Fréttablaðið - 08.01.2010, Page 26
6 föstudagur 8. janúar
✽ tíska og útlit
tíska
T ískubiblían Vogue velur árlega þær konur sem blað-ið telur hafa framúrskarandi fatasmekk. Þar tróna
sumar konur á toppnum ár eftir ár eins og til dæmis fyr-
irsætan Kate Moss en þó mátti merkja nokkur ný andlit á
listanum eins og Cheryl Cole, og Audrey Tatou.
Smekklegustu konur síð-
asta árs valdar af Vogue
Emma Watson Stjarna Harry Pot-
ter-kvikmyndanna hefur þróað flott-
an stíl síðustu ár og í uppáhaldi hjá
henni eru hönnuðir eins og Proenza
Schouler. Emma var nýlega ráðin
sem andlit Burberry-tískuhússins.
Audrey Tatou
Þessi fallega
franska leikkona
lék Coco Chan-
el í kvikmynd-
inni Coco before
Chanel og gekk
augljóslega að-
eins í Chanel allt
síðasta ár. Ekki
amalegt!
Dannii Minogue
Systir Kylie Min-
ogue var gesta-
dómari í breska
X-factor þætt-
inum og sló í
gegn með fata-
stíl sínum. Hún
gekk í fötum eftir
Osma, Donnu
Karan og Aurelio
Costarella á árinu
sem vann henni
sæti á lista yfir
best klæddu kon-
urnar.
Michelle Obama Bandaríska for-
setafrúin kann að blanda saman
ódýrum merkjum eins og Gap og
J.Crew við hátískuhönnun eins og
frá bandaríska hönnuðinum Nar-
cisco Rodriguez. Henni hefur verið
líkt við forsetafrúna Jackie O.
Cheryl Cole Poppstjarnan og fótboltaeig-
inkonan hefur fært sig úr skinkubúningn-
um yfir í fágaða hönnun, meðal annars frá
hönnuðunum Marios Schwab, Gils, Richard
Nicoll og David Koma, og grætt þar með
prik hjá tískuspekúlöntunum.
Diane Kruger
Leikkonan vakti
mikla athygli í kvik-
myndinni Ing-
lorious Basterds
og enn meiri at-
hygli fyrir flottan
klæðaburð meðan
á kynningum á
myndinni stóð.
Kate Moss
Hin 36 ára
gamla ofur-
fyrirsæta virð-
ist aldrei stíga
feilspor hvað
persónulegan
stíl varðar, .
Sienna Miller
Breska leikkonan
kynnti kvikmynd-
ina GI Joe á árinu
og hefur aldrei
verið flottari. Hún
klæddist meðal
annars fötum frá
Hermes, Peter
Pilotto, Diane Von
Furstenberg og
Isabel Marant.
Georgia May
Jagger Dóttir
Micks Jagger og
Jerry Hall þykir gíf-
urlega smart og er
iðulega mynduð í
kjólum frá Vivienne
Westwood.
SLYDDUSKÓR Nú eru útsölurnar á fullu og
um að gera að fjárfesta í góðum skóm í snjóinn.
Þessir eru frá Marc Jacobs og fást í Kron Kron.
Alexa Chung MTV-
sjónvarpskonan
Alexa Chung er enn
eina ferðina á lista
yfir best klæddu
konur ársins en hún
þykir hafa frumlegan
og sniðugan stíl.
BEST KLÆDDU
2009