Samtíðin - 01.02.1961, Síða 20
16
SAMTÍÐIN
Stúlkan með brosmildu augun
JVýjtistu kviktnyntiatiís
M'rttkklttntls
MYLENE DEMONGEOT lieitir hún og
hefur öll skilyrði til að sigra i hinni hörðu
samkeppni kvikmyndadísanna. Margir
kalla hana Brigitte Bardot aðra. Hún
mótmælir því harðlega og segir:
,JÉg er ekki B. B. önnur, heldur Myléne
Demongeot fyrsla.“
Keppinautum hennar, þeim Blrigitte
Bardot, Marilyn Monroe, Sophiu Loren,
Jane Mansfield og Ginu Lollobrigidu, er
alls ekki sama um alla þá aðdáun, sem
þessi unga þokkadís með brosmildu aug-
un liefur orðið aðnjótandi. Það er ekki
að ástæðulausu. Myléne er þeim skæður
keppiuautur. Ilún á sér kynþokka á við
Brigittu, er kvenleg eins og Gina, barns-
leg eins og Marilyn, skapmikil eins og
Sophia og framgjörn eins og Jayne. Auk
þess á hún sér mikla leiklistargáfu. Kyn-
þokkinn einn nægir leikkonum ekki.
MYLÉNE er fædd í Nice 29. sept. 1936.
Faðir hennar var efnaður. Hann hafði
starfað í þanka í Ivína, en seinna í franska
fjármálaráðuneytinu. Móðir hennar er
rússnesk. Ekki skorti Myéne ástríki í föð-
urgarði, en sá ljóður var á ráði hennar,
að hún var rangeygð. Olli það henni
miklu hugarangri. Bæði átti hún örðugt
með að lesa af þeim sökum, og auk þess
stríddu skólasystkinin henni með því.
Myléne tók sér það nærri, en leitaði hugg-
unar í tónlistinni og hugðist verða píanó-
leikari.
Svo var hún send i klausturskóla, en
var rekin þaðan, af því að hún safnaði
leikaramyndum!
*
*
Þegar hún var 14 ára, var hún svo
harmþrungin yfir sjónskekkju sinni, a®
hún ákvað að fyrirfara sér. Hún fór þvl
inn í baðherbergi, tók rakvélarblað og
skar á slagæðina á úlnliðnum. Faðn
hennar kom lieim i sömu svifum, hringdi
í sjúkrabíl, og telpan var flutt í sjúkra-
hús.
Sjálfsmorðstilraunir hafa sjaldan gsef11
í för með sér, en hér tókst betur til on
á horfðist. Myléne skýrði einum af lækU'
um sjúkrahússins frá sjónskekkju sinni,
og hann fékk hana til að láta skera upp
augun. Aðgerðin var kvalafull, og telpan
varð að dveljast liálft ár i sjúkrahúsinu-
Hún lét það ekki á sig fá.
Þegar hún kom af spítalanum, var hun
nákvæmlega eins tileygð og áður! En nu
brá svo við, að henni fór það ágdetlegu-