Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN
31
Þeir VITRU SÖgðll Nýjar bækur $
Séra HELGI TRYGGVASON; „Sam-
starfsmenn eiga alltaf að vera fúsir til
að tala saman. Ef þeir eru það ekki, þá er
eitthvað verulegt að. Það er ekki nóg, að
°ienn tali hverjir u m aðra, menn verða að
tala hverjir við aðra, tala saman. Þeir,
sem óska eftir meiri kristilegri uppfræðslu
°S uppeldi barna í landinu fyrir áhrif
heimila, skóla og kirkju, þurfa að ráðgast
hverjir við aðra um málin og starfa sam-
an, eins og Páll postuli sagði, að allur lík-
aniinn eigi að starfa saman. Ef við gerum
það ekki, mun okkur ekki vegna vel, og
ég held, að um það megi vísa til reynslu
nndanfarins tíma. Það á að vera hægt að
segja með sannfæringu og gleði innan tíð-
ar: Hinn kristilegi skóli er starfandi jafnt
í heimilinu, í skólakerfinu og í kirkjunni.“
GELINA ULANOVA; „Það er hlutverk
hstdansarans að gera tónlistina sýnilega.“
KONA; „Karlmenn geta verið svo fríðir,
a<5 maður fái velgju af að horfa á þá.“
POVL SABROE: „Ástfanginn maður er
eins og eldspýta. Hann fuðrar upp, þegar
hviknað er í honum.“
MlSTINGUETT: „Koss getur verið
homma, spurningarmerki, upphrópunar-
merki eða punktur, og þessa merkjasetn-
ingu verður sérhver kona að þekkja til
hlítar.“
NIETZSCHE: „Orsökin til flestra ó-
Sæfusamlegra hjónabanda er miklu frem-
nr skortur á vináttu en ást.“
X: „Trúðu aldrei stúlku, sem segist vera
ætt að elska karlmenn. Hún á bara við,
að slitnað sé upp úr síðustu trúlofuninni
sinni.“
SENECA: „Sá, sem rænir big tíma þín-
Uni> telur sig aldrei skulda þér neitt, og
Samt er tíminn ómetanlegur.“
Agnar Kl. Júnsson: Lögfræðingatal 173C—1936.
MeS myndum. Bókin hefur að geyma persónu-
legar upplýsingar um alla þá menn íslenzka,
er lokið hafa lögfræðiprófi. 736 bls., íb. kr.
660.00.
Helgi Hálfdanarson: Maddaman með kýrhaus-
inn. Reynd ný leið í leitinni að Völuspá. 112
bls. ób. kr. 175.00.
Margrét Jónsdóttir: í vökulok. Valið úr gömlum
og nýjum ljóðum. 126 bls., íb. kr. 175.00.
Charles Dickens: Oliver Twist. Saga munaðar-
lauss drengs. Með myndum. 2. útg. Hannes J.
Magnússon þýddi 367 bls., íb. kr. 150.00.
Sigurjón Björnsson: Leiðin til skáldskapar. Hug-
leiðingar um upptök og þróun skáldbneigðar
Gunnars Gunnarssonar. 109 bls., íb. kr. 140.00.
Fermingargjöfin: Stuttar ritgerðir um trú og
siðgæði, eftir íslenzka höfunda. Hugljúf ævin-
týri eftir erlenda böfunda. Litmyndir eftir
Carl Blocli. 246 bls., íb. kr. 280.00.
Ferðasöngbókin 2. útg. aukin og endurbætt.
124 bls., íb. kr. 55.00.
Efnið, andinn og eilífðarmálin. Bókin fjallar
um þær dýpstu gátur tilverunnar, sem sótt
iiafa á fólk á öllum öldum. Með mynduin.
Bókas. Félagsmálast. 4. bók. Ritstj. Hannes
Jónsson. 216 bls. ób. kr. 200.00.
Ólafur Björnsson: Þjóðarbúskapur íslendinga.
2. útg. Tilgangurinn með bók þessari er sá að
gefa heildaryfirlit yfir þjóðarbúskap íslend-
inga, á livaða grundvelli bann er rekinn og
iivernig efnahagskerfið starfar. 423 bls., íb. kr.
500.00.
Benjamín Sigvaldason: Gamlar sögur og nýj-
ar. Sagnaþættir. 180 bls., ób. kr. 130.00.
Thor Vilhjálmsson: Kjarval. Ævisaga. Myndir
og litmyndir af verkum iistamannsins. 141
bls., íb. kr. 755.00.
Ólafur H. Óskarsson: íslenzk-þýzk vasaorðabók.
(Islandisch-deutsches Tascbenwörtenbuch).
215 bls., ib. kr. 75.00.
Hubert Klinger-Klingerstorf: Sjálfsvörn, byggð
á ju-jutsu. Með myndum. 62 bls., ób. kr. 64.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk-
urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gcgn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun Isafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.