Fréttablaðið - 21.01.2010, Qupperneq 46
30 21. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af …
Frönsk kvikmyndahátíð stend-
ur nú yfir í Háskólabíói og
hefur verið rífandi góð aðsókn
á hana. Tíu myndir eru sýndar
á hátíðinni og sex þeirra eru
sýndar í dag. Þar á meðal
er fjölskyldumyndin Nikulás
litli og spennumyndin Edrú.
Allar myndirnar eru sýndar
með enskum texta og hátíðin
stendur til fimmtudagsins 28.
janúar. Nánar á www.af.is.
Menningarsalur Hrafnistu
Þessa dagana stendur yfir listsýn-
ing í Menningarsalnum í Hrafn-
istu í Hafnarfirði. Þrjár listakonur
sýna verk sín. Gunnhildur Valdi-
marsdóttir sýnir krosssaums-
myndir með mynstrum Margét-
ar Þórhildar Danadrottningar.
Hólmfríður Valdimarsdóttir sýnir
vatnslitamyndir og Sigríður K.
Skarphéðinsdóttir sýnir verk sín.
Sýningin er opin daglega á milli
kl. 13 og 19.
Ólafur Arnalds semur tón-
listina í dansverkinu Enda-
laust sem Íslenski dans-
flokkurinn æfir nú. Verkið
er eftir Alan Lucien Öyen,
ungan norskan danshöfund
sem hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir verk sín.
Alan hefur getið sér gott
orð fyrir falleg, tilfinninga-
rík og ljóðræn verk með
djúpri innri merkingu.
Hann notar talað orð og
myndbandsverk í nýja dans-
verkinu og skapar sérstakan
söguþráð í anda heimildar-
myndar. Áhorfendum eru
birt brot úr hugsunum,
endurminningum og
hugleiðingum um horfna
ástvini.
Hinn liðlega tvítugi Ólaf-
ur Arnalds hefur selt þús-
undir hljómplatna og fyllt
tónleikahallir víða um
heim, þar á meðal Barbi-
can Hall í London.
Ólafur klæðir klassísk
áhrifin í strigaskó og
blandar rafrænum hljóð-
um og trommutöktum
við hefðbundin hljóðfæri
sinfóníunnar. Útkoman
þykir fersk og gengur vel í
nútímahlustandann.
Endalaust verður frum-
sýnt hinn 4. febrúar á stóra
sviði Borgarleikhússins.
Semur fyrir dansverk
FERSKUR Ólafur Arnalds.
Í kvöld frumsýnir Nem-
endaleikhúsið nýtt leikverk,
Bráðum hata ég þig, eftir
Sigtrygg Magnason. Hann
skrifaði verkið sérstaklega
fyrir leikhópinn.
Leikritið Bráðum hata ég þig
fjallar um fjórar systur sem
hittast við jarðarför móður
sinnar. Áralöng bæling sýður
undir kvikunni og Þórunn Arna
Kristjánsdóttir, einn leikaranna
í útskriftarhópnum, játar að sýn-
ingin taki á, að minnsta kosti
fyrir leikarana.
„Það tekur rosalega á sálina að
leika þetta. Þegar maður er búinn
að sýna er maður gjörsamlega
búinn. En það er samt mjög góð
tilfinning,“ segir hún.
Verkið er bannað innan 16 ára.
„Sýningin fjallar um viðkvæm
málefni sem við teljum að hæfi
ekki ungum börnum,“ segir Þór-
unn. „Það er ekki það að þetta sé
eitthvað splatter!“
Ætla ekki að hrapa
Í vor útskrifast sjö leikarar frá
Listaháskólanum. Auk Þórunnar
þau Anna Gunndís Guðmunds-
dóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir
Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Svandís Dóra Einarsdóttir og
Ævar Þór Benediktsson. Strák-
arnir hafa sést í Dagvaktinni og
Bjarnfreðarsyni. Að öðru leyti
eru þetta „fersk andlit“ og búin að
vera saman í náminu síðan 2006.
„Við erum samrýnd en samt
alveg tilbúin að láta leiðir skilja.
Þegar maður er hluti af svona
flottum hópi þá er það gott vega-
nesti út í lífið. Þótt maður fái ekki
endilega eitthvað að gera í stóru
leikhúsunum eða í bíómyndum
þá er gott að eiga góða vini sem
hægt er að hóa í aftur og búa til
eitthvað magnað með.“
Þórunn segir atvinnuhorf-
ur nýútskrifaðra leikara ekkert
rosalega góðar.
„Ég finn bara að þetta er það
sem mig langar til að gera. Þá
vinnur maður bara í einhverju
öðru á daginn og gerir þetta á
kvöldin. Maður gefst ekkert upp.
Í dag er fullt af grúppum sem
fengu enga styrki en gera samt
bara hlutina og komast langt.
Ég hef engar áhyggjur af okkur.
Við stöndum öll á brúninni og
tökum flugið. Við ætlum ekkert
að hrapa.“
Bráðum hata ég þig er sýnt í
Smiðjunni, leikhúsi Listaháskól-
ans við Sölvhólsgötu. Leikstjóri
er Una Þorleifsdóttir.
drgunni@frettabladid.is
Bráðum hata ég þig á fjalirnar
SAMRÝND Útskriftarhópurinn 2010 frá vinstri: Hilmir Jensson, Ævar Þór Benedikts-
son, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Svandís Dóra Einarsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Þau leika í leikverkinu
Bráðum hata ég þig eftir Sigtrygg Magnason. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Spjallþáttastjórnandinn Conan
O‘Brien á að hafa verið miður
sín þegar hann tilkynnti starfs-
mönnum sínum um mögulega
brottför sína frá sjónvarpsstöð-
inni NBC. Barátta ríkir á stöð-
inni um hvort O‘Brien fái að
halda tíma sínum á skjánum eða
hvort Jay Leno taki aftur við.
„Þegar hann sagði starfsfólk-
inu frá brottför sinni var hann
miður sín og brast í grát. Margt
af þessu fólki hafði flutt búferl-
um frá New York til Los Angel-
es til að fylgja honum til starfa
á The Tonight Show,“ var haft
eftir innanbúðarmanni. „Conan
og Jay skammast sín báðir alveg
hræðilega fyrir þetta mál. NBC
þarf núna að takast á við ljótt
klúður og annar hvor neyðist til
að víkja.“
Conan og Jay
berjast
ÓSÆTTI Conan O‘Brien og Jay Leno berj-
ast um sama sjónvarpstímann á NBC.
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fim 21/1 kl. 20:00 U
Fös 22/1 kl. 20:00 U
Fim 28/1 kl. 20:00 Ö
Fös 5/2 kl. 20:00 U
Mið 17/2 kl. 20:00
Fim 18/2 kl. 20:00 Síð. sýn.
Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U
Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U
Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö
Gerpla (Stóra sviðið)
Lau 20/2 kl. 20:00 4. K Ö
Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. U
Lau 23/1 kl. 19:00 U
Fös 29/1 kl. 19:00 U
Lau 30/1 kl. 15:00 U
Lau 30/1 kl. 19:00 U
Lau 6/2 kl. 15:00 U
Lau 6/2 kl. 19:00 Ö
Sun 14/2 kl. 15:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Sun 14/2 kl. 19:00 Ö
Sun 21/2 kl. 15:00 Ö
Sun 21/2 kl. 19:00 Ö
Sun 28/2 kl. 15:00 Ö
Sun 28/2 kl. 19:00 Ö
Sun 7/3 kl. 15:00 Ö
Sun 7/3 kl. 19:00 Ö
Sun 14/3 kl. 15:00
Sun 14/3 kl. 19:00 Ö
Sun 21/3 kl. 15:00
Sun 21/3 kl. 19:00
Lau 27/3 kl. 15:00
Lau 27/3 kl. 19:00
Sun 28/3 kl. 15:00
Oliver! MBL, GB. Nýjar sýningar komnar í sölu.
„Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Síðasta sýning 18. febrúar.
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar!
Lau 23/1 kl. 15:00 Ö
Sun 24/1 kl. 16:00 Ö
Sindri silfurfi skur (Kúlan)
Lau 30/1 kl. 15:00 Ö
Sun 31/1 kl. 15:00 Ö
Undurfalleg sýning fyrir yngstu leikhúsgestina!
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 U
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00 U
Fíasól (Kúlan)
Sun 21/3 kl. 13:00 U
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Lau 27/3 kl. 13:00 Ö
Lau 27/3 kl. 15:00 Ö
Sun 28/3 kl. 13:00
Sun 28/3 kl 15:00
Lau 10/4 kl 13:00
Lau 10/4 kl 15:00
Sun 11/4 kl 13:00
Sun 11/4 kl 15:00
Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu!
Mið 27/1 kl. 20:00
Bólu-Hjálmar (Kúlan)
Fim 28/1 kl. 20:00
Gestasýning Stoppleikhópsins. Aðeins tvær sýningar.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Loftkastalinn sem hrundi
Stieg Larsson
Almanak Háskóla Íslands
Þorsteinn Sæmundsson
Stúlkan sem lék sér
að eldinum - Stieg Larsson
Garn og gaman
Jóna Svava Sigurðardóttir
Svörtuloft
Arnaldur Indriðason
Horfðu á mig
Yrsa Sigurðardóttir
Enn er morgunn
Böðvar Guðmundsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
13.01.10 – 19.01.10
Týnda táknið
Dan Brown
Hlýjar hendur
Ágústa Jónsdóttir
Kirkja hafsins
Ildefonso Falcones