Samtíðin - 01.10.1965, Page 19
SAMTÍÐIN
15
rennur óskipt í féhirzlu konungs, aldrei
minni en 150 millj. sterlingspunda. Sam-
tímis eru árstekjur venjulegs Saudi- Ar-
aha 20 pund! En Ibn Saud hugkvæmdist
aldrei að verja neinu af oliugróðanum
til að reisa skóla, sjúkrahús, gera vegi
né rækta landið í þágu þjóðar sinnar.
Hann hugsaði sem svo: Til hvers er að
ráðast í þessar framkvæmdir, þegar við
höfum enga kennara, enga lækna né
hjúkrunarkonur né verkfræðinga. Bedú-
ínum mínum vegnar hezt, ef þeir temja
sér nægjusemi að dæmi forfeðra sinna.
Líferni þeirra er göfugra en allra annarra.
Og' meðan þjóð lians barðist við skort-
inn i .óræklaðri eyðimörkinni, jós kon-
ungur fjármunum sínum gegndarlaust í
hina geysifjölmennu fjölskyldu sina, en
lét þau boð fylgja, að liún ætti að temja
sér strangt, óbrotið og heiðarlegt líferni
að dæmi forfeðranna.
Þessar áminningar stoðuðu litt. Ýmsir
af sonum Ibns Sauds höfðu lileypt heim-
draganum og séð, livers fjármunir voru
megnugir meðal vestrænna þjóða. Þeir
heimtuðu vestræn lífsþægindi, vestræn-
an munað, draumahallir með sundlaug-
um paradísargarða o. s. frv. Og allt þetta
fengu þeir. Hvers konar siðspilling
þreifst eins og átumein við peningaflóð
þeirra. Ibn Saud komst brátt að raun
um, að hann hafði dregizt inn í Iiring-
iðu, sem hann komst ekki út úr. Þá
reiddist hann og dæmdi jafnvel ein-
hverja af sonum sínum til dauða fyrir
óhóf og siðleysi. Þeim dómum var aldr-
ei fullnægt, og piltarnir létu sér ekki
segjast. Svo dó Ibn Saud 73ja ára gamall,
mæddur og bitur yfir því að sjá ævistarf
sitt óvirt af léttúðugum sonum sínum,
svartsýnn á framtíð lands síns og þjóð-
ar. Hann var grafinn i kyrrþey á ókunn-
um stað í Riad, að liætti wahabitta.
Saud, elzti sonur hans, erfði konung-
dóminn. Sukkið við hirðina jókst í hans
tíð. Þeir ríku uðu ríkari, liinir fátæku
snauðari. Fjölskylduhneykslin komust i
algleyming. Saud var 53ja ára, er hann
gerðist konungur. Hann átti þá 40 syni,
rösklega 100 konur, og við hirðina voru
meir en 5000 manns. Tekjur konungs
voru meiri en föður hans. Engu að siður
komst hann á fáum árum í 100 millj.
sterlingspunda skuld. Hann sóaði á 10
árum 500 millj. punda til lítilla nytja.
Hann hafði ekki erft neinn af meiri hátl-
ar hæfileikum föður síns. Mönnum
fannst hann vera hálfgerð skopstæling
af Ibn gamla Saud. En hans var valdið,
og féð liélt áfram að streyma til hans frá
olíulindunum.
En — nú er svo komið, að veldi Sauds
konungs er lokið. Prestastétt landsins
og meiri hluti konungssonanna ákváðu
loks að svipta liann völdum. Hann ber
að vísu konungsnafn, en völdin hafa ver-
ið lögð í liendur Faisals, hróður hans,
sem er þrem árum yngri. Hann er gagn-
ólíkur Saud, hefur hlotið vestræna
menntun og heilbrigða yfirsýn lands-
málanna. Hann á aðeins eina konu og
8 börn, þegar þetta er ritað. Faisal er
greindur og skilur, að þjóðin verður að
öðlast sanngjarna blutdeild i tekjum
ríkisins. Áður en bann tók við völdum,
reyndi hann að kippa ýmsu í lag, setja
eins konar stjórn á laggirnar og hefja
opinberar framkvæmdir, en Saud sporn-
aði við öllu þessu. Það kostaði liann
völdin.
Óvissa ríkir nú um framlíð konungs-
ættarinnar í Saudi-Arabiu. Þjóðin er bú-
in að fá nóg af einveldi liennar. Erlend
öfl reka byltingaráróður í landinu. Og
önnur Arabaríki lúta nú orðið lýðveldis-
stjórn nema Jórdania, þar sem Hussein
gamli situr, fremur völtum sessi.
4 SÉRHVERT heimili þarfnast fjölbreytts
og skemmtilegs heimilisblaðs. SAMTÍÐIN veit-
ir lesendum sínum þá þjónustu.