Samtíðin - 01.02.1961, Blaðsíða 18

Samtíðin - 01.02.1961, Blaðsíða 18
14 SAMTÍÐlN Nokkrar AUÐUGUSTU KONUR heimsins FYRIR hálfri öld var það næsta fátítt, að konur væru orðaðar við mikla fjár- söfnun. í því mikla auðjöfralandi, Banda- ríkjunum, fyrirfannst þá aðeins ein kona, sem talin var milljónari. Nú er það hvort tveggja, að peningar hafa lækkað í verði og að allmargar konur hafa gerzt auðugar á borð við harðsvíraða karl- menn. Ýmsir af lesendum SAMTÍÐARINNAR hafa vafalaust gaman af að fræðast um, hvaða tólf konur eru taldar auðugastar í heiminum um þessar muildir og livern- ig auður þeirra er til kominn. • Wilhelmína, fyrrum Ilollands- drottning, sem lét af ríkisforustu fyr- ir tólf árum, er tal- in auðugasta kona heimsins. Eignir hennar munu var- lega áætlaðar um 23.300 millj. ísl. króna. Mest hefur hún auðgazt á í- tökum sínum i Af- ríku og Asiu. • Begtun, ekkja Aga Khans, er af ýmsum talin næstauðugasta kona heims- ins, en arfurinn eftir mann hennar er vendilega falinn víðsvegar um lönd, og mun henni einni kunnugt um, livar allir þeir ofhoðslegu fjármunir eru niður komnir. • Elí.sabet Englandsdroltning er tal- in eiga um 6.000 millj. kr., en árslaun hennar nema tæjum 53 millj. kr. og eru skattfrjáls. Hún á um 6000 gömul og geysiverðmæt málverk, en auk ]>ess um 5 lestir af borðhúnaði, m. a. úr gulli og dýrasta postulíni. Bókasafn á hún mjóg verðmætt og gífurlega mikið af demönt- um, þar á meðal stærsta og glæsilegasta demanl heimsins, 530 karata steinina Fyrstu Afríkustjörnuna (First Star °í Africa). • Suzy Volterra er auðugasta kona Frakklands. Hún á m. a. marga heztu veð- ldaupahesta landsins. Hún var upphaf' lega halletdansmær, en giftist Volterra nokkrum, sem var sérfræðingur í ölhn er að veðreiðum laut. Aldrei keypti hann þó veðhlaupahest nema ráðfæra sig áðm við konu sína. Er hann andaðist 19T9- erfði Suzy allar eigur hans og hefur sið- an ávaxtað sitt veraldlega pund mj°S snoturlega. Frúin er 42 ára gömul. Hu*1 er löngu orðin margmilljónari, og hesta* hennar liafa oftar en einu sinni sigrað * Derby-veðreiðunum frægu í Englandi- • Florence Gould kom til smába\l' arins Juan Ies Pins á frönsku Bláströnd- inni á þriðja tug aldarinnar ásamt jnan*** sínum. Þar var þá næsta Iítið um að vera- Þau hjónin hófust þegar handa um a reisa gistihús í bænum, og nú á f*11 Gould, sem er orðin ekkja, þar viðhafn' argistihús og skemmtistaði og raka* saman fé á því að hýsa kvikmynda- stjörnur og frægt hátekjufólk, sem henU' sækir Juan les Pins ái’lega til að baða s*S í Miðjarðarhafinu og njóta annarra lysl1' semda lífsins. ^ • Hertogafrúin ctf Alba er ung, fögul og stórættuð og ekki einungis auðugasta kona Spánar, heldur yfirskyggir hún Þ£rl frú Volterra og frú Gould, livað auðleg snertir. Hún á fimm hallir á Spáni dýrmæt málverk og forngripi, svo a* hundruðum skiptir. Auk þess á hún fjófí ur ung börn. Hún er talin umhyggjusö*'1 húsmóðir, en ver að öðru leyti tímanu**1

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.