Samtíðin - 01.10.1965, Page 8
4
samtíðin
RADDIR • RADDIR • RADDIR
Dr. Bjarni Benediktsson:
Markmið
okkar ailra er hið sama
SKÖPUNARMÁTTUR Islendinga naut
sín bezt á meðan tungan greiddi þeim
veg til annarra þjóða og forðaði þeim
þannig frá einangrun. Hún varð síðan
hjartaskjól þjóðarinnar af þvi, að hún
flutti boðskapinn um betri heim utan
við einangruðu hreysin á Islandi, heim
sem íslendingar áiður höfðu þekkt af eig-
in raun, þó að einangrun hinna myrku
alda útilokuðu þái frá honum. Tungan
flytur okkur þess vegna ekki boðskap
um æskileik einangrunar heldur nauð-
syn samskipta við aðrar þjóðir, sem nú
eru raunar óumflýjanleg, hvort sem við
viljum eða viljum ekki. Við varðveitum
bezt okkar ómetanlega arf með því að
hopa hvergi frii þeim vanda sem okkur
er á herðar lagður. Við eigum enn að
biðja þess sama og Einar prestur í Garði
gerði fyrir sonarsyni sinum, Skúla, er
siðar varð landfógeti og mestur maður
á íslandi á 18. öld:
„Eg bið þess að þú megir læra að
þekkja heiminn, en að Guð varðveiti þig
frá heiminum."
Haldgóð undirstöðumenntun auðveld-
ar hverjum og einum að neyta þeirra
krafta og hæfileika, sem með honum
búa. Framtak og dugur einstaklingsins
er forsenda gæfu þjóðar-heildarinnar.
Vegna ólíks upplags verður algjörum
jöfnuði seint á komið, en bættur efna-
hagur hefur þegar tryggt og á eftir að
tryggja enn betur, að enginn þurfi að
þola neyð. Metin jafnast og furðu fljótt
á Islandi. Öll eigum við sameiginlega for-
feður skammt aftur i öldum og mununi
eiga sameiginlega afkomendur áður en
margar aldir líða.
Aukin þekking á lögmálum efnahags-
lífsins gerir nú mögulegt að ráða við
ýmsan vanda, sem áður reyndist óvið-
ráðanlegur. Menn verða einungis að
vilja leita þekkingar og beita henni í
þeim efnum eins og öðrum.
Mörg af hinum gömlu deilumáluni
hjaðna, þegar Ijósi þekkingarinnar er
varpað á þan. Auðvitað skapast ætíð ný
úrlausnarefni, sem mönnum sýnist sitt
hverjum um.
En þó að við kýtum um dægurmál, þ(l
skulum við minnast þess, að
„Þeir gjalda bezt sinn gamla arf, sein
glaðir vinna þrotlaust starf til vaxtar
vorri þjóð.“
Markmið okkar allra er hið sama:
Heill og heiður íslands.
(Úr ræðu forsætisráðherra
hinn 17. júní 1965).
SÍGILDAR NÁTTÚRULYSINGAF5
ÚR ÍSLENZKUM KVEÐSKAP
C A P R I
Blómskreytt í klettakjól
Capri frá öldum rís.
Hátt móti himni og sól
horfir þú, steinda dís.
Þó hjartað sé hcett að slá>
heillar þú margan svein,
meðan að bára blá
brotnar við unnarstein.
Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi