Samtíðin - 01.10.1961, Síða 16
12
SAMTÍÐIN
ALMENNA BÓKAFELAGIÐ ER STORVIRKT FYRIRTÆKI
HEFUR SENT FRÁ SÉR UM Z5U.UDD BINDI Á RLJMUM 6 ÁRUM
KVÖLDIN lengjast, og lestíðin hefst.
Þess vegna spurðist SAMTÍÐIN nýlega
fyrir um áform og athafnir Almenna
bókafélagsins, sem starfar af atorku að
því að veita góðum bókum inn á þúsund-
ir ísl. lieimila.
Við hittum þá Baldvin Tryggvason,
framkvæmdarstjóra félagsins, og Eirík
Hrein Finnbogason, fulltrúa bókmennta-
ráðs þess, og fengum greið svör við
spurningum okkar.
„Hverju er von á næst?“
„AB sendir á næstunni frá sér bókina:
Náttúra íslands, sem er ritgerðasafn eft-
ir ýmsa fremstu vísindamenn okkar.“
„Og' hverjar verða október-, nóvember-
og' desemberbækur AB?“
„Októberbókin verður Völuskrín, úr-
val smásagna og ljóða eftir Kristmann
Guðmundsson. Hanri hefur sjálfur valið
efnið i bólcina, sem kemur út í tilefni af
sextugsafmæli lians.
Nóvemberbókin verður mjög mynd-
skreytt ril um Frakkland, gefið út í sam-
vinnu við Time-Life fyrirtækið i New
York. AB hefur gert samning við þetta
fyrirtæki um útgáfu á bókaflokki um
ýms lönd og þjóðir, sögu þeirra og menn-
ingu. Enn er óráðið, hve margar þess-
ara glæsilegu bóka koma út hjá okkur,
en þær verða a. m. k. 6. Myndir bókanna
eru fjölmargar, bæði litmyndir og svart-
bvítar. Þær verða prentaðar erlendis,
samtímis fyrir útgáfufyrirtæki margra
landa, og dregur það mjög úr kostnað-
inum.
Desemberbókin verður fyrra bindi
langrar ævisögu Hannesar Hafsteins eft-
ir Ivristján Albertsson og nær til 1904.
Bindið kemur á aldarafmæli Hannesar.“
„Og svo fáum við vonandi gjafabók fyr-
ir jólin eins og vant er?“
„Já, hana fá allir félagsmenn, sem
keypt hafa a. m. k. 6 AB-bækur á árinu.
Við sendum næst Sögur Þórhalls biskups
í útgáfu Tómasar Guðmundssonar. Þess-
ar sögur birtust á sinum tima i hinu
merka Kirkjublaði biskups.“
„Sumir segja, að jólabók ykkar sé kær-
konmasta jólagjöfin, en segið þið okkur:
Hvert er veigamesta rit, sem AB hefur
sent frá sér?“
„Tvímælalaust bókin Heimurinn okk-
ar, sem kom 1957 og 'er löngu uppseld.
Við gáfum liana út í samvinnu við
Time-Life."
„Og hvað fleira er í vændum?“
„Stórt verk um íslenzkar fornbók-
menntir og íslenzk þjóðfræði i a. in. k.
5 bindum.“
„Um hvað fjalla þau?“
„Þar er um að ræða: Málsháttasafn,
orðtakasafn, lausavísnasafn fram til
1900 og þjóðkvæðasafn (2 bindi).“
SAMTÍÐIN árnar AB heilla í hinu
mikla menningarstarfi. Félagið hefur á
rúmum 6 árum sent frá sér yfir 80 bæk-
ur í allt að 250.000 eintökum, sem dreifzt
hafa um öll byggðarlög íslands, og sum-
ar víða erlendis. Þáttaskil i sögu AB
urðu, er það eignaðist hina gömlu og
góðkunnu Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í Austurstræti 18. Þar ætl-
ar það innan skamms að opna mikla
sölusýningu á dönskum bókum.
★