Samtíðin - 01.06.1957, Blaðsíða 14

Samtíðin - 01.06.1957, Blaðsíða 14
10 SAMTÍÐIN 222. SAGA 5AMTIÐARINNAR Er maðurinn með öllum mjalla? „ÉG VERÐ alveg ringlaður innan um allt þetta kvenfólk!“ sagði ungur vinur minn, Torfi Brynjólfsson aug- lýsingastjóri, og vatt sér fram úr ból- inu. „Alls staðar er kvenfólk, hvar sem maður situr eða stendur, smá- vaxnar stúlkur, feitar konur, grann- ar meyjar, kvenfólk í bikini og bik- ini-laust . . . hm . . ., það er að segja í venjulegum sundfötum, svörtum, livítum, rósóttum, alveg eins og smá- börn i sandkassa. Ég hefði átt að taka þetta frí uppi á fjöllum. Þar hefur maður þó að minnsta kosti frið fyrir öllu öðru en mýflugunum. En þær eru nú ekki kröfufrekar, greyin. Þær vilja bara bíta mann ósköp lítið og búið“. „Það er indælt“, sagði ég. „Hvað í ósköpunum er indælt?“ hreytti Torfi úr sér í morgunfýlunni. „Allt þetta yndislega kvenfólk“, sagði ég. „Mér finnst þetta alveg Ijómandi baðstaður“. „Hér er bara eintómt kvenfólk!" sagði Torfi og kveikti sér i sígarettu. „Af hverju er enginn staður, þar sem karlmenn geta verið út af fyrir sig? Eða þessi ljóshærða við borðið undir glugganum vinstra megin í borðstof- unni?“ Ég lokaði augunum og smellti í góm. „Ef þú segir aukatekið styggðar- yrði um hana, verð ég folcvondur“, sagði ég. „En hvað finnst þér að henni?“ Torfi gekk að glugganum, opnaði hann og byrjaði á morgunleikfim- ihni. Hann pataði til hægri og vinstri og barmaði sér hástöfum: „Hún . . . þessi ljóshærða . . . einn — tveir — þrír . . . er bara farin að gefa mér liýrt auga“. Mér brá í brún, því að sú ljóshærða var fallegasta stúlka, sem ég hafði séð á tíu baðstöðum á jafnmörgum ár- um. Hvað kynþokkann snerti, kom bún manni nú blátt áfram í uppnám. Sprengja! Nei, orð fá alls ekki lýst því . . . Eftir að ég kom til baðstrand- arinnar, hafði aðeins eitt vakað fyrir mér: að lcoma þessari stúlku til við mig, veita henni tækifæri til að líta upp til mín, verða maðurinn í lífi hennar . . . „Hún hefur gefið mér auga, síðan við komum hingað, sex —- sjö —- átta“, sagði Torfi. „Á miðvikudaginn fékk liún léð bjá mér blaðið úti á ströndinni, ellefu — tólf. Það var, þegar þú varðst að fara lieim á hótel, af því þú bjóst við upphringingu. Og eftir að hún hafði litið í blaðið, kom hún til mín, aðeins andartak . . . átta — níu . . . Og sú kunni nú að lokka mann með yndisþokka sínum .. . einn — tveir . . . Kristín Lúðvíks heitir hún og hefur sjálfsagt verið gift þó nokkr- um sinnum . . . f jórir — fimni . . . og' svo_____“ „Spurði hún ekki, hver ég væri?“ stamaði ég eymdarlega. „Nei“, sagði Torfi og gerði kröft-

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.