Fréttablaðið - 08.01.2010, Síða 34
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
22 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Rosalega er nú
merkilegt að sjá
þig hinumegin
barborðsins.
Heimurinn er
öfugsnúinn þessa
dagana, hann snýst
í öfugan hring.
Rio Ring-Massi er í ein-
hverjum erfiðleikum með
hnéð á sér og ég veit ekki
hvort hann nær leiknum
gegn Gillingham.
Þarna
komst
heim-
urinn í
samt lag
aftur.
Pabbi, geturðu
lánað mér
pening?
Til að?
Kaupa þetta
brimbretti.
Því miður,
allir mínir
peningar
eru í snjó-
sleðanum
Þú þarft
alltaf að
horfa á
praktísku
hliðina, er
það ekki?
Hvar er
jakkinn
þinn?
Hún er í skól-
anum líka.
Í raun og veru hafa
allar úlpur, jakkar, bolir,
stuttermabolir, treflar
og húfur sem ég á verið
skildar eftir í skólanum.
Viltu vinsamlegast
skrifa undir þetta
plagg hérna, til vonar
og vara, ef þeir skyldu
nota aðgerðina þína
sem myndefni í þátt-
unum „verstu læknar
í heimi“.
Hann er stirður
og haltur
og hnéð á
honum ískrar
þegar hann
hleypur, hann
er gjörsamlega
ónothæfur.
Já, konan á
skrifstofunni
sagði mér að þau
væru að velta því
fyrir sér að kalla
„Tapað/fundið“
eftir mér.
Hver
og ein
ein-
asta
flík?
Farðu þá
í rauðu
peysuna
þína.
Ég skildi hann
eftir í skólanum.
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Menning:
Kolbrún Halldórsdóttir í helgar-
viðtali.
Beinta Maria Didriksen og Levi
Didriksen: Levi níu ára er stoð
og stytta tvíburasystur sinnar
sem er með sjúkdóm sem
aðeins fimm manns í heiminum
þjást af.
Íslensk hönnun eins og hún
gerist best. Húsgögn, arkitek-
túr og vöruhönnun í Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Þrjár óperufrumsýningar í maí.
Mest seldu bókmenntaverk
Evrópu í fyrra.
Íslenska ímyndin á viðreisnar-
árunum.
Allt um Listahátíðina.
Sæll Ólafur, Steinunn hér hjá Ríkisbank-anum. Heyrðu, þetta er varðandi lánið.
Við fengum tölvupóst frá þér á dögunum
þar sem þú kveðst hættur við að borga og
ætlir að nýta „málskotsrétt“ þinn. Get-
urðu skýrt þetta aðeins nánar fyrir mér?“
„Þetta er nú kannski ofmælt hjá þér. Vita-
skuld hleypst ég ekki undan skuldbind-
ingum mínum en það er ljóst að það hefur
myndast gjá milli mín og bankans í þessu
máli og því sé ég ekki aðra leið en að leyfa
fólkinu að kjósa um þessa skilmála ykk-
ar.“„Hvaða fólki?“ „Nú fólkinu á und-
irskriftalistanum.“ „Undirskriftar-
lista? Áttu við ábyrgðarmennina sem
skrifuðu upp á lánið?“ „Bitamunur en
ekki fjár.“
NÚ LIGGUR hins vegar fyrir að
bankinn ætlar að gjaldfella lánið ef
þú borgar ekki. Hefurðu íhugað hvaða
afleiðingar þetta kemur til með
að hafa á fjárhagsstöðu þína og
ábyrgðarmannanna?“ „Ég er
ekki svo mikið að velta mér
upp úr hvað geti gerst á þessu
stigi málsins, læt öðrum
eftir slíkar bollaleggingar.
Ég verð samt að segja að
viðbrögðin við ákvörðun
minni hafa ekki komið
mér á óvart. Ég fékk
innheimtubréf eins
og ég bjóst við, en tónninn í því var tals-
vert jákvæðari en ég átti von á. Ég hef
líka fundið fyrir meðbyr hjá stuðnings-
mönnum mínum á undirskriftarlistanum.“
„Ábyrgðarmönnunum, Ólafur! Við töluð-
um nú við suma þeirra, og þeir voru nú
ekkert alltof hressir, hvorki þegar þeir átt-
uðu sig á hvað þeir höfðu skrifað undir né
með þetta nýjasta uppátæki þitt.“ „Þetta
er hin lýðræðislega hefð.“
EN BANKINN hefur sent þér nokkur inn-
heimtubréf þar sem tekið er fram að hann
mun ekki fallast á þessa fáránlegu skil-
mála þína. Af hverju ætti hann að gera
það núna?“ „Menn hafa nú sagt svo margt
í þessu máli öllu, þannig að það er ekkert
öruggt í þeim efnum og best að vera ekk-
ert að úttala sig um hvernig það fer.“
ÞEIR HJÁ innheimtusviði bankans segjast
nú hafa staðið í þeirri trú að þið hafið kom-
ist að samkomulagi á fundi í síðustu viku.“
„Það var nú ekki efnislegur fundur. Ég átti
leið hjá útibúinu um daginn, leit inn til að
fá heitt að drekka og kannski brjóstsyk-
ur og rakst þá á þessa menn sem þú nefn-
ir. Jú, við röbbuðum eitthvað saman en ég
held að það sé óvarlegt að draga einhverj-
ar stórar ályktanir af því.“ „Ólafur, er þér
alvara? Þú ert að fara að láta lán falla á
ömmu þína.“ „Fólkið hefur talað. Það verð-
ur kosið á Facebook eins fljótt og auðið er.“
Að taka Ólaf á þetta