta félagsins hefur,
þrátt fyrir ýmsa vaxtarörðugleika, fnan
verið með ágætum. Það væri efni í langa
ritgerð að gera grein fyrir þeim menn-
ingaráhrifum, sem félagið hefur haft á
tuttugu ára ævi og lýsa fögnuði, er einatt
vaknaði í brjóstum íslendinga við að sjá
flugvélar þess og starfslið á stórum, er-
lendum flugvöllum, haldandi til jafns við
afburða flugþjónustu margfalt stærri og
auðugri þjóða. Þar kenndi íslenzks mann-
dóms og myndarbrags.
Örn Ó. Johnson forstjóri hefur stjórn-
að Flugfélagi íslands með varúð, stórhug
og framsýni. Hann hefur stýrt því gegn-
um stormsveipi örðugleikanna fyrir sitt
leyti eins og hann kleif eitt sinn sem
kornungur flugmaður fárviðrisbelti sunn-
an undir Vatnajökli og barg þá lífinu með
snarræði og karlmennsku á næsta litlum
og veikbyggðum farkosti. Hann hefur
kunnað að grípa og gernýta tækifærin,
þegar hann hefur séð félagi sínu heppi-
legan leik á borði. Mesta átakið í þeim
efnum eru kaupin á tveim nýjum V i c k-
ers Viscoun t-flugvélum — um það
bil 45 millj. kr. fjárfesting — sem hann
annaðist í London í marz sl. vetur. Þeir
ágætu farkostir munu í skjótri svipan
gerbreyta millilandaflugi F. í. og efla auk
þess innanlandsflugið að miklum mun, m.
a. með tilkomu Sólfaxa á þeim leiðum.
Kunnugir fullyrða, að hinar nýju flug-
vélar F. í. mætti nú þegar selja fyrir
miklu hærra verð en þær kostuðu.
Afmælisósk mín til F. I. er sú, að hér
verði sem allra fyrst reist nýtízku gisti-
hús, er hýst geti ferðafólk í samræmi við
flutningsgetu félagsins. Til þess er illt
að vita, enda mikið gjaldeyristjón, ef
myndarbragurinn í rekstri F. í. verður
lengur en orðið er torveldaður að mun
með þeim fádæma frumstæða kotungs-
brag, sem enn ríkir i íslenzkum gistihúsa-
málum.