Samtíðin - 01.02.1961, Page 7
blað 28. árg,
Mo. 269
Febrúar 1961
SAMTfÐIM
HEIIUILISBLAÐ TIL SKEIUIUTLIMAR OG FRÓÐLEIKS
SAMTíÐIN kemur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: SigurSur Skúla-
S°n, Reykjavik, simi 12526, pósthólf 472. AfgreiSslusími 18985. ÁrgjaldiS, 65 kr. (erl. 75 ki\),
Sreiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka i Bókaverzlun
ísafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf.
Eitraðar sigarettur vaida áhyggjum
ÁSÓKN fólks í tóbak og áfengi til að róa taug-
arnar eða eyða tímanum getur orðið örðug við-
*Ángs. út yfir tekur þó, er menn láta sér ekki
n*gja áfengis- og tóbaksnotkun, heldur taka að
neyta enn hættulegri eiturtegunda, eins og oft
a sér stað.
Svonefndar m a r i h u a n a-sígarettur hafa
Verið mjög á dagskrá erlendis upp á síðkastið.
Og af því að þar er um hættulegt eitur að ræða,
skulu hér birtar til viðvörunar nokkrar upplýs-
'ngar vísindamanna, sem fram hafa komið ný-
lega, þar sem afleiðingar þe§sarar eiturnautnar
hefur verið mjög á dagskrá í Danmörku og Eng-
landi í vetur.
1 marihuana-sígarettum er háskalegt eitur.
^ndir áhrifum þess eru neytendur þeirra vísir
l'l að vinna hvers konar ofbeldisverk, jafnvel
^yrða saklaust fólk. Eftir á muna þeir svo alls
ekki, hvað gerzt hefur. Þar sem æskufólk er
s°lgnast í þessar sígarettur, er hætta á, að af-
le'ðingar nautnarinnar verði þeim ævilangur far-
artálmi.
Marihuana-eitrið er oft nefnt h a s h i s h. Það
er unnið úr indverskum hampi eða venjulegum
n'tabeltishampi. Kröftugastar verkanir hefur það
1 s'garettum. Kunnur erlendur prófessor í lækna-
'isindum hefur komizt svo að orði: Eitrið hefur
^st áhrif á stóra heilann. Eftir að hafa sogað
Pað einu sinni eða tvisvar að sér úr sígarett-
nnni, „finna menn á sér“, svo að um munar.
eruleikakennd þeirra sljóvgast, og þeim líður
'ek Veik hljóð virðast miklu sterkari, og venju-
egt ljós veldur ofbirtu í augum. Síðan taka
rnenn að sjá alls konar ofsjónir. Herbergi, sem
þeir eru í, verður allt í einu undarlega stórt,
gólfið tekur að hallast eins og skipsþilfar í ósjó,
en birtan verður þokukennd. Þeim sýnist and-
lit fólks ýmist þríhyrnd eða ferhyrnd, fætur
sjálfra þeirra verða fisléttir, en þó furðu stórir.
Öll vandamál leysast vitanlega af sjálfu sér, og
öll tilveran verður rósrauð af einskæru áhyggju-
leysi. Sumir reykjendur verða þó angistarfullir
af eitrinu, en allir glata timaskyni sínu. Mín-
úturnar verða að klukkustundum. Sumir fá ó-
stöðvandi hláturköst, og sé mikið reykt, er hætt
við, að menn álpist til að fremja glæpi, eins og
átti sér stað í London og Kaupmannahöfn ekki
alls fyrir löngu.
Glæpahneigðin af völdum eitursins getur orð-
ið óstöðvandi. Jafnvel vísindamenn, sem reyktu
marihuana-sígarettur til þess eins að ganga úr
skugga um eiturverkanir þeirra, ruku til í æði
og ætluðu að skera sig á háls! Hjá sumum klofn-
ar persónuleikinn, og menn sjá sjálfa sig eins og
um aðra menn væri að ræða. Menn verða þó ekki
reikulir í göngulagi, og kynhvöt þeirra örvast
yfirleitt ekki, en marga langar til að hoppa, dansa
eða hlaupa. Hættulegasta afleiðing marihuana-
reykinga er hin ómótstæðilega glæpahneigð
neytendanna.
Það, sem nú hefur verið sagt, ætti að nægja
sem aðvörun gegn notkun þessa viðbjóðslega
eiturs. Er þess að vænta, að reynt verði eftir
föngum að bægja marihuana-eiturplágunni frá
íslenzkum æskulýð og öðru veikgeðja fólki, er
auðveldlega gæti fallið fyrir þeirri hættulegu
freistingu að reykja þessar geigvænlegu sígar-
ettur af rælni.