Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 14
10
SAMTÍÐIN
Idæði mig þannig, að mér líði vel, en
ekki til að vekja kynhvatir hjá karl-
mönnum."
Bólur og fílapenslar
GUJA skrifar mér og hiður mig um
ráð við bólum og fílapenslum, en bannar
mér að birta bréfið.
SVAR: Afsakaðu, Guja mín, að dreg-
izt liefur að svara bréfi þínu, af því að
önnur voru á undan. Bólurnar á þér
stafa af þvi, að þú ert að byrja að þrosk-
ast líkamlega, en ættu þó alls ekki að vera
til. Til þess að losna við þær þarftu að
neyta hollrar fæðu, helzt mikils græn-
metis og ávaxta á hverjum degi, en minna
af feitmeti, kjöti og fiski. Sólböð eru
einnig holl, en nú er enginn kostur á þeim
að sinni. Heit böð og einkum svitaböð
eru nauðsynleg. Þú mátt ekki búast við,
að þetta læknist í skjótri svipan, en það
lagast með timanum. — Þín Freyja.
Hrædd við að segja mömrnu
LÚLLA skrifar: Elsku Freyja. Geturðu
ekki hjálpað mér? Ég er ófrisk, og það
eru tveir mánuðir, síðan ég vissi það, en
ég hef ekki þorað að segja mömmu frá
því.
Ég er einkabarn, og mannna er ekkja.
Hún bindur mildar vonir við mig, og
okkur kemur mjög vel saman. Ég er enn
í skóla, og — ég þori ekki að segja
mönnnu eins og er. Ég botna bara ekkert
í, að svona skyldi fara. Pilturinn, sem á
barnið, Iiitti mig á skemmtun, og á eftir
gerðist þetta. Ég veit ekki einu sinni,
hvað hann heitir, og við verðum áreiðan-
lega aldrei hjón. Ó, ég veil ekki, livað ég
á að gera. Mér líður alveg voðalega illa.
Góða, gefðu mér ráð.
SVAR: Þú skalt undir eins segja
mömmu þinni, hvernig komið er. Ef hún
skyldi reiðast þér, verðurðu að vera við
Nýjasta Parísargreiðsla.
þvi búin. Annars gæli ég bezt trúað, að
hún tæki þessu rólega, þegar hún sér,
live illa þér líður. Ég vona, að ykkm'
semji vel. — Þín Freyja.
-jfc- Harðar og rauðar hendur
FRÚ ALDA skrifar og biður mig uni
ráð við hörðum og rauðum liöndum.
SVAR: Hér eru liollar æfingar, sem þú
skalt gera nokkrum sinnum á dag:
Réttu handleggina beint fram, láttu
hendurnar hanga máttlausar frá úlflið-
um og hristu þær síðan nokkur andar-
tök. Haltu höndunum beint upp frá oln-
bogum og bristu þær alveg á sama liátt.
Kjörréttur mánaðarins
Hráit gulrófu- og eplasalat í ólíven-
olíu. Kálfakótelettur með tómatsósu. ■—
3 stórar gulrætur eru rifnar ásamt 1—^
eplum. 3 msk. af ólívenolíu og % msk. af
eplaediki er hrært vel saman í skál og
grænmetið síðan selt út i. Borðist á und-
an aðalrétlinum með heilhveitibrauði
eða hrökkbrauði.