Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 eins og ófreskjan væri að þreifa fyrir sér, hvort hún gæti komizt þar inn. En ég herti upp hugann, vísaði allri hræðslu á bug, þreif viðaröxina og opnaði dyrnar upp á gátt. Vömbin á snjóskrimslinu tróðst inn um dyrnar, jafnskjótt og þær opnuðust, og fyllti úl í þær! Það lagði helkulda af þess ferlíki. Ég reiddi öxina til höggs og keyrði hana af öllu afli inn i kviðinn á tröllinu. í sama bili kvað við dynkur, likt og frá sprengingu í nokkrum fjarska, en ég skall endilangur aftur á bak á eld- húsgólfið, og snjóskriða helltist yfir mig, svo að mér lá við köfnun. Leiftursnöggt velti ég mér á grúfu og skreiddist með herkjubrögðum út úr ísköldu snjóflóð- inu. Eftir nokkra stund tók það að hráðna og jafnframt sá ég, að snjókarl- ínn var orðinn að rennvotri hrúgu á ti'öppunum. Smám saman leystist hún sundur í hlákunni. Ég fór nú að hreinsa krapið af eld- húsgólfinu og tröppunum. Ég var í fyrstu óstyrkur og titraði á læinunum, en að lokum var allt orðið hreint og fágað, og ég gat loks hrósað sigri! 1 þessum svifum var dyrabjöllunni hringt, og lögregluþjónn stóð við götu- dyrnar. »>Mér skilst, að þið liafið átt hér í ein- hverjum brösum við snjókarl,“ sagði hann glottandi. »»Já, en nú er því lokið, og hann er bráðnaður í hlákunni,“ anzaði ég sigri hrósandi. „Þakk yður fyrir þér komuð, PÓ seint væri,“ hætti ég við minnugur samtalsins við lögregluþjóninn á stöð- inni. »,Gott,“ sagði lögregluþjónninn, „en mér slcilst, að þetta hafi verið heldur barna- leg kvaðning, bætti hann við, bar hönd- lna upp að húfunni og var liorfinn. Ég snaraðist að símanum og greip tól- !ð. Það var jökulkalt. Síðan hringdi ég tii konu minnar, sagði, að nú væri snjó- karlinn bráðnaður, svo að liún gæti kom- ið heim með börnin, þegar hún vildi. LÍFIÐ gekk nú aftur sinn vanagang á heimili okkar, og snjókarlsævintýrið gleymdist furðu fljótt, enda höfðum við um nóg annað að hugsa eius og gengur. En — nú brá svo við, að liúsið hitn- aði ekki, hvernig sem við fórum að. Vorið kom, og sólin hellti geislum sín- um yfir borgina og landið umhverfis hana. En þegar fólk í öllum öðrum liús- um lét glugga og dyr standa opnar til að fá sér svala, urðum við að kynda mið- stöðina hvern einasta dag eins og um hávetur — og dugði ekki til. Fólk, sem kom til okkar, kvartaði um kulda í stof- unum, og garðyrkjumaðurinn okkar furðaði sig á þessum sífellda, ískalda næðingi bak við húsið. Börnin horuðust meira að segja og gátu eklci sofið! Þegar komið var fram á miðsumar, treystum við okkur ekki til að búa við þetta ástand lengur og fluttumst úr iiús- inu. Síðan auglýstum við það til sölu og seldum það síðan fyrir smánarverð, bara til að losna við það! Konan mín grét af söknuði yfir þvi að þurfa að flytjast þaðan. Hún var orðin laugaveikluð af hræðslu og sífelldum kvíða. En smám saman jafnaði hún sig og sættist við hið nýja umhverfi. Af blessuðu húsinu okkar er það að segja, að af einhverjum ástæðum virt- ist enginn geta átt þar heima til lengdar. Það gekk sífelldum kaupum og sölum. Fyrsta árið eftir að við fluttumst þaðan, skipti það þrisvar um eigendur. Loks fór húsasalann að gruna, að einliver álög hvíldu á því. Hann hafði einhverja reynslu af þess háttar í sambandi við aðr- ar húseignir, sem hann liafði verzlað með. Hann leitaði því til lögreglunnar og spurði, hvort húsið ætti sér einlrverja

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.