Fréttablaðið - 08.01.2010, Síða 22
2 föstudagur 8. janúar
helgin
MÍNnúna
✽ nýtt og spennandi
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Ásta Kristjánsdóttir
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
GLÆSILEG Leikkonan Sarah Jessi-
ca Parker var flott í bleiku á frumsýn-
ingu kvikmyndarinnar Did You Hear
About the Morgans í London.
Þetta byrjaði auðvitað allt saman vegna þess að ég er sjúk í föt,“
útskýrir Harpa Pétursdóttir, mast-
ersnemi í lögfræði, en hún var að
setja á laggirnar síðuna www.loul-
ou.is. Síðan sérhæfir sig í að selja
fallegar flíkur sem eru jafnframt
ódýrar. „Ég hef lengi verið að leita
að leiðum til þess að geta keypt
föt sem kosta mig ekki tugi þús-
unda eins og oft vill verða hér á Ís-
landi. Það virðist ekki vera hægt að
kaupa fallega flík fyrir eitt tækifæri
án þess að það kosti formúu og svo
eru þetta kannski föt sem maður
notar sjaldan aftur. Mér hreinlega
ofbauð verðlagningin hér heima.“
Harpa pantar inn föt frá Bretlandi,
Los Angeles og Ástralíu og selur
þau á vefsíðunni. „Ég vel föt sem
mig myndi sjálfa langa í og þau eru
svona hæfilega klassísk en þó allt-
af með einhverjum skemmtilegum
avant-garde blæ.“ Þess má geta að
Harpa selur einnig „vintage“ föt
á Facebook undir síðunni Loulou
Second Hand en þar er að finna
lítið notaðar merkjavörur. - amb
Vefverslunin Loulou fer í loftið
Ofbauð verðlagið
Ódýr og falleg föt Harpa Pétursdóttir er
með vefsíðuna Loulou.is þar sem hægt
er að versla á góðu verði.
Glænýtt par
Íslenska fyrirsætan Tinna Bergs
og hönnuðurinn Mundi slitu sam-
vistum fyrir nokkru en Tinna er nú
komin með nýjan kærasta upp
á arminn. Það mun vera enginn
annar en plötusnúðurinn og hár-
greiðslumaðurinn Jón Atli Helga-
son en neistarnir flugu á milli þeirra
í áramótafagnaði Jóns Jónsson-
ar á skemmtistaðnum Austur. Þess
má geta að Jón Atli framleiddi
myndband fyrir Gus Gus, Add This
Song, þar sem Tinna var í aðal-
hlutverki.
É g hef lengi haft brennandi áhuga á því að hjálpa fólki að hugsa vel um sig, breyta
um lífsstíl og lifa góðu lífi,“ segir jógakenn-
arinn, markþjálfinn og heilsuráðgjafinn Ingi-
björg Stefánsdóttir. Hinn 18. janúar hefst sex
vikna lífsstílsnámskeið í Manni lifandi sem
hún skipuleggur, ásamt Arndísi Thorarensen,
eiganda Manns lifandi. Á námskeiðinu ætlar
hún að hjálpa fólki að virkja sinn innri kraft
til að ná tökum á nýjum og betri venjum með
þjálfun og aðhaldi. Það mun ekki einungis snú-
ast um mat, heldur um það hvernig fólki líður
almennt í lífinu, í sambandinu sínu, eða í vinn-
unni og hvernig það tengist oft mataræðinu.
Námskeiðið verður byggt upp á einstaklings-
viðtölum, fyrirlestrum Ingibjargar og gesta-
fyrirlesara og umræðum. Kennt verður í tíu
manna hópum á þriðjudögum og fimmtudög-
um, frá 18 til 19.30, samtals í níu skipti.
Ingibjörg er nú í fjarnámi við Institute of In-
tegrative Nutrition í New York, þar sem hún
leggur stund á lífsstílsnæringarfræði. Hún
nýtur sín vel þar. „Ég hef aldrei farið í svona
flott nám áður, það er virkilega vel upp sett
og ég er uppnumin eftir hvern fyrirlestur. Það
er mikið efni að fara yfir en þetta er rosalega
skemmtilegt,“ segir hún. Áður einbeitti hún sér
fyrst og fremst að jóganu, þótt hún hafi alla tíð
haft mikinn áhuga á hollu mataræði. „Það er
oft þannig með fólk sem stundar jóga að það
fer ósjálfrátt að verða meðvitaðra um hvað það
setur ofan í sig. Í gegnum kennsluna hefur fólk
svo oft verið að spyrja mig ráða um mataræð-
ið, svo ég ákvað að drífa mig að læra meira.
Mig langar virkilega að hafa meiri áhrif þarna,
á hvað fólk setur ofan í sig.“
Meðal þeirra gestafyrirlesara sem koma
að námskeiðinu eru þær Edda Björgvinsdótt-
ir leikkona og Ásdís Olsen, sem hafði veg og
vanda af útgáfu bókarinnar Meiri hamingja á
íslensku, en hún fjallar um jákvæða sálfræði
og leiðir að hamingjunni í gegnum hana.
Námskeiðið er ætlað öllum, konum og körl-
um, og kostar 39.900 krónur. Innifalið í því er
gjafakort í jógastöð Ingibjargar, Yoga Shala,
sem gildir meðan á námskeiðinu stendur. Þar
að auki fá allir þátttakendur máltíð á Manni
lifandi í hverjum tíma. - hhs
Jógakennarinn Ingibjörg Stefánsdóttir fikrar sig inn á nýjar slóðir:
BREYTTU UM LÍFSSTÍL
Ingibjörg Stefánsdóttir Skipuleggur námskeið í Manni lifandi þar sem meðal annars verður farið í hvernig öðlast
má betra líf með bættri næringu. MYND/HARI
ÓLAFUR ARNALDS TÓNLISTARMAÐUR
Fer í verk hjá Íslenska dansflokknum sem ég þarf eiginlega að skila bara í
næstu viku svo ég verð væntanlega á fullu í því alla helgina. En ef ég finn ein-
hvern tíma fyrir sjálfan mig ætla ég að taka því rólega og horfa á heimildarþætti
sem ég var að detta inn í um pýramídana í Egyptalandi.
Spenningur fyrir
stefnumótaþætti
Mikil eftirvænting ríkir fyrir nýrri
og endurbættri Djúpri laug sem í
þetta sinn verður stjórnað af fjöl-
miðlakonunni Ragnhildi Magnús-
dóttur sem áður var á Kiss FM og
Bylgjunni, og Tobbu Marinósdóttur,
blaðamanni á DV og Séð og heyrt.
Þykir víst að þessar ofurskutlur
verði hressar á skjánum og komi
með nýjar og ferskar hugmynd-
ir fyrir þennan vinsæla stefnumóta-
þátt. Fyrsti þátturinn fer í loftið 12.
febrúar, á föstudegi.
Skóbúð/skóvinnustofa, Grettisgata 3, 101 Reykjavík
Útsalan
er hafi n
25-60% afsláttur
Langur laugardagur opið kl. 11-15