Samtíðin - 01.06.1957, Blaðsíða 27
SAMTÍÐIN
23
flrbók 'ókálrfa I9S6
ÞESSI BÓK ungra andans manna
í landinu kom fyrir seinustu jól eins
og undanfarin ár og flutti að þessu
sinni kvæði og sögur 22 höfunda.
Kristján Karlsson annaðist ritstjórn.
Helgafell gaf út. Brotið er stærra en
áður, jafnstórt tímaritinu Helgafelli,
en árbókin er nú fylgirit þess.
Maður byrjar að blaða í bókinni
og leitar fyrst höfunda, sem sálin
girnist einkum og sér i lagi að fylgj-
ast með. Þarna er vaskleikamaður-
inn Indriði G. Þorsteinsson og kemur
á óvart með tveim kvæðum (í stað
bnitmiðaðrar smásögu eins og við
var búizt), öðru ortu í Reykjavik,
liinu vestur í Detroit og gleymir þá
auðvitað ekki Fordbílunum. — Jón
Dan. befur lengi verið skáldlega vax-
inn. Hann gerist nú mikill kunnáttu-
maður og færist í aukana með sög-
unni Bréf að austan. — Kristján frá
Djúpalæk verður fyrstur fyrir, þeg-
ar skyggnzt er til kvæða. Hann fer
ekki alfaraslóð, en bregður upp sér-
kennilegum myndum:
Dordingull er ég i hendi þér,
himneski Drottinn,
þú heldur i enda þess vaðs, sem mig
uppi ber
segir bann í upphafi kvæðisins Haltu
mér — slepptu. I Elliglöpum kemst
skáldið svo að orði:
Saga hvers lífs er sorgarljóð.
Sælan er dýr, þótt reynist föl.
Ástin er þorsti úlfs í blóð,
iðrunin fórnardýrsins kvöl.
Hannes Pétursson lieldur í borfinu,
einkum með kirkjugarðskvæði sínu.
— Jón úr Vör þýðir að mestu óstuðl-
Það ORKAR ekki tvímælis, að
RAFORKA
á Vesturgötu 2 og Laugaveg 63
hefur beztu og fellegustu
Ljósatækin
Búsáhöldln
Heimilisvélarnar
Við bjóðum ávallt það bezta.
Látið okkur vinna alla rafmagns-
vinnu fyrir yður.
Síminn er 80946.
Húsmæður vita, að það er sparnaður
að nota aðeins beztu fáanlegu efnin í
baksturinn.
ROYAL lyftiduft er framleitt úr beztu
efnum, sem stöðugar efnafræðilegar
rannsóknir hafa ráðlagt að nota. —