Samtíðin - 01.04.1958, Síða 19

Samtíðin - 01.04.1958, Síða 19
SAMTÍÐIN 15 .•.•.•.•.•.•.•232. SAGA SAMTÍOÁRINNAR .•.*.*.•.• $ögnva(dur ddrlingáóon, wúivöl um; LÍFTAUGIN ENGINN, sem kom að Hlíð, átti nógu sterk orð til að lýsa undrun sinni og aðdáun yfir hinum háu og beinvöxnu hjörkum, sem þöktu meiri hlutann af heitarhúsahjallan- um. Þetta var þeim mun furðulegra, sem hvergi sást skógarkjarr í allri sveitinni nema stöku lirísla liér og hvar á bergbrún, sem þögult vitni þess, að eitt sinn hafði landið verið skógi vaxið. Og ein af þessum stöku hríslum lijarði á bergbrúninni, beint yfir miðjum skógarlundinum í Hlíð. Vafalaust voru hinar fögru bjarkir »hold af hennar lioldi“, höfðu vaxið upp af frækornum hennar, eftir að 'hjallinn liafði verið friðaður fyrir ágangi búfjár. En skjólgarðarnir báð- um megin trjálundarins sýndu, að hjarkirnar höfðu dáfnað fyrir atbeina einhvers vormanns Islands. Sjálfsagt höfðu þessir vörzlugarðar kostað hann marga hvíldarstund, ef til vill marga vökunótt. En vafalaust hafði hann fengið þá fyrirhöfn marghorg- uða, þegar liann leit ávöxt iðju sinnar. AFI var kominn liátt á níræðis- aldur og hættur að hafa ferlivist. Þó har það við á lygnum sólskinsdögum um hásumarið, að liann staulaðist UPP í skógarlundinn og settist beint uiður. af hrisluhni á. bergbrúninni. Þar gat hann unað sér tímunum sam- an. En vetrarlangt lá liann í bóli sínu. Hann liafði þá mjög gaman af því, ef einhver settist hjá honum og skraf- aði við hann, því að hann var andlega heill og fylgdist vel með öllu. Ég hafði alltaf verið mesta uppá- haldið lians af okkur systkinunum, enda elztur þeirra, orðinn 20 ára, og tekinn við fjárgæzlu, en af sauðfénu þráði afi mest að frétta. Ég settist því inn til hans á kvöldin, er ég.kom heim af heitarhúsunum og liafði lok- ið við að borða. Það kom líka oft fyrir síðastliðið ár, að Hildur vinnukona kom inn til afa, meðan ég var hjá honum og settist hjá okkur. Hún var dóttir ná- granna okkar, tveim árum yngri en ég. Við Hildur liöfðum verið leik- systkin frá bernsku, og eftir því sem við eltumst, hafði hin barnslega vin- átta okkar breytzt i ást. Við höfðum heitið hvort öðru ævarandi tryggð, en ekki sagt neinum frá því, enda alltaf farið dult með samband okkar. Engu að síður held ég, að afa hafi rennt grun í, livað fara gerði milli okkar Hildar, enda þótt hann minnt- ist aldrei á það. Síðastliðið sumar hafði ég veitt því eftirtekt, að Jón vinnumaður var allt- af aftan í Hildi, þegar liann gat því Við komið, og þá fann ég til þeirrar hræðilegu kenndar, sem ég liafði aldrei þekkt fyrr: afbrýðiseminnar. Mér fannst jafnvel, að Hildur reyndi Sem oftast að vera ein með Jóni, eða var það ef til vill hugarburður? Þetta varð til þess, að við Hildur fjarlægð- umst livort annað smátt og smátt, en þá sjaldan við fundumst, var eins og

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.