Samtíðin - 01.10.1961, Síða 31

Samtíðin - 01.10.1961, Síða 31
SAMTÍÐIN 27 I>essar stjörnuspár rætast oft bókstaflega og leiðbeina því mörgunr. /I ÍbbuvIisspúr fyrir ulitt daya í ohióher 1. Heimilishagir þínir munu batna. Gott ár að mörgu leyti. 2. Dálítið áhyggjusamlegt ár, enda verða dálitlir örðugleikar heima hjá þér. 3. Vertu varfærin(n) í fjármálum. Ástamál- in munu valda nokkrum áhyggjum. 4. Fyrstu fjórir mánuðirnir munu verða dá- litið þreytandi. Varastu óheiðarleik annarra. Síðan fer allt að ganga betur. 5. Varastu snögg áhrif. Gættu heilsunnar vel. Næsta vor færir þér heillaríkar breytingar. 6. Nokkurs óstöðugleika mun gæta, hvað störf þin snertir. Fyrri helmingur ársins verð- ur happadrjúgur. Síðan verða örðugleikar vegna afbrýðisemi. Lok ársins verða betri. 7. Fyrri helmingur ársins verður góður til ásta og hjúskapar. Nokkur óvissa ríkir um miðsumar 1962, hvað störf og fjárhag snertir. Seinna verður öryggið meira. 8. Afbragðsár á öllum sviðum. Við óskum þér til hamingju. 9. Gott ár nema á tímabilinu april—júní. Þá skaltu varast hæpnar breytingar. Reyndu heldur að semja þig að aðstæðunum. 10. Það, sem eftir er af árinu 1961, verður gott til fjár og ásta. Gættu heilsunnar vel fyrstu 6 mánuði ársins 1962. Eftir það vex öryggið. 11. Fyrri helmingur ársins verður dálítið viðsjárverður. Gættu þín fyrir hættum og slys- úm. Siðan verður bjartara yfir. 12. Þetta verður prýðilegt ár að mörgu leyti. 13. Það lítur út fyrir, að verulegrar óánægju muni gæta með rikjandi ástand. Gættu þess að ^áta það ekki spilla vinfengi þínu við aðra. 14. Gættu þín vel i viðskiptum þínum við yfirvöldin. Frá páskum til miðsumars verður hezti starfstími ársins. 15. Óvissa mun ríkja um 4 fyrstu mánuði ársins. Eftir það mun þér farnast vel. 16. Þetta verður ágætt ár, nema hvað nokkr- *r örðugleikar kunna að verða í maí og júní 1962. Þá þarf að gæta sín. 17. Mikil hamingja er í vændum. Höppin °g tækifærin blasa alls staðar við. Smávegis aðgæzlu er þörf í árslokin. 18. Gættu varúðar, hvað það snertir að stofna til nýrrar vináttu. Hún getur spillt gömlu vinfengi. 19. Ýmsar óskir þínar og vonir geta rætzt. Breytingar eru fyrirsjáanlegar á seinni helm- ingi ársins. Varastu þá stifni. 20. Nokkurs óstöðugleika mun gæta. Gættu starfs þíns vel, og forðastu hæpnar breytingar. 21. Þrátt fyrir óvissu er hægt að skapa sér miklu meira öryggi. Treystu öðrum ekki of vel. 22. Vertu ekki of áhrifagjarn(gjörn) né eirð- arlaus. Þú mátt búast við andstöðu. Sýndu festu, en forðastu öfgar. 23. Fyrri hluti ársins verður hagstæður, en nokkurs kviða mun gæta hjá þér nálægt pásk- um 1962. September ’62 verður heilladrýgsti mánuður ársins. 24. Fyrri helmingur ársins mun verða þér happadrjúgur, einkum hvað fjárhag snertir, en eftir það skaltu reyna að varast að verða fyrir tjóni. 25. Dregið getur til árekstra á fyrri helm- ingi ársins, en síðar er útlitið betra, og störf munu þá ganga betur. 26. Erfiðleikar geta orðið vegna skyldmenna og nágranna. Seinni hluti ársins verður miklu betri til starfs og ásta. 27. Óvissa mun rikja um ýmislegt á þessu ári. Nemendur munu þá eiga við nokkra örð- ugleika að striða. Ágústmánuður verður beztur. 28. Breytingar kunna að verða á heimilis- högum þínum og að ýmsu leyti til góðs, en var- astu óhöpp í marz og apríl. Ýms höpp verða eftir það. 29. Fyrstu þrír mánuðir ársins og þrir þeir síðustu verða beztir, einkum hvað heimilismál snertir. Á miðhluta ársins getur hins vegar oltið á ýmsu. 30. Viðsjárvert ár, og ýmislegt getur þá gengið úr skorðum. Varastu málaferli. 31. Vertu ekki of metnaðargjarn(gjörn); það getur hefnt sín. Þú munt þurfa að búa þig betur undir það starf, sem þú þráir. ÞAR EÐ „Samtíðin" kemur ekki út í ágúst og septemberblaðið var prentað tímanlega, féllu afmælisspárnar niður þá tvo mánuði. Þeir, sem kynnu að óska að fá birtar afmælisspár sínar úr þessum mánuðum, fá þær í desemberblað- inu, ef beiðnir þeirra berast okkur ekki síðar en 1. nóv.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.