Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.01.2010, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 18.01.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MÁNUDAGUR 18. janúar 2010 — 14. tölublað — 10. árgangur Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Mig var búið að langa í þessa kaffivél í mörg ár og fékk hana svo í afmælisgjöf þegar ég varð þrítug. Hún er búin að ferðast með mér milli landa og mér þykir voða vænt um hana. Ekki síst vegna þess að ég er algerlega á því að kaffibolli getiverið fullur af ást “ se i SDö mjólk í rúmið,“ segir Sigríður Dögg brosandi. „Það hjálpar til við að takast á við daginn sem fram undan er að byrja á góðum kaffi-bolla sem er barmafullur af ást.“ Sest Valdimar þá á rúmbríkimeð sin b frá því að þau voru lítil og ef við setjum Ribena-saft út í verður það alger sparidrykkur,“ lýsir Sigríð-ur Dögg. „Steingerður Ólafsdóttirvinkona mín g f Barmafullur bolli af ást Kaffi er hressandi og sódavatn svalar. Tæki sem töfra fram þessa drykki eru í miklum metum á heimili Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, forstöðumanns kynningarmála í Mosfellsbæ, og bæði eiga þau sér sögu. „Það er rosalega gott að fá sér kaffi og sóda- vatn saman,“ segir Sigríður Dögg og stillir sér upp við uppáhaldsgræjurnar í eldhúsinu. FRÉTTAB LAÐ IÐ /AN TO N KJÚKLINGAVÆNGIR í grillsósu er fyrirtaks fingramatur í heimboðum og veislum. Vængirnir eru baðaðir í sósu, þeim stungið inn í ofn og borðaðir með sósu af einhverju tagi, en fersk jógúrtsósa hentar einkar vel með slíkum mat. s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeiðhefst 22. janúar n.k. VEÐRIÐ Í DAG SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR Fær barmafullan kaffi- bolla af ást í rúmið • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Íslenska heyið gott Sveinn Ragnarsson, lektor við Háskól- ann á Hólum, ver doktorsritgerð í fóðurfræði hesta. TÍMAMÓT 14 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -1 6 0 8 Uppskriftin að mánudags- fisknum er á gottimatinn.is Fjögurra stjörnu Faust-sýning Uppfærsla Vestur- ports á Faust fær góða dóma. MENNING 18 ÁSGEIR GUNNAR ÁSGEIRSSON Hrellir liðsfélagana með bornum Miðjumaður FH orðinn tannlæknir FÓLK 26 FÓLK „Við viljum sýna að við erum ekki öll slæmar manneskjur,“ segir Litháinn Algirdas Slapikas. Hópur fólks hefur stofnað Íþróttafélag Litháa á Íslandi sem hefur það að markmiði að gefa ungum sem öldn- um tækifæri til íþróttaiðkana og að aðstoða innflytjendur við að aðlag- ast íslensku samfélagi. „Vegna allra þessara neikvæðu frétta í blöðunum þá er þetta eitthvað sem við viljum að sjálfsögðu að bæti ímynd innflytjenda, sem fáeinir einstaklingar hafa skemmt,“ segir Algirdas, sem er formaður félags- ins. Um 1.500 Litháar eru búsettir á Íslandi. - fb / sjá síðu 26 Vilja bæta ímynd innflytjenda: Litháar stofna íþróttafélag ALGIRDAS SLAPIKAS Formaður Íþrótta- félags Litháa vill bæta ímynd innflytj- enda á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÓÞOLINMÓÐIR KYLFINGAR Þessir kylfingar tóku forskot á sæluna og nýttu veðurblíðuna í gær til að spila golf á iðjagrænum vell- inum á Korpúlfsstöðum. Nokkrir mánuðir eru í að golfvellir landsins opni en nokkrir klúbbar hafa þó staðið fyrir mótum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Bakkavör mun í dag óska eftir heimild til að leita nauðasamn- ings við lánardrottna. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafa kröfuhafar rúmlega 70 prósenta skulda félagsins þegar samþykkt innihald nauðasamningsins. Í frumvarpi að nauðasamningn- um, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er gert ráð fyrir að engar afskriftir verði á skuldum Bakka- varar. Hins vegar verður gjalddög- um á lánum frestað þannig að þau verði að fullu greidd með vöxtum um mitt ár 2014 – eða eftir fjögur og hálft ár. Um gríðarlegar fjárhæðir er að ræða því móðurfélag Bakkavarar skuldar lánardrottnum um 62,5 milljarða króna. Íslenskir lífeyris- sjóðir eru þar fremstir í flokki. Stofnendum og aðaleigendum Bakkavarar, bræðrunum Lýði og Ágústi Guðmundssyni, er ætlað að stýra félaginu áfram. Gangi áætl- unin eftir munu bræðurnir fá að skrifa sig fyrir 25 prósenta hlut í Bakkavör á árinu 2014. Verður þá miðað við að gengi bréfanna sé 1,0. Kröfuhafarnir fá hins vegar þegar í stað 26,67 prósenta hlut í félaginu. Á móti þeim hlut reikn- ast 784 milljónir króna af skuld- um Bakkavarar, eða um 1 pró- sent af heildarskuldum félagsins. Í þeim viðskiptum reiknast hluta- bréfin á genginu 1,0. Kröfuhafar geta eignast enn stærri hlut gangi greiðsluáætlunin ekki eftir. Að öðru leyti halda núverandi hluthaf- ar í Bakkavör hlut sínum. Félagið verður skráð úr Kauphöllinni þar til rekstraráformin eru orðin að veruleika. Samkvæmt frumvarpinu til nauðasamningsins fela tvær mis- munandi leiðir varðandi hlutafjár- eign kröfuhafanna í Bakkavör það sama í sér. „Hver sem uppgjörsað- ferðin verður munu lánardrottnar fá í hendur verðmæti sem jafngilda fjárhæð samningskrafna þeirra á hendur Bakkavör (100%),“ segir í frumvarpinu. - gar Bakkavör greiði allt en fresti gjalddögum Nauðasamningar gera ráð fyrir að bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir stýri Bakkavör áfram. Gjalddagar lána færast til ársins 2014. Þá eiga lánin að greiðast að fullu. Gangi þetta eftir geta bræðurnir eignast fjórðung í félaginu. 3 1 0 23 Stöku skúrir eða él um sunnan- og vestanvert landið en nokkuð bjart norðaustan- og austanlands. Vægt frost inn til landsins en frost- laust með ströndum. VEÐUR 4 Góð ráð dýr Aukinn sáttatónn á öllum sviðum samfélagsins er grundvallarþáttur í efnahags- og samfélagslegri uppbyggingu landsins, segir Finnur Oddsson í pistli sínum. Í DAG 12 SAMGÖNGUR Undirbúningur samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri hefur gengið vel síðustu daga. Þó er alls óvíst hvenær framkvæmdir hefjast. Enn á eftir að ganga frá samningum við flug- félög og rútufélög um að leigja aðstöðu í húsinu. Þá á eftir að hanna húsið og ganga frá skipulagi. Þetta segir Ólafur Sveinsson, verkefnastjóri samgöngumiðstöðvar og stjórnarformaður Flugstoða. Að auki hafi ekki verið gengið frá fjármögnun hússins, í gegnum lífeyrissjóði. „Það er of mikill efi í þessu til að segja mikið meira að svo stöddu,“ segir Ólafur. Hann treystir sér því ekki til að meta hversu langan tíma slík bygging tæki, en miðað við aðalskipulag Reykjavíkur og forsendur samgöngu yfirvalda verður ekki hægt að nota Reykjavíkurflugvöll til innanlandsflugs eftir árið 2016. - kóþ Fátt í hendi um framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll, segir verkefnastjóri: Samgöngumiðstöð enn í bið Strákarnir klárir á EM Guðmundur Guðmundsson hvíldi lykilmenn í tíu marka tapi fyrir Frökkum í lokaleiknum fyrir EM. ÍÞRÓTTIR 20 HAÍTÍ Talsmaður Sameinuðu þjóð- anna, Elisabeth Byrs, segir að fólk sé enn á lífi í byggingunum sem hrundu í jarðskjálftanum á Haítí. Reiknað sé með að það geti lifað í sex daga í rústunum. Sá tími rennur einmitt út í dag. Íslenska björgunarsveitin fór í gær ásamt breskri sveit og sveit frá Katar í gær til borgarinnar Léogane sem er við upptök stóra skjálftans. „Við ætlum að tryggja að það sé búið að fullleita í þessari borg seinni partinn á morgun [í dag]. Við leitum einna helst á stöðum þar sem enn heyrist í fólki innan í rústunum,“ sagði Grétar Rafn Ólafsson, stjórnandi hjá íslensku sveitinni, síðdegis í gær. - fb / - gar Hjálparstarfið á Haítí: Yfir 70 bjargað úr rústunum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.