Samtíðin - 01.06.1957, Side 13
SAMTÍÐIN
9
alveg bilaður, borgar t. d. aldrei
reikninga! Ef ég finn að þessu við
liann, verður hann bara reiður. Verst
er, að liann skrökvar að mér elcki
síður en öðrum. Ég get engu treyst,
nema þegar hann vefur mig örmum.
Þá gleymi ég öllu. Hvað á ég að gera?
•— Óhamingjusöm.
SVAR; Þú verður að reyna að liafa
siðbætandi áhrif á manninn þinn. Að
öðru leyti skaltu ekki taka hann of
hátíðlega. Hann þolir áreiðanlega
eklci gagnrýni á þessu stigi málsins,
ekki nema í smáskömmtum að
minnsta kosti. Ást þín er enn heit.
Farðu því að öllu með gát. Láttu
mig vita, ef þetta lagast ekki. — Þín
Freyja.
Kjörréttur mánaðarins
TÓMAT RÉTTUR. Endar eru
skornir af 8 stórum tómötum og
þeir síðan holaðir innan. Svo eru
þeir fylltir af hökkuðu kálfskjöti
blönduðu 50 g af smjöri, 1 eggi, svo-
litlu af lauk (lielzt hvitlauk), 100
g svínsfleski eða öðru reyktu kjöti
og 3 msk af raspi. Allt þetta er hakk-
að saman við hakkaða kálfskjötið.
Þegar tómatarnir hafa verið fylltir
ineð þessu og endarnir settir á þá
aftur, eru þeir settir i heitan ofn og
látnir vera þar 20 min. Síðan er saf-
inn, sem tekirin var innan úr tómöt-
unum, jafnaður, suða látin koma upp
á honum og liann notaður sem sósa
út á réttinn. Gott er að borða salat
með þessu og soðin lirísgrjón.
Húfugerð. Herraverzlun.
P. EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavík Sími 5098.
PERUTERTA með osti og engifer.
Rotn: 3 dl rifið rúgbrauð, kúfuð msk.
af sykri, 3 msk. smjör, þó tsk. engifer.
Allt þetta er sett á pönnu og steikt
í nokkrar mínútur. Siðan er það sett
á diskinn, sem það er borið fram á.
Þar er því þj appað saman og mynduð
brún. Svo er það látið kólna og
má þá taka dálítið af því til að skreyta
með. — Kremið: 2 eggjarauður, 80 g
sykur, 1 dl mjólk (helzt rjómi) er
þeytt saman í skál á sjóðandi vatni,
þar til kremið er farið að þykkna.
Þá eru 3 blöð af matarlími leyst upp
í ávaxtasafa og látin út í kremið.
Þegar þetta er orðið kalt, er settur
í það 1 dl af rifnum osti, 4—5 perur
(eða aðrir ávextir) brytjaðir út í, og
látnar i það 2 stífþeyttar eggjahvítur.
Þegar það er orðið stíft, er það látið
á brauðbotninn og skreytt með rúg-
brauðinu, sem tekið var frá, og ávöxt-
um.
FRÆGIR ORÐSKVIÐIR
Þú verður að vaxa upp á eigin
spýtur, hve stórir sem forfeður þínir
voru.
Tómur poki getur ekki staðið einn.
Margir keppinautar eru fúsir til
að segja þér til vegar, þegar þú kemst
ekki orðið lengra.
Það er tími til að segja ekki neitt,
tími til að segja dálítið, en enginn
tími til að segja allt.
ÞÚSUNDIR kvenna lesa kvennaþætti
Samtíðarinnar með vaxandi athygli. —
Sendið okkur áskriftarpöntunina neðst
á bls. 2 strax í dag, og við póstsendum
yður blaðið tafarlaust ásamt 1 eldri ár-
gangi í kaupbæti.