Samtíðin - 01.06.1957, Blaðsíða 20
16
SAMTÍÐIN
hefur verið hér á landi síðustu árin,
því að allir þessir menn ausa af sama
brunni. Spánverjar fá þá stundum til
að skreyta veitingastofur og sölu-
búðir með sterkum litasamsetning-
um. Sé liins vegar um málverk að
ræða, kýs Spánverjinn myndlist í
„natúralistiskum“ stíl. Þjóð, sem alið
hefur meistara eins og Goya, Velas-
quez og Ribera, gengur ekki af trúnni
á liefðbundna list til þess að elta
stundarfyrirbrigði. Prado-safnið i
Madrid er sennilega stærsta mál-
verkasafn í heimi. Það hefur orðið
spænsku þjóðinni mikill listaskóli.
Þj óð, sem á dýrmæt listasöfn og lista-
skóla, stendur ekki berskjalda fyrir
hverju einu“.
„Hvað liyggst þú fyrir, Baldur?“
„Á sýningu minni voru myndir af
suðrænu landslagi. Nú lilakka ég til
að nota þá kunnáttu, sem ég hef
öðlazt, til þess að mála íslenzk við-
fangsefni. Aldrei hefur verið jafn-
gaman að koma heim til lslands og
nú, eftir langa útivist i gerólíku um-
hverfi“.
Frúin: „1 þetta sinn held ég, að viö
ættum bara aS gefa hvort öS'ru skyn-
samlegar jólagjafir, til dæmis ég þér
hálsbindi og þú mér pels.“
Prédikarinn: „ÞaS er bezt, aS viS
höfum fjársöfnunina á undan ræS-
unni i dag, Eg ætla nefnilega aS tala
um sparsemi.“
Byggingarvörur og alls konar verkfœri
er bezt að kaupa hjá okkur.
VERZLUNIN BRYNJA
Laugaveg 29. Símar 4160 og 4128.
—Um víöa fpröW-
1 BANKA einum i Neiw York
stórminnkaði nýlega kvef meðal
starfsmannanna, án þess að menn
gerðu sér í fyrstu grein fyrir, hverju
slíkt sætti. Við nánari athugun kom
í ljós, að orsökin var sú', að húsa-
kynni bankans höfðu verið sprautuð
með efni, sem heitir triothlen glycol.
Efni þetta er gersamlega óskaðlegt
mönnum, en liins vegar alveg
hanvænt sýklum i andrúmsloftinu.
Tilíaunir voru því næst gerðar með
þetta efni, m. a. í hermannaskálum,
og minnkaði kvefnæmi manna þar
þegar um þriðjung miðað við það,
sem menn höfðu áður átt að venjast.
Það lítur því út fyrir, að glycol-úði
verndi fólk gegn minni háttar sýk-
ingarhættu af völdum kvefsýklanna,
þar sem margir eru saman komnir.
Nú vinna amerískir visindamenn að
því að húa til litlar og handhægar
glycol-sprautur, sem auðvelt sé að
nota í skólum, skrifstofum og heim-
kynnum fólks. Ef allt gengur að ósk-
um og framhaldið verður ekki lak-
ara en hyrjunin, ættu bjartsýnir
menn að geta vonað, að þeir verði
meðal þess þriðjungs mannkynsins,
sem glycolið frelsar frá hinu hvim-
leiða kvefi, sem öllum er lítið um.
—★—
MUNIÐ að tilkynna Samtíðinni tafar-
laust bústaðaskipti til að forðast vanskil.
Vönduð fataefni
ávallt fyrirliggjandi, einnig kamb-
garn í samkvæmisföt. Hagstætt verð.
ÞORGILS ÞORGILSSON, KLÆÐSKERI
Lækjargötu 6A. — Sími 82276.