Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 31

Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN 27 I9ÍGÓLFIIB DAVÍÐSSOIV: ★ OFT er talað um kjarngóða fjárbeit til fjalla og að það sé mergur í fjallagróðri. Þetla má til sanns vegar færa. Það sprettur seint til fjalla og heiða, svo að féð getur gengið þar að yngri og safa- meiri gróðri heldur en á láglendi, þegar líður á sumarið. Á snjósælum stöðum fellur snjór oft á klakalausa jörð, sem svo kemur græn undan á vorin, ])egar snjóa leysir. Og í giljum og lautum tii fjalla er jörðin að koma undan fönu langt fram á sumar — og gróður þar þá Ungur og safaríkur. — Nú er mikið rætt og ritað um ofbeit víða á landinu. Of- beit getur leitt til uppblásturs og hefur sums staðar gert það í geigvænlegum mæli. Ifeitiland getur líka rýrnað þann- xg> að féð velur beztu tegundirnar og' verður smám saman hörgull á þeim, en lélegri beitarjurtir lialda veili. Kvistlendi (fjalldrapi og víðitegundir) þykir golt «1 vetrarbeitar; sömuleiðis beitilyng, sauðamergur o. fl. smárunnar. En um iiásumarið bítast grastegundir miklu meir. Hefur verið rætt um að ejTða kvist- lendi á vissum svæðum og fá gras í stað- ion. En þá þarf að Iiafa öruggt eftirlit ttieð beitinni, svo að landið blási ekki UPP. Skotar hafa rannsakað beitilyng og brok (fífublöð) og segja, að næringar- Sddi í þeim tegundum breytist mun oiinna sumar og vetur heldur en í grasi. Eykur það gildi broks og beitilyngs til haust- og vetrarbeitar og kemur heim yið gamla íslenzka reynslu. I beitilyngi er einnig tiltölulega mikið af karótíni, Ur ríhi náttúrunnar 4 9. qrein Gengið um beitilönd mangan og kopar, og er það mjög til bóta. Segja Norðmenn, að koparinn i beitilynginu lækni „sleikjusýki“ i bú- fénu. Yngstu og fíngerðustu greinar beiti- lyngsins þykja beztar til beitar, en gain- alt, gróft lyng lítils virði. Séð Iief ég fé að sumarlagi ganga um beitilyngmóa og bita aðeins greinatoppana með blóm- unum á. Sauðamergur mun sáralítið hafa verið rannsakaður fóðurfræðilega. Norðmenn telja þó yngstu og fíngerðustu greinar hans fullt eins næringarmiklar og gott beitilyng, enda sækist fé eftir honum. Víðir bítst mikið á vetrum, en minna á sumrin, nema belzt til fjalla, en þar er hann fíngerður og lifnar seint. Loðvíði- breiðurnar miklu, t.d. á þingeysku heið- unum, eru líka eins konar verndargróður, sem gras o. fl. jurtir þrífast innan um. Er sauðfé furðu iðið að tína í sig grasið, sem í víðiskjólinu vex. Fíngerðasta víði- tegundin, smjörlauf, befur jafnan þótt bezta hagkvisti og þóttu kvíaær gefa feita mjólk af smjörlaufi. Vex það víða í dæld- um, sem koma seint undan snjó og sæk- ir fé í það nýsprotlið langt fram á sumar. Smjörlaufið befur verið kallað sauð- laakur .sums staðar á Austurlandi. Bend- ir það á beitargæðin, og þar er lika feng- in skýring á ýmsum Sauðlauksdalsnöfn- um hér á landi. Krækilvng bítst nokkuð á vetrum. Notkun fjallagrasa gegn kvefi og lil manneldis er alkunn. Norðmenn telja fóðurgildi fjallagrasa og hreindýra- mosa Yg á móti töðu og vera fremur ein- hliða kolvetnafóður.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.