Samtíðin - 01.04.1958, Side 12
8
SAMTÍÐIN
að hún er alls ekkert hrifin af lion-
um og vill ekkert með hann hafa.
Og þá kemur hann aftur til mín,
grátbiður mig að taka sig í sátt og
giftast sér og segist alls ekki hafa vit-
að, hvað hann var að gera!
Er nokkurt vit í að bindast svona
manni ævilangt, Freyja min?
SVAR: Það er engin furða, þótt
þú sért hikandi eftir svona meðferð.
En ef þú elskar piltinn þrátt fyrir
allt, ei’;víst varla um annað að ræða
en talca hann i sátt. Elcki finnst mér
þó ráðlegt að giftast honum alveg
hiklaust, heldur skaltu sjá til, hvern-
ig ást ykkar dafnar á ný. Það eru
oft skemmtilegustu mennirnir, sem
rata í freistingarnar. Nú vona ég,
að allt fari vel hjá ykkur. En fyrir
alla muni forðastu siðaprédikanir
yfir lcærastanum þínum, og láttu
hann alls ekki finna, að þú tortrygg-
ir hann eða lítir niður á hann. —
Þín Freyja.
Fáein tízkuráð
ÞÖRA KRISTJÁNSDÓTTIR hefur
gert nokkrar fvrirspurnir, sem ég
vil svara á þessa leið: Ljósir vara-
litir eru nú i tízku, og yfirleitt klæða
bleikrauðir litir hetur en gulrauðir.
Flestir sterkir litir fara dökkhærðum
vel, en það fer auðvitað eftir hör-
undslit.
Frönsk ilmvötn og púður eru hezt,
og fæst eitthvað af þessum vörum
í húðum í Reykjavik, t. d. púður hjá
snyrtistofunni Jean de Grasse.
Sigurður Reynir Pétursson
hæstaréttarlögmaSur. #
Austurstræti 14. Símar 22870 og 19478.
Nýjasta Parísarhárgreiðslan
Klipping er fallegust, ef hægt er
að fá hana. Annars birtum við hér
fyrir ofan mynd af nýjustu liár-
greiðslunni frá París, sem þú getur
farið eftir.
Fílapenslar koma oft á þroska-
skeiði og hverfa svo aftur. Bezt er
að lækna þá með Ijósum. Forðastu
að borða mikið af kökum og feit-
meti, meðan þú ert með þá.
EIKI, 21 árs gamall, skrifar hlý-
legt hréf og hiður mig að ráðleggja
sér eitthvað til að eyða dökkum baug-
um neðan við augun.
SVAR: Ef þeir eru óeðlilega mikl-
Raflagnir. — Viðgerðir.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
RAFTÆKJAVINNUSTOFA
ÞORLÁKS JÓNSSONAR H.F.
Grettisgötu 6. — Sími 14184.