Fréttablaðið - 08.01.2010, Side 32
8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
STEPHEN HAWKING ER 68 ÁRA Í DAG.
„Ég hef tekið eftir því að jafn-
vel fólk sem er forlagatrúar, og
telur að allt sé fyrirfram ákveð-
ið og ekki sé hægt að gera neitt
til að breyta því, lítur til beggja
hliða áður en það gengur yfir
götu.“
Breski eðlisfræðingurinn Stephen
Hawking er einn þekktasti fræði-
maður heims og höfundur bókar-
innar Saga tímans. Hann er hald-
inn hreyfitaugungahrörnun sem
lamar líkamann smám saman.
„Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur, eða Ingólfur hjá
Spara.is eins og hann er þekktastur í dag, er fæddur og upp-
alinn á Akureyri. „Ég er fæddist í risherbergi í því merka
húsi Bautanum sem á þeim tíma var Guðmannsverslun,“
segir Ingólfur en hann rekur rætur sínar þó víðar en á Norð-
urlandið. „Foreldrar mínir koma að vestan, móðir mín úr
Dýrafirðinum og faðir minn úr Flatey á Breiðafirði,“ upplýs-
ir hann. Ingólfur bjó á Akureyri allt þar til hann útskrifaðist
úr Menntaskólanum þar í bæ árið 1971.
„Ég fór þá í félagsfræði við Háskóla Íslands sem var alveg
ný grein. Ég var ´68-kynslóðar maður og þótti rétt að velja svo
róttæka grein,“ segir hann glettinn. Róttæknin réði áfram för
eftir útskrift frá HÍ. Ingólfur fór til Þýskalands í framhalds-
nám og valdi sér háskólann í Bremen. „Hann var stofnaður
örfáum árum fyrr og var skóli sem átti að uppfylla kröfur
stúdentahreyfingarinnar, var róttækur og merkilegur fyrir
margra hluta sakir,“ segir Ingólfur. Hann lauk síðan námi í
félagsfræði en hélt ekki heim um leið heldur hóf að kenna.
„Þegar ég var búinn að ljúka mínu námi í byltingarfræðunum
var nefnilega engin eftirspurn lengur eftir byltingarmönn-
um,“ segir hann og hlær.
Eins og með svo marga Íslendinga togaði föðurlandið í Ing-
ólf og þegar hann sneri aftur hóf hann störf hjá Trygginga-
stofnun ríkisins. „Enda hafði ég í náminu lagt áherslu á vinnu
og endurhæfingu,“ segir Ingólfur en lengst af starfaði hann í
umönnunargeiranum, hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatl-
aðra, Geðhjálp og víðar.
Síðan sneri Ingólfur algerlega við blaðinu árið 2003. „Þá
fór ég allt í einu að hugsa um peninga sem er töluvert fjar-
lægt félagsfræðingnum,“ segir hann en að eigin sögn var rót-
tæklingurinn hann alltaf með gat á buxnavösunum og hafði
ekki mikið dálæti á peningum. „Þegar ég stóð á fimmtugu
leist mér ekkert á það hvernig peningamálin voru að þróast
hjá mér. Ekkert nema skuldir, vinna, meiri vinna og ég sem
hafði látið mig dreyma um að fara á eftirlaun snemma og
njóta lífsins í Karíbahafinu,“ segir hann glettinn. „Þá sett-
umst við konan mín niður og reyndum að leysa þessi mál.
Gerðum nokkrar klassískar tilraunir á borð við að skera niður
og hætta að nota Visa en ekkert dugði. Þangað til við duttum
niður á ákveðna aðferðafræði sem svínvirkar og endaði á því
að ég gerði að atvinnu minni að kenna þessa aðferð öðrum,“
segir Ingólfur sem stofnaði í framhaldinu fyrirtækið Spara.
is. Og felst aðferðin þá bara í því að spara? „Nei, það er nefni-
lega svo merkilegt að þetta snýst um að hafa gaman af pen-
ingunum sínum. Ef þú hefur það að markmiði hættir þú að
skuldsetja þig svona mikið, hættir að eyða um efni fram og
ferð að byggja upp sparnað og greiðir niður skuldir. Og þetta
er hægt að gera allt samtímis.“
Ingólfur segist ánægður með viðtökurnar sem hann hefur
fengið. Hann hefur þó ekki staðið fyrir neinum námskeiðum
síðasta árið en fljótlega fer hann af stað á ný með námskeið
sem verða þá meira sniðin að viðbrögðum við kreppunni.
Ingólfur er sextugur í dag. Hann hefur iðulega haldið upp
á afmælið sitt í margmenni en nú mun hann hafa annan hátt-
inn á þar sem hann ætlar til Tenerife. „Ég mun dansa undir
sólinni,“ segir hann glaðlega og kann vel við hlýjuna á Tener-
ife eftir kuldakastið á heimaslóðum. solveig@frettabladid.is
INGÓLFUR H. INGÓLFSSON: ER SEXTUGUR Í DAG
Ætlar að dansa
undir sólinni
FÉLAGSFRÆÐINGUR MEÐ PENINGAÁHUGA Ingólfur H. Ingólfsson
stofnaði Spara.is fyrir nokkrum árum þar sem hann kennir fólki að fara
með peningana sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
Guðrúnar Ágústu
Óskarsdóttur
Ásavegi 2g, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja og Kirkjukórs Landakirkju.
Jóhanna Hjálmarsdóttir Sigurjón Þór Guðjónsson
Viðar Hjálmarsson Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Hjálmar, Guðrún Ágústa, Bjarni Ólafur, Guðjón Orri og
Franz.
80 ára afmæli
Sigríður
Halldórsdóttir
vefnaðarkennari, Kópavogsbraut 1c,
er áttræð í dag 8. janúar 2010. Í því
tilefni býður hún vinum og venslafólki
til kaffi samsætis í kaffi húsinu AMOKKA
Hlíðarsmára 3 Kópavogi, laugardaginn
9. janúar kl. 15.00 - 18.00. Blóm og g jafi r
vinsamlega afþakkaðar.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Hreiðar Eyfjörð Jónsson
Brekkugötu 38, Akureyri,
lést í Sjúkrahúsi Akureyrar 5. janúar. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15. janúar kl.
13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á hjálparstarf ABC.
Soffía Jóhannsdóttir
Jóhann Eyfjörð Hreiðarsson
Hreiðar Eyfjörð Hreiðarsson
og fjölskyldur.
75 ára afmæli
Magnús Theodór
Magnússon
myndhöggvari, TEDDI er 75 ára í dag
8. janúar. Af því tilefni hefur hann opið
hús allan daginn laugardaginn 9. janúar á
vinnustofu sinni Arnarholti á Kjalarnesi
og býður þangað vinum, ætting jum og
velunnurum að koma og þigg ja léttar veit-
ingar og njóta verka hans í tilefni dagsins.
Leiðarlýsing er á heimasíðu hans
www.teddi.net
r
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Árnason
Laugarvegi 33, Siglufirði,
lést 29. desember. Útförin fer fram frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 9. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er vinsamlegast bent á SÁÁ, banki 116 26 452, kt.
521095 2459.
Karólína Friðrika Hallgrímsdóttir
Ólöf Þórey Haraldsdóttir Ásgeir Sigurðsson
Helga Haraldsdóttir Erlingur Björnsson
Ragnheiður Haraldsdóttir
Árni Haraldsson Ragnheiður Árnadóttir
Eyþór Haraldsson
Árni Þór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Friðrik Valby
Jónsson
Austurbraut 4, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn
30. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju,
þriðjudaginn 12. janúar kl. 13.00.
Anna Basilia Pepito
Sigrún Elísabet (Sísella) Gunnarsdóttir
Kristján Valby Gunnarsson
Unnar Valby Gunnarsson Bryndís Jakobsdóttir
Katherine Rose Jónsson Brynjólfur Líndal
Jóhannesson
Ray Anthony Jónsson Gerður Björg Jónasdóttir
Michael James Jónsson Linda Ósk Heimisdóttir
Ronald Glenn Jónsson Gréta Dögg Hjálmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
María Ólína
Kristinsdóttir
frá Horni, Árskógum 6, Reykjavík,
lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Gunnlaugur K. Hreiðarsson Kolbrún Guðmundsdóttir
Helgi Már Hreiðarsson Guðrún Ólöf Sigmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Laufey Haflína
Finnsdóttir
Garðvangi, Garði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, þriðjudaginn
5. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
mánudaginn 11. janúar kl. 13.00.
Finnur Óskarsson Ásgerður Einarsdóttir
Þorbjörg Óskarsdóttir Einar Gunnarsson
Erla Vigdís Óskarsdóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir Guðjón Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Áslaug Böðvarsdóttir
Íragerði 5, Stokkseyri,
verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
9. janúar kl. 15.00.
Einar Ólafsson
Sigrún Kristín Hilmarsdóttir
Kári Böðvars Jóhanna H. Óskarsdóttir
Óskar Ingi, Tómas Þór, Anna Margrét
og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðrún Sturludóttir
Hjallaseli 41, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi, þriðjudaginn
5. janúar sl. Útförin auglýst síðar.
F.h. aðstandenda,
Sigríður Kristín Þórisdóttir Þorkell Samúelsson
Reynir Þormar Þórisson Sveinborg Jónsdóttir