Samtíðin - 01.02.1961, Síða 8
4
samtíðin
TIL LESENDA
OKKAR
4 Við bjóðam velkomna marga nýja
áskrifendur síðan um áramót.
4 Við munum leggja áherzlu á að
fjölga skopsögum blaðsins og auka ann-
að skemmtiefni og bgrjum á nýjum skop-
sögudálki, er nefnist ÁSTAGRlN.
4 Þegar kemur fram á árið, bgrjum
við að birta SANNAR ÁSTASÖGUR, eins
og lífið sjálft hefur samið þær, og vinsæld-
ir þeirra munu ekki bregðast.
4 Þrátt fgrir aukinn útgáfukostnað
verður hið lága árgjald blaðsins, 65 kr.,
óbreytt. Það fellur í gjalddaga 1. febrúar.
Vinsamlegast sendið það nú þegar í póst-
ávísun eða ábyrgðarbréfi. Utanáskrift:
SAMTÍÐIN, Pósthólf 472, Reykjavík. —
Bókaverzlun Isafoldar, Austurstræti 8
veitir áskriftargjöldum viðtöku.
4 Sendið SAMTÍÐINNI marga nýja
áskrifendur á þessu ári. Þið gerið vinum
yðar greiða með því að kynna þeim jafn
fjölbreytt og ódýrt heimilisblað, sem birt-
ir efni við allra hæfi.
4 Gerum 1961 að metári í útbreiðslu
SAMTlÐARINNAR.
Gullsmiðir Steinþór og Jóhannes,
Laugavegi 30. — Sími 19209.
Trúlofunarhringir, 14 og 18 karata.
Steinhringar. GuIImen.
IEIZTU ^
• -----------------f---------
1. Hver orti: „Ó, fögur er vor fóstur-
jörð“?
2. Hvenær árs hrafnar halda þing?
3. Hver hefur átt lengst sæti á Alþingi
allra íslendinga?
4. Hvaða land er nefnt: Land hinna
þúsund eyja?
5. Hvaða land er kallað: Þúsund vatna
landið?
Svörin eru á bls. 32.
2)ruuma RAÐ N IN GAR
• DÓTTIR. Dreymi þig dauða dóttur
þinnar, veit það á, að hún giftist vel.
• FISKASAFN. Sjáir þú fiskasafn
(aquarium) með mörgum fiskum 1
draumi, veit það á, að þér mun veitast
gnægð tækifæra. Verra er, ef engir fiskar
eru í búrinu. Þá veit það á, að þér er ráð-
legast að hætta við fyrirætlanir þínar,
nema ráð traustra manna komi þar til-
• BANJÓ. Að dreyma þetta liljóðfæri
veit á gleði. Sé leikið á það fjörugt lag,
merkir það góða framtíð. Aftur á móti
veit það á sorg, ef spilað er dapurlegt lag
á banjóið.
• FORNGRIPIR. Dreymi þig forn-
gripi, sem hægt er að bera, hoðar það þer
hagstæð viðskipti. Að þykjast eiga forn-
gripi veit á auðlegð.
• TYGGIGÚMMÍ. Dreymi þig tyggi'
gúmmí, veit það á, að leti þín mun valda
þér miklum vandræðum.
önnumst allar myndatökur
bæði á stofu og í heimahúsuni.
STUDIO
Laugavegi 30. Sími 19-8-49.