Fréttablaðið - 15.01.2010, Page 20

Fréttablaðið - 15.01.2010, Page 20
JÓNAS KRISTJÁNSSON heldur úti veitingarýni á vefsíðu sinni www. jonas.is. Þar mælir hann til dæmis með nýja staðnum Eldhrímni. „Þetta er náttúrlega ótrúlegur heiður fyrir okkur að hafa verið valin í þessa keppni, sérstaklega í ljósi þess að varla er ár liðið frá því að við opnuðum í Norræna hús- inu,“ segir Ólafur Örn Ólafsson, annar eigandi og yfirþjónn á veit- ingastaðnum Dill, sem er fulltrúi Íslands í keppninni The Nordic Prize. Keppnin The Nordic Prize er runnin undan rifjum hins danska Bents Christensen, sem ritstýr- ir Spise Guide, þekktri handbók um veitingastaði í Danmörku, og hefur um nokkurt skeið staðið fyrir árlegu vali á besta veitinga- húsi þar í landi. Christensen ákvað að færa út kvíarnar í ár með því að efna til sambærilegrar keppni á milli Norðurlandanna þar sem hvert land á sinn eigin fulltrúa að sögn Ólafs. „Búast má við harðri keppni þar sem risarnir í veitingabransan- um mæta til leiks,“ bendir hann á. „Þannig verður Doma fulltrúi Dan- merkur í keppninni en það hefur verið valið þriðja besta veitingahús veraldar. Svíar tefla fram Mattias Dahlgren, Norðmenn Bagatelle og Finnar Savoy, en þetta eru staðir sem hafa allir fengið eina eða fleiri stjörnur samkvæmt Michelin-ein- kunnakerfinu, sem þykir góður mælikvarði á gæði veitingahúsa. Það er alveg frábært að lenda í hópi með þessum aðilum sem eru ekki bara kanónur á Norðurlöndunum heldur á heimsvísu.“ Úrslitin verða kynnt við hátíðlega athöfn á veitingahúsinu Sölleröd kro í Kaupmannahöfn á sunnudag og er viðbúið að stjörnur í veitinga- bransanum láti sjá sig. Dómnefnd- ina skipa heimsþekktir sérfræð- ingar á sviði matargerðar. Þeirra á meðal er greinahöfundur við hið virta tímarit Vinforum sem kom á dögunum til landsins ásamt hinum dómurunum til að taka út Dill, eftir að íslensk dómnefnd hafði tilnefnt staðinn sem fulltrúa Íslands. Ólafur fer utan til Danmerkur í dag ásamt Gunnari Karli Gíslasyni, hinum eiganda Dill, og eru þeir fullir tilhlökkunar. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir Dill og það nýnorræna eldhús sem við erum að fást við. Svo á þetta eftir að vekja athygli ekki bara á okkur heldur íslenskri matseld og vonandi setja íslenska matreiðslumenn í fremsta flokk þar sem við eigum heima,“ segir Ólafur og viðurkennir að sér þætti gaman að sigra. „Það væri frábært að hljóta nafnbótina besta veitingahúsið á Norðurlöndunum.“ roald@frettabladid.is Mæta norrænum risum Veitingahúsið Dill er fulltrúi Íslands í keppni um besta veitingahús á Norðurlöndum og verða úrslit kunn- gjörð í Kaupmannahöfn á sunnudag. Mikill heiður að vera valinn til þátttöku, segir Ólafur Örn hjá Dill. „Ótrúlegur árangur,“ segir Ólafur Örn Ólafsson, annar eigenda Dill. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DILL restaurant hefur á skömmum tíma skipað sér í flokk með bestu veitingahúsum á Íslandi og var á dögunum tilnefnt til The Nordic Prize verðlaunanna sem besta veitingahús á Norðurlöndunum auk þess sem Gestgjafinn valdi DILL veitingahús ársins 2009 fyrir hátt þjónustustig, framsækið eldhús og fagmennsku. DILL restaurant Norræna húsinu Sturlugötu 5 101 Reykjavík sími 5521522 dillrestaurant.is dillrestaurant@dillrestaurant. Opið í hádeginu alla daga frá kl. 11.30 og fyrir kvöldverð miðvikudaga til laugardaga frá kl.19. Tilnefnt sem besta veitingahús á Norðurlöndum (The Nordic prize) Gildir til 4. febrúar Gildir ekki með öðrum tilboðum eða drykkjum. Klippið út auglýsinguna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.