Fréttablaðið - 21.01.2010, Síða 31
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2010
Fyrir utan eldunargræjur og borð-
búnað eru viss áhöld nauðsyn-
leg í eldhúsið í upphafi búskap-
ar. Bryndís Steinþórsdóttir hús-
stjórnarkennari sýndi okkur það
allra brýnasta.
Bryndís byrjar á að taka fram
tvo potta, annan lítinn og hinn stór-
an, og drífa upp á eldavélina. „Við
verðum líka að hafa pönnu með,“
segir hún. Nær svo í tvær skálar
upp í skáp, eina litla og aðra stóra
og tekur líka fram tvo misstóra
hnífa. „Það er nauðsynlegt að eiga
góða hnífa,“ leggur hún áherslu á.
„Auðvitað er gott að eiga brauð-
sög en maður setur hana samt
ekki í fyrsta sæti.“ Bráðlega bæt-
ast á borðið pískari, plastsleif og
steikarspaði, pottasleikja og mæli-
áhöld. „Þessi grunnáhöld eru þau
sem ég mundi kaupa mér ef ég
væri að byrja að búa og þau þarf
maður að velja vel og rétt. Jú, og
bretti,“ bætir hún svo við. „Ég vil
hafa plastbretti sem auðvelt er að
þrífa, meðalstórt. Eins er afskap-
lega gott að hafa tímaklukku. Það
róar mann niður í matreiðslunni að
stilla á tíma.“
Bryndís er reyndur hússtjórn-
arkennari og meðhöfundur bókar-
innar Við matreiðum. Hún nam í
Húsmæðrakennaraskóla Íslands
hjá Helgu Sigurðardóttur og eftir
að hafa bætt við sig þekkingu á
eldhúsinnréttingum, áhöldum og
tækjum í Árósum byrjaði hún að
kenna við Húsmæðraskólann á
Laugarvatni. Fór svo í frekara nám
og lærði handavinnukennslu og
kenndi við Gagnfræðaskóla verk-
náms en lengst kenndi hún við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti þar sem
hún var með alveg frá byrjun. „Ég
lauk starfsævinni í Menntaskólan-
um í Kópavogi, þar sem var komin
afskaplega fín aðstaða til kennslu,“
segir hún brosandi.
Snýr sér svo að áhöldunum á
borðinu og segir: „Auðvitað er
lengi hægt að bæta við og ég hef
ekkert minnst á raftækin. Fyrsta
skrefið er nefnilega að læra að
vinna með handverkfærum til að
geta með góðu móti tileinkað sér
tæknina.“ - gun
Handverkfæri fyrsta skrefið
Þessi grunnáhöld eru þau sem ég mundi kaupa mér ef ég væri að byrja að búa og
þau þarf maður að velja vel og rétt,“ segir Bryndís. FRÉTTABLAÐIÐ STEFÁN
Smith & Norland er rótgróið
fyrirtæki sem leggur mikið
upp úr heildarlínum fyrir heim-
ili og góðri þjónustu.
Smith & Norland hefur umboð
fyrir Siemens á Íslandi. Fyrirtæk-
ið hefur selt Íslendingum vandaða
vöru í yfir hálfa öld og þjónað þeim
vel og dyggilega. „Við erum eitt af
þessum gömlu, góðu og tryggu fyr-
irtækjum landsins,“ segir Þórir
Bergsson verslunarstjóri, sem
hefur starfað hjá Smith & Norland
í 35 ár. Fyrirtækið hefur haft að-
setur að Nóatúni 4 síðan 1974, en
var áður á Suðurlandsbraut og þar
á undan í Hafnarhúsinu í miðbæ
Reykjavíkur eða um miðja síðustu
öld.
Langflestar vörur fyrirtækis-
ins eru frá Siemens og því leik-
ur einn að kaupa eldhústæki í stíl
þar sem allar vörurnar eru frá
eina og sama merkinu. Þórir álít-
ur þetta einn af höfuðstyrkleik-
um Smith & Norland. „Þessi ráða-
hagur býður upp á mikil þægindi
fyrir viðskiptavini. Við tökum til
að mynda eftir því að ungt fólk
kemur oft til okkar þegar það er að
byrja að reka heimili og er ánægt
með að geta fengið sér allt sem það
þarfnast á sama stað og allt í stíl.
Stóru tækin, eins og kæliskápa,
uppþvottavélar og fleira, sem við
seljum mjög mikið af, má einnig
fá alklæðanleg og láta þannig falla
alveg inn í innréttingarnar,“ segir
Þórir.
Um þessar mundir er ný lína í
eldunartækjum á boðstólum hjá
fyrirtækinu og meðal þess sem
innfalið er í henni eru yfir þrjátíu
ofnar af öllum gerðum; Örbylgju-
ofnar, gufuofnar og venjulegir
ofnar í mörgum útfærslum. „Sala
á gufuofnum hefur aukist nokk-
uð hjá okkur, því nú eru margir að
hugsa um heilsuna,“ segir Þórir.
Smith & Norland býður aðallega
upp á þrjá liti á tækjum sínum;
hvítt, svart og stál. Spurður um
vinsælasta útlitið þessa dagana
segir hann stál vera mál málanna.
„Þetta breytist reglulega. Í gamla
daga var brúni liturinn mjög vin-
sæll, en síðustu fimm til sjö árin
hefur stálið verið mest selt. Nú
nýverið höfum við svo tekið eftir
því að hvíti liturinn er farinn að
hreyfast aftur hjá okkur.“
Auk Siemens hefur Smith & Nor-
land umboð fyrir þýska hágæða-
vörumerkið Gaggenau, en vörur
frá því fyrirtæki eru oftast sér-
pantaðar. Þórir segir fyrirtækið
leggja mikið upp úr þjónustu við
viðskiptavini. „Við höfum rúm-
lega tuttugu umboðsmenn um allt
land sem flestir eru fagmenn og
sjá um allt sem er á okkar vegum.
Við erum líka með okkar eigið
þjónustuverkstæði þar sem starfa
fagmenn sem bæði sækja tæki til
viðgerðar og fara á staðinn. Þá er
heimkeyrsla á vörum innifalin í
verði hjá okkur, en þeir eru ekki
margir eftir sem bjóða upp á slíkt
í dag,“ segir Þórir.
Þægindi í fyrirrúmi
Þórir segir Smith & Norland bjóða upp á fjölbreytt úrval heimilistækja frá Siemens. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Siemens
Uppþvottavél,
SN 46T590SK
14 manna, úr ryðfríu stáli.
Sex kerfi: Sjálfvirkt 65–75° C,
sjálfvirkt 45–65° C,
sjálfvirkt 35–45° C,
sparnaðarkerfi 50° C,
hraðkerfi 45° C
og forskol.
Ótrúlega hljóðlát:
40 dB (re 1 pW).
Þrjár þvottagrindur,
ein hnífaparaskúffa.
Séraðgerðir: Hálf vél,
tímastytting þvottakerfa og
kraftþvottur á neðri grind.
Barnalæsing.
Hæglokun á vélarhurð.
Orkuflokkur/þvottahæfni/þurrkun: A/A/A.
Siemens
Bakstursofn, HB 76A1560S
Bakstursofn úr ryðfríu stáli.
Kjöthitamælir.
Brennslusjálfhreinsun.
Tíu hitunaraðgerðir.
Ofnrými: 56 lítrar.
Sjálfvirk steiking (40
matreiðslutillögur).
Fitu- og lyktarsíur.
Nákvæm hitastýring frá
30–300° C, hiti á framhlið
verður mestur 40° C.
Barnaöryggi og öryggisrof.
Upplýstir sökkhnappar.
Orkuflokkur A.
Siemens
Veggháfur, LC 656BB40S
60 sm veggháfur fyrir útblástur
eða umloftun.
Rafeindastýring. Stafrænn skjár.
Fjórar styrkstillingar, þar af kraftstilling.
Hámarksafköst: 660 m3/klst.
Hljóð: Mest 59 dB (re 1 pW).
Vinnulýsing með halógenperum.
Málmfitusía sem má þvo í vél.
Siemens
Spanhelluborð,
EH 675ME21E
Með slípuðum framkanti
og stálhliðum.
Fjórar spanhellur.
Steikingarskynjari á
fremri hellum, með fjórum
upphitunaraðgerðum.
Níu sjálfvirk steikingarkerfi.
Snertisleði.
Aflaukaaðgerð möguleg á
öllum hellum
(„powerBoost“).
Barnaöryggi og öryggisrof.