Samtíðin - 01.10.1965, Blaðsíða 16
12
samtíðin
en gat ekki lesið neitt út úr flötu, svip-
lausu andliti Slavans, kipruðum vörunum
né köldum, gráum augunum. Pashenka
dokaði við. Mest langaði hann til að reka
upp hlátur, en óhugnaðarkenndin varð
hlátrinum yfirsterkari.
„Ef þér eruð vopnasali,“ mælti hann
að lokum, „þá get ég sagt yður eitt, — að
þá endið þér í hetrunarhúsi eða á geð-
veikrahæli.“
„Hver veit,“ anzaði Sarelc ofhoð róleg-
ur.
I Jæssum svifum kom stúlka inn í
veitirigasalinn, og Sarek tók ofan og
gekk til hennar.
ÞAU settust.
„Þú ert þreytuleg,“ mælti Sarek. „Ertu
að koma af saumastofunni?“
„Já,“ anzaði stúlkan, „og þetta hefur
verið erfiður dagur.“
„Hlustaðu nú á mig, Cosima. Þú verð-
ur að fá eggjasnafs. Hann eyðir þreyl-
unni. Ekki satt? Svo kemurðu með mér
til Grigorieffs og horðar þar kvöldverð
með mér. Já?“
Rödd Sareks var nú ekki eins óper-
sónuleg og áður. Hann var orðinn líf-
legri á svipinn. En Cosima liristi höf-
uðið.
„Þvi miður ekki, ég kom hingað néfni-
lega til að hitta hann Janos,“ sagði hún.
Sarek hnyklaði brýnnar.
„Þá er ekki til neins fyrir mig að vera
að Ieggja neitt að þér með þetta. Það er
bara sóun á kröftum. Það sagðir ]jú mér
einu sinni. Þú elskar mig alls ekki. Eða
hvað?
Cosima hristi höfuðið.
„Jæja. Þú elskar mig ekki. Þá það. Þú
elskar Janos?“
Cosima kinkaði kolli.
„Þú ert grasæta, er ekki svo?“ spurði
Sarek.
„Hvað áttu við?“
„Ég á við, að þú færð víst ekki mikið
annað en gras, ef þú ferð að giftast hon-
um,“ mælti Sarek háðslega.
„Þú ættir ekki að lala svona, Hector.
Janos á eftir að verða mikill listamaður.“
„Hm! Einn góðan veðurdag verð ég
ennþá meiri maður.“
Hann starði á stúlkuna gegnum reyk-
inn frá vindlinum sínum.
í sama hili kom Janos og hlammaði
sér á stól.
„Hvað voruð þið að tala um mikil-
leik?“ spurði hann.
„Cosima var að segja, að þú mundh'
verða mikill listamaður,“ sagði Sarek,
„og ég sagði, að ég mundi jafnvel verða
ennþá meiri.“
Framh. í næsta blaði.
Ilve lengi í kaÍiV
ÞESSI dýr þola að vera samfleytt
kafi sem hér segir:
krókódíll
dúfa
hæna
langvia
mörgæs
önd
livít rotta
kanína
köttur
hundur
nioskusrotta
bjór
gráselur
langreyður
andarnefja
maður (perlukafari)
í 120 mín.
- 1 —
- 3 —
- 12 —
- 7 —
- 15 —
- 2 —
- 3 —
- 3 —
- 4 —
- 12 —
- 15 —
- 18 —
- 30 —
- 120 —
- P/2 —
HÖFLIVI
smekklegt úrval af úrum
skartgripum, — úraviðgeroir-
Lra- og skartgripaverzlun
Sigurðar Jónassonar
Laugavegi 10B — Sími 10-8-9-7